Læknablaðið - 01.04.1968, Qupperneq 66
84
LÆKNABLAÐIÐ
Við Reykj avíkurborg voru gerðir þrenns konar samningar:
1. Samningurinn frá 1966 um laun sjúkrahúslækna var fram-
lengdur með þeim breytingum, að kveðið er nú á um, að sér-
fræðingur, sem gegnir störfum yfirlæknis, t. d. í orlofi eða
veikindaforföllum hans, skuli fá greidd yfirlæknislaun þann
tíma. í öðru lagi var bætt inn í samninginn nýrri grein, þar
sem Reykj avíkurborg .skuldbindur sig til að ráða ekki í þjónustu
sína aðra lækna en þá, sem eru félagsmenn í Læknafélagi ís-
lands eða svæðafélögum þess.
2. Kandídatssamningurinn var framlengdur óbreyttur.
3. Gerður var samningur fyrir lausráðna sérfræðinga, tölulega
samhljóða eyktakerfissamningum við stjórnarnefnd ríkisspítal-
anna. Þessi samningur er þó hagstæðari að því leyti, að læknar,
sem vinna eftir honum, halda hlunnindum óskertum, t. d.
launum í sumarleyfi og í veikindaforföllum.
Síðastnefndi samningurinn gildir frá 1. janúar til 1. júlí 1968, en
tveir fyrrtöldu samningarnir við Reykjavíkurborg gilda frá 1. júlí 1967
til jafnlengdar 1968.
Til skýringar skal þess getið, að kandídatasamningarnir, sem
minnzt er á hér á undan, eru í því einu frábrugðnir samningum annarra
sjúkrahúslækna, að kandídatar, sem ráðnir eru til skemmri tíma en
sex mánaða, fá ekki greiðslur í lífeyrissjóð frá atvinnurekanda, eins
og þeir, sem ráðnir eru til sex mánaða eða lengur. Að öðru leyti taka
nýútskrifaðir læknakandídatar laun eftir 1. launastigi samninganna.
Eins og áður hefur í ótal tilfellum verið leitað til launanefndar
um upplýsingar og fyrirgreiðslu, t. d. um gerð og túlkun samninga,
og hefur launanefnd leitazt við af fremsta megni að veita ráð og
aðstoð í slíkum tilfellum.
Gjaldskrárnefnd í nefndinni eiga sæti Guðmundur Björnsson, Jósef
Ólafsson og Halldór Arinbjarnar. Nefndin hefur
haldið allmarga fundi á árinu og eins og áður safnað frá sérgreina-
félögum tillögum um nýja og breytta liði í gjaldskrá félagsins og sett
þá inn í gjaldskrána. Gjaldskráin var stytt nokkuð með því, að nokkrir
liðir, sem áður stóðu á tveimur stöðum í gjaldskránni, koma nú einungis
á einum stað. Gjaldskráin var hækkuð samkvæmt verð- og kaupgjalds-
hækkunum í landinu síðastliðið ár. Gjaldskráin 1968 hefur verið prentuð
og undanfarna daga send félagsmönnum. Það er ákveðin tillaga nefndar-
innar, að samninganefndir félagsins styðjist við gjaldskrána við samn-
ingagerðir.
Sjúkrahúsmálanefnd í nefndinni eru Sigmundur Magnússon, Arin-
björn Kolbeinsson og Þórarinn Guðnason.
Nefndin hefur haldið einn fund á árinu, þar sem einn nefndar-
manna, Arinbjörn Kolbeinsson, form. L. í., vann ásamt öðrum stjórnar-
mönnum L. í. að undirbúningi að ráðstefnu um yfirstjórn heilbrigðis-
mála, sem jafnframt myndi fjalla um sjúkrahúsmál. Þótti ekki ástæða
til að svo komnu máli, að nefndin starfaði frekar á starfstímabilinu.