Læknablaðið - 01.12.1967, Blaðsíða 65
LÆKNABLAÐIÐ
257
Samanburður á fjölda nokkurra aðgerða á árunum 1960, 1964 og 1966.
1960 1964 ! 1966
Synoviect. hnélið 16 142 184
Synoviect. olnboga 0 0 50
Synoviect. metacarpophal 0 38 128
Arthrodesis úlnlið 22 29 64
Arthrodesis subtalo 24 86 82
Arthrodesis genu 12 7 4
Arthroplastik metacarpophal. . . 11 33 42
Resectio ulnae 13 44 213
notað allmikið til innspýtingar í fingurliði. Skurðlæknar voru þó
ekki hrifnir af þeirri meðferð, frekar en cortison-inntöku, því að
þeir töldu sig sjá meiri skemmdir í þeim liðum, sem í hafði verið
sprautað cortisoni. Þeir geta þó ekki sannað, að cortisoni sé einu
um að kenna.
í þessu sambandi má geta rannsóknar, sem K. Vainio gerði
um afdrif 500 sjúklinga í nokkur ár. Kom þá m. a. í ljós, að þeim
versnaði einmitt íljótast, sem fengu cortison. Af þessu má draga
þá ályktun um horfur, að liðagiktarsjúklingum sé cortison ekki að
gagni.
f) Thiotepa í fingurliði höfðu þeir lítið reynt í Heinola. En af þeirri
litlu reynslu, sem fengizt hafði, töldu þeir, að árangur væri jafn-
góður, ef ekki betri en af cortisoni sprautuðu í fingurliði.
g) Ozmium oxid sprautað í hnélið fá nú orðið allir með liðaþelsbólgu
(synovitis) í hnélið. Samkvæmt skyndirannsókn um árangur varð
niðurstaðan þessi: 50% fá bata (remission) í eitt ár að meðaltali.
Endurtaka má inndælingu svo oft sem þörf krefur og einhver
árangur fæst. Árangur af ozmium oxid kemur í ljós á nokkrum
dögum. Fáist ekki sýnilegur árangur af fyrstu inndælingu, er
sprautað aftur eftir eina til tvær vikur, en vonlaust talið að reyna
oftar og þá gerð synoviectomia. Árangur er beztur við liðaþels-
bólgu, sem staðið hefur stutt. Sé mikið þykkni í liðþeli (synovia),
eru líkur fyrir bata frekar litlar. Sama gildir um liði þá, sem komn-
ir eru með brjóskeyðingu. M. ö. o.: Því fyrr sem ozmium er spraut-
að í liðinn, því betri árangur. Gildir því hið sama um kemíska
synoviectomiu og hina kirurgísku synoviectomiu. Ozmium-inndæl-
ing í hnélið hindrar ekki synoviectomiu síðar. Töldu þeir í Heinola,
að minni liðir en hnéliðir þyldu ekki svona meðferð.
Til glöggvunar þeim, sem vildu reyna ozmium oxid við liða-
þelsbólgu í hnélið, skal skýrt frá notkunarreglum.
Ozmium oxid er kristallað efni, fáanlegt í púllum hjá L. V. R.
Það er torleyst í vatni.