Læknablaðið - 01.04.1968, Page 65
LÆKNABLAÐIÐ
83
sérfræðingar, með því fráviki, að sjúklingar þyrftu ekki tilvísanir, en
kvittuðu fyrir veitta þjónustu hverju sinni. Segja má, að fyrirkomulag
þetta, sem er merkilegt nýmæli, hafi gefizt mjög vel, og hafa ekki
borizt neinar kvartanir, hvorki frá sjúklingum né læknum. Þá er þetta
fyrirkomulag mjög til hagsbóta fyrir þá yngri lækna, sem setzt hafa hér
að nýlega, og þá, er setjast vilja að sem augnlæknar hér í borginni.
í sambandi við 4. lið hér að framan vill stjórn L. R. taka þetta
fram: Af hálfu Tryggingarstofnunar ríkisins og Sjúkrasamlags Reykja-
víkur var þess eindregið óskað, að ákvæði samninga um, að einstakir
læknar gætu sagt sig undan þeim og starfað fyrir utan þá, yrði fellt
niður. Helztu rök þessara aðila voru þau, að með þessu ákvæði gætu
einstakir læknar, einkum í hinum þrengri sérgreinum, tekið sér sjálf-
dæmi um greiðslur fyrir störf sín og jafnvel komið i veg fyrir, að
tryggðir félagar sjúkrasamlaga gætu notið læknishjálpar, sem þeim
bæri samkvæmt almannatryggingarlögum. L. R. taldi sig ekki geta
fallizt á þessa breytingu, þar sem hér væri um að ræða skerðingu á
starfsfrelsi lækna, sem ekki mundi eiga sinn líka, a. m. k. meðal lýðræðis-
þjóða, en að hér yrði að skírskota til ábyrgðartilfinningar lækna og
þeirrar starfsskyldu, að þeir veiti öllum læknishjálp, sem á henni þurfa
að halda.
Launanefnd Nefndina skipuðu á síðastliðnu ári Víkingur H. Arnórsson
formaður, Guðmundur Árnason ritari og Sigmundur
Magnússon.
Öllum samningum við ríki og Reykjavíkurborg var sagt upp með
tilskildum fyrirvara, og gengu þeir úr gildi 1. júlí 1967.
Var um þrenns konar samninga að ræða við hvorn aðila:
1. Konsulentasamningar, gerðir fyrri hluta árs 1964.
2. Samningar um laun sjúkrahúslækna, gerðir 1966.
3. Samningar um laun læknakandídata, gerðir síðar á árinu 1966.
Þær breytingar urðu nú á samningum við stjórnarnefnd ríkis-
spítalanna, að gerður var aðeins einn samningur í stað þeirra þriggja,
sem áður höfðu verið í gildi. Var samið á grundvelli eyktasamningsins
frá 1966.
Taka nú konsulentar laun eftir þeim samningi, þó þannig, að þeir,
sem áður störfuðu eftir gamla samningnum, mega vinna eftir honum
áfram, ef þeir vilja það heldur.
Kandídatasamningurinn frá 1966 var felldur óbreyttur inn í þann
samning, sem nú var gerður, og er fjallað um hann í sérstakri grein.
Þá var nú tekið nýtt ákvæði inn í eyktasamninginn, sem fjallaði
um þóknun til þeirra sérfræðinga, er taka að sér yfirlæknisstörf um
lengri tíma en tíu daga í senn.
Ekki voru gerðar aðrar efnislegar breytingar á eyktasamningnum
frá 1966. Ýmsar breytingar, sem launanefnd lagði til, að gerðar yrðu,
þóttu koma í bága við verðstöðvunarlögin, sem 1 gildi voru á síðast-
liðnu ári, og náðu því ekki fram að ganga.
Samningurinn gildir til 1. júlí 1968. Hefur samningnum verið
sagt upp með sex mánaða fyrirvara, þar sem hann framlengist annars
sjálfkrafa um tvö ár.