Læknablaðið - 01.04.1968, Qupperneq 73
LÆKNABLAÐIÐ
89
Þegar svokallaðri verðstöðvun er nú lokið, þykir einsýnt, að afla
verði blaðinu meiri tekna með hækkuðum auglýsingataxta og hækkuðu
áskriftarverði. Framkvæmdarstjóra læknafélaganna var falið að gera
athugun á auglýsingaverði í sambærilegum tímaritum, og komst hann
að þeirri niðurstöðu, er hann hafði ráðfært sig við ýmsa aðila, sem til
þekktu, að auglýsingaverðið þyrfti að hækka minnst um 100% og
áskriftarverð um 20—30% til að ná samræmi við önnur sambærileg
blöð eða tímarit.
Á sameiginlegum stjórnarfundi L. í. og L. R. var ákveðið að láta
þessa hækkun koma til framkvæmda frá og með fyrsta tölublaði 1963,
þó þannig, að áskriftarverð til lækna stæði í stað, en eins og kunmigt
er, eru áskriftargjöld Læknablað.sins innifalin í þeim árgjöldum, sem
iæknar greiða til félagsins. Þótti því ekki ástæða til að hækka þau
að sinni.
Þá var einnig um það rætt, að bæta þyrfti frágang blaðsins og
pappír, en kvartanir hafa borizt frá auglýsendum, einkum erlendum
fyrirtækjum, um, að auglýsingapappír blaðsins væri allt of þunnur,
þannig að lesa mætti í gegn auglýsingu á næstu blaðsíðu.
Til þess að koma að nokkru leyti til móts við óskir auglýsenda,
svo og til að réttlæta að nokkru leyti hækkun á auglýsingaverði, hefur
því verið ákveðið að bæta gæði auglýsingapappírsins og enn fremur
að vanda meira til frágangs á auglýsingum, þótt af því verði nokkur
kostnaðarauki. Eins og áður kom fram, hækkar eintakafjöldi Lækna-
blaðsins úr 600 í 700 á árinu 1968, og eykur það að sjálfsögðu auglýsinga-
gildi blaðsins.
Vegna þeirrar sérstöðu, sem Læknablaðið hefur varðandi auglýs-
ingar á lyfjum og lækningavörum, verður að telja, að þrátt fyrir þessa
hækkun muni þeim fyrirtækjum, sem auglýsa í blaðinu, ekki fækka
verulega. Má því búast við verulega auknum tekjum af þeirri hækkun,
sem hér hefur verið rætt um. Einnig mætti vinna meira að því að safna
auglýsingum í blaðið, en fram að þessu hefur það ekki verið gert í
nógu ríkum mæli.
Á síðastliðnu sumri heimsótti framkvæmdar.stjóri læknafélaganna
sænska læknafélagið, og kynnti hann sér þá um leið rekstur lækna-
blaðsins þar. Komst hann að raun um, að sænska læknablaðið skilar
það miklum hagnaði, að hægt er að halda niðri árgjöldum félagsins
með tekjuafgangi blaðsins, en blaðið hefur sameiginlegan fjárhag með
sænska læknafélaginu. Þetta byggist fyrst og fremst á háu auglýsinga-
verði, en að sjálfsögðu er sænska læknablaðið gefið út í miklu stærra
upplagi og meira vandað til pappírs og frágangs á blaðinu. Sama mun
vera að segja um læknablöð hinna Norðurlandanna, þótt ekki lig'gi
fyrir um það nákvæmar upplýsingar.
Með þeim breytingum, sem fyrirhugaðar eru á auglýsingataxta og
áskriftarverði Læknablaðsins, má búast við, að fjármál þess batni
verulega, en ekki þótti fært að .stíga stærra skref að sinni, að því er
varðar tekjuöflun til blaðsins, enda þótt æskilegt hefði verið að notfæra
sér meir þá sérstöðu, sem blaðið hefur sem auglýsandi fyrir lyfjafram-
leiðendur. Er þá höfð hliðsjón af þeim samdrætti, sem nú er í viðskipta-