Læknablaðið - 01.04.1968, Blaðsíða 32
62
LÆKNABLAÐIÐ
Við skoðun var drengurinn talinn frekar grannur og lágvax-
inn, miðað við aldur, en samsvaraði sér þó vel. Hann liafði
leitandi augnriðu (searching nystagmus), enda liöfðu báðir
augasteinarnir verið fjarlægðir. Skoðun á taugakerfi var eðlileg.
Eftirtaldar rannsóknir voru síðar framkvæmdar: Fastandi blóð-
sykur var 86 mg/100 ml, próteínbundið joð (PBI) 7,1 micro-
grömm %, plasina-cortisol 17 microgrömm % (eðlilegt 10—25),
amínósýrur í þvagi og blóði voru eðlilegar og einnig 17-ketósteró-
íðar í þvagi. Beinaldur var 28 mánuðir. Heilalínurit var talið
óeðlilegt, án þess að um nokkrar sérkennandi breytingar væri
að ræða.
Fimm klukkustunda sykurþolspróf í æð var eðlilegt (3. mynd
A). Blóðsylcurmyndun var eðlileg, eftir að glucagon var gefið í
æð (3. mynd B). Tolbutamide-þolpróf var eðlilegt og samtíma
plasma-insúlín-mælingar reyndust einnig eðlilegar. Leucine-þol-
próf leiddi í ljós, að ekki var um neitt sérstakt leucine-næmi að
ræða (3. mynd C).
Rældlegar rannsóknir á kolvetnaefnaskiptum þessa drengs voru
fullkomlega eðlilegar. Var hann því útskrifaður, þegar foreldrum
bans böfðu verið gefnar leiðbeiningar um að gefa drengnum
greiðan aðgang að livers konar fæðu á morgnana, einkum á helgi-
dögum, þegar þau hefðu í liuga að sofa fram eftir.
Athugasemdir
Þessi sjúkrasaga er einkennandi fyrir „sunnudagsmorgun-
blóðsykurskort“. Einnig er athyglisvert, að fæðingarþyngd drengs-
ins var lág og móðirin bafði forboða fæðingarkrampa á með-
göngutímanum. Það er mjög sennilegt, að krampaköst þau, er
barnið bafði rétt eftir fæðingu, hafi stafað al' blóðsykurskorti.
Eftir að barnið liafði verið einkennalaust um langt skeið, fór aftur
að bera á krampaköstum vegna lágs blóðsykurs eftir langa föstu.
Þó að blóðsykurskortur i börnum lýsi sér oft með krampa-
köstum, er vert að muna, að einkennin geta verið mun vægari
og þar af leiðandi auðveldlega rangtúlkuð. Skyndilegur sljóleiki,
slagandi göngulag, rangeygð (strabismus) o. s. frv. eru einkenni,
sem virðast næstum þvi sérstæð (pathognomonic) fyrir sjúklinga
með blóðsykurskort. Líkamshiti er oftast óeðlilega lágur.21 Þegar
öll þessi einkenni koma fram, er um blóðsykurskort að ræða, þar
til annað liefur sannazt.
Seinni sjúkrasagan gefur dæmi um blóðsykurskort og ský á
augum í sama sjúklingnum. Þar sem sjúklingum með báða þessa