Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1968, Page 52

Læknablaðið - 01.04.1968, Page 52
78 LÆKNABLAÐIÐ nú vera tilbúið, en það hefur ekki enn þá verið lagt fyrir stjórn L. R. Síðari fundurinn var haldinn 11. 10. 1967, og fjallaði hann um nefndarálit um framtíðarskipulag spítalalæknisþjónustunnar, sem þá hafði birzt í Læknablaðinu. Áður hafði verið haldinn umræðufundur um þetta mál 15. 2. 1967. Fundurinn var mjög fjölmennur, og voru fjörugar umræður um nefndarálitið yfirleitt. í lok fundarins var sam- þykkt tillaga frá Arinbirni Kolbeinssyni og Ásmundi Brekkan svo- hljóðandi: „Almennur fundur í L. R., lialdinn 11. 10. 1967, lýsir stuðn- ingi sínum við meginatriði í niðurstöðu nefndar um framtíðarskipulag spítalalæknisþjónustunnar, sbr. Læknablaðið 1.—2. hefti 1967. Fundur- inn felur ,stjórninni að vinna áfram að framkvæmd með hliðsjón af tillögum og leggja í byrjun áherzlu á breytingu á samstarfi sjúkrahúsa, starfskerfi þeirra, stofnun læknaráða og setningu lágmarksstaðals fyrir deildarskipt sjúkrahús." Með samþykkt tillögunnar má segja, að stefna L. R. í sjúkrahúsmálum, byggð á áliti nefndarinnar, hafi verið mörkuð. Svipuð tillaga var samþykkt á aðalfundi L. í. í Domus Medica hinn 15. marz 1967. í framhaldi af fyrrgreindum samþykktum hljóta lækna- félögin því að hefja hið fyrsta baráttu fyrir þeim málum, sem um getur í tillögunni, og þá fyrst og fremst fyrir því, sem telja má mikil- vægast, en það er setning lágmarksstaðals fyrir a. m. k. deildarskipt sjúkrahús. Allir fundirnir, að undanskildum spítalafundum og einum fundi, sem haldinn var að Hótel Sögu, hafa verið haldnir í Domus Medica. Fundarsókn hefur verið í meðallagi, 30—40 manns sótt fundina að jafnaði. Fundir í stjórn og meðstjórn voru alls 16 á árinu. Eru fundir haldnir reglulega í byrjun hvers mánaðar nema sumarmánuðina, en aukafundir, ef þurfa þykir vegna mikilvægra mála. Öll mikilvæg mál Læknafélags Reykjavíkur hafa verið rædd á fundum með stjórn og meðstjórn, og hefur ríkt mikill einhugur með þessum aðilum á starfstímabilinu. Stjórnarfundir hafa alls verið 36, en stjórnin hefur haldið reglu- lega fundi í hverri viku nema sumarmánuðina. Stjórnin hefur auk þess setið marga sameiginlega fundi með stjórn L. í., ef um hefur verið að ræða efni eða mál, er varða bæði félögin. Þá hefur stjórnin setið fundi með stjórn Domus Medica um þau mál, er varða skipti L. R. við þá stofnun. Loks voru í byrjun starfsársins haldnir nokkrir fundir með heil- brigðismálaráðherra og starfsmönnum ráðuneytisins vegna skipunar í yfirlæknisembætti á taugasjúkdómadeild Landspítalans og Vífils- staðahæli. í heild má segja, að fundarhöld hafi verið minni en á fyrra ári núverandi stjórnar, og stafar það fyrst og fremst af því, að nokkurrar fundarþreytu virðist hafa gætt hjá félagsmönnum eftir þá fjölmörgu fundi, er haldnir voru í sambandi við kjaramál lækna á hinu fyrra ári. Starfsemi Starfsemi skrifstofu læknafélaganna hefur verið ofar- skrifstofunnar lega á baugi með stjórnum L. í. og L. R. undanfarið. Nokkurrar gagnrýni hefur gætt af hálfu lækna á starfsemi skrifstofunnar, fyrst og fremst vegna þess, að kostnaður við
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.