Læknablaðið - 01.04.1968, Side 31
LÆKNABLAÐIÐ
61
eða sem svarar 0,7 g/kg/klst. til þess að viðhalda eðlilegum blóð-
sykri.
Af 1. mynd er augljóst, hversu oft þurfti að mæla hlóðsvkur
til þess að fylgjast nákvæmlega með ástandi þessa sjúklings. Hin
brotna, lárétta lína á myndinni táknar mörkin á milli þess, sem
er talinn skaðlegur og óskaðlegur blóðsykur fyrir beilakerfi ung-
barnsins. Við endurskoðun á meðferð þessa barns er augljóst, að
liún nægði ekki til þess að koma í veg fvrir varanlega heila-
skemmd. Ef lil vill liefði íneðferð með lyfjum eins og vaxtar-
hormóni, corticósteróíðum eða diazoxide borið belri árangur.
Vaxtarhormón virðist lcoma að gagni lil þess að viðhalda eðli-
legum blóðsykri, jafnvel þó að ekki sé um skort á myndun þessa
hormóns að ræða.28 Þar sem þessi sjúklingur hafði tiltölulega
lágt plasma-cortisol, má vera, að cortisone hefði reynzt gagnlegt.
Diazoxide er nýtt lvf, sem hefur verið notað með allgóðum
árangri í fáum tilfellum við meðferð þessara harna.7 Frekari
reynsla á notkun þessa lyfs er þó nauðsynleg.
Sjúkrasaga 2
D. F. (MGII. 1367264). 26 mánaða gamall negradrengur var
lagður inn á barnadeild sjúkrahússins til rannsóknar á krampa-
köstum, sem hann hafði haft samfara mjög lágum blóðsykri.
Móðir hans var 17 ára gömul frumbyrja, og hafði bún ein-
kenni um forboða fæðingarkrampa á meðgöngutímanum. Barnið
fæddist fimm vikum fyrir tímann og var 1450 g á þyngd. Að sögn
fékk barnið nokkur krampaköst fyrstu þrjá daga eftir fæðingu,
en eftir það var líðan barnsins eðlileg, og fór því vel fram og
var úlskrifað, er það var 38 daga gamalt.
Er drengurinn var 21/) mánaða gamall, var hann lagður inn
á sjúkrahúsið til aðgerðar á kviðsliti. Fannst þá við augnskoðun,
að hann hafði ský á háðum augasteinum. Þessi ský voru fjarlægð,
þegar hann var þriggja mánaða, og aftur, er hann var 17 mánaða
gamall.
Þegar drengurinn var tveggja ára gamall, fékk liann skyndi-
lega krampaköst. Þelta gerðist klukkan 11 á sunnudagsmorgni.
Hafði drengurinn þá ekkert borðað frá þvi kl. 6 kvöldið áður,
þar sem foreldrarnir höfðu sofið fram eftir þennan dag og voru
ekki komnir á fætur. Drengurinn var þegar fluttur á sjúkrahús,
þar sem rannsóknir leiddu í ljós, að blóðsykur var 6 mg/100 ml
og sykur i mænuvökva var 13 mg/100 ml. Sykurvatn var þegar
gefið i æð, og við það komst drengurinn til meðvitundar.