Læknablaðið - 01.12.1967, Page 40
240
LÆKNABLAÐIÐ
lyfjafræðinga (þar með taldir
lyfsalar), einn úr hverjum
hópi. Með þessu móti ætti að
vera tryggt, að flestir þeir, sem
heilbrigðisþjónustu sinna og
sérfræðilega þekkingu hafa. á
því sviði, geti komið skoðunum
sínum á framfæri. Slíkt ráð
gæti þannig vafalaust, ef því
væri vel stýrt, haft ómetanlegt
gildi fyrir þróun þessara mála
hér á landi.
Margt er þó annað í heilbrigð-
ismálum þjóðarinnar en yfir-
stjórn þeirra, sem þarfnast end-
urskoðunar. Má hér til nefna
könnun á nýtingu starfskrafta
lækna á spítölum, svo og könn-
un á rekstri spítala almennt og
notagildi þeirra fjármuna, sem
til þess er varið. Þá þurfa lækn-
ar og í sínum hópi að taka siða-
mál stéttarinnar, bæði innbyrð-
is og út á við, upp til íhugunar.
1 síðasta hefti var hér í þessum
dálkum bent á brýna þörf auk-
ins samstarfs milli spítala. Loks
má benda á endurskoðun al-
mennrar læknisþiónustu, en
hennar er og brýn þörf.
ENN UPP í STÓRHOLT
I dálkum þessum er áður um
það rætt, hve mjög var úr lagi
færð lyfjasala í Reykjavík og
nágrenni, þegar reglugerð um
afgreiðslutíma lyfjabúða tók
gildi 10. ágúst 1966. Samkvæmt
reglugerð þessari var kvöld-
varzla í apótekum lögð niður að
heita mátti og næturvarzla með
öllu. Kvöld- og nætursölu lyfja
var ætlaður staður í Stórholti 1.
Skyldu þar vera nokkrar birgð-
ir liðlega 40 lyfja. Öll önnur lyf
voru, ef að líkum lætur, talin
ónauðsynleg um nætur. Þá var
og á það drepið, hverja aftur-
för útsalan í Stórholti boðaði í
lyfsölumálum Hafnfirðinga og
Kópavogsbúa.
Ráðsmennska þessi virtist öll
vera furðulegri en svo, að rétt-
um orðum mætti um fara. Ai-
menn skynsemi virtist því ein-
dregið mæla með, að skjótlega
yrði brugðið á betra ráð, þannig
að lyfjasala færi fram í aö
minnsta kosti einni fullbúinni
lyfjabúð um nætur.
Hér hefur lítil breyting orðið
á. Eitthvað mun þó hafa verið
gaukað af nýjum lyfjum í safn-
ið í Stórholti, enda þótt form-
lega hafi ekkert verið um það
tilkynnt. Með reglugerðarbreyt-
ingu frá 11. september 1967 er
reyndar kveðið svo á, að í
Reykjavík skuli tvær lyfjabúðir
í senn vera opnar til kl. 21.
Þannig verður að vísu ekki
neitað, að hér hafi orðið á nokk-
ur breyting ti! batnaðar. Furðu-
leg er hins vegar augljós tregða
við að breyta lyfjasölu um næt-
ur í eðlilegt horf. Enn verður
að vona, að mál þessi verði te'k-
in til vandlegrar endurskoðunar
á næstunni.