Læknablaðið - 01.04.1968, Qupperneq 40
LÆKNABLAÐIÐ
68
blikum eftir að lolbutamide hefur verið gefið. Ef serum-insúlin
er liærra en 100 microeiningar/ml á fyrstu 5 minútunum, er
næstum öruggt, að um insúlinæxli er að ræða.
Blóðsýnishorn, sem er tekið, þegar sjúklingurimi er með blóð-
sykurskort, getur gefið mikilvægar upplýsingar. Ef serum-insúlín
i þessu sýnishorni er hærra en 1 microeiningar/ml og blóðsykur
á sama tíma er undir -10 mg/100 ml, bendir það lil insúlinsæxlis
eða eyjafrumuauka.
Álitið var, að illkynja eyjafrumuæxli kæmu ekki fyrir hjá
börnum undir 18 ára aldri.2. 1S Þó hefur verið skýrt frá einu til-
felli í níu ára stúllcu,20 og' er því rétt að hafa þénnan sjúkdóm í
liuga, þegar verið er að rannsaka börn með blóðsykfurskort.
Eyjafrumauki er mun algengari í börnum en eyjafrumuæxli.
Þessir sjúklingar hafa lágan blóðsykur samfara háu serum-insúlíni
eins og sjúklingar með æxli. Ákvarðanir á blóðsykri og serum-
insúlíni bafa verið gerðar á fullorðnum sjúklingum, bæði eftir
föstu og tolbutamide-þolpróf, en hingað til liáfa aðeins l'á börn
með þennan sjúkdóm verið rannsökuð.
Blóðsykurskortur vegna leucine-næmis (Leucine
aggravated livpogljæemia)
Á síðari árum hefur í lækningatimaritum verið skýrt frá ung-
börnum, sem hafa tilhneigingu lil að fá blóðsykurskort um það
bil hálftíma el'tir, að þau hafa borðað fæðu, sem er rík af leucine.
Algengasta fæðutegundin af þessu tagi er mjólk. Undir eðlilegum
kringumstæðum örvar ieucine insúlímnyndun. Ef heilbrigðu fólki
er gefið leucine, lækkar Ijlóðsykur verulega, einkum eftir líkam-
legt erfiði. Það er mjög athyglisvert, að leucine veldur talsverðri
lækkun á blóðsykri í sjúklingum með insúlínæxli.
Leucine-þolpróf er framkvæmt með því að gefa 150 mg/kg af
leucine sem inntöku eða 75 mg/kg í æð. Cochran4 telur leucine-
þolprófið jákvætt, ef blóðsvkur lækkar sem nemur 50% af fast-
andi blóðsykri, og Fajans14 álítur það jákvætt, þegar blóðsykur
lækkar um 20 mg/100 ml (20 mg %), þegar leucine er gefið
sem inntaka, eða 25 mg/100 ml, þegar það er gefið i æð. Ef serum-
insúlín er mælt samtímis, er hækkun upp í 40 microeiningar
eða meira talið óeðlilegt.
Börn með leucine-næmi, sem eru á venjulegu fæði, hafa oflast
fastandi blóðsykur á milli 30 og 50 mg/100 ml. Ef þau eru á
l'æði, sem er snautt af leucine, er blóðsykur því sem næst eðlilegur,