Læknablaðið - 01.04.1968, Page 74
90
LÆKNABLAÐIÖ
lífinu, svo og því, að erfitt er að sjá, hvað fram undan er í verðlags-
málum yfirleitt.
Domus Medica Svo sem venja er til, mun Bjarni Bjarnason, formaður
stjórnar Domus Medica, flytja skýrslu um stofnunina
á aðalfundi.
Á liðnu starfsári, má segja, að skipti stjórnar Domus Medica og
Læknafélags Reykjavíkur hafi verið allgóð. Hinu ber ekki að leyna,
að nokkurs skoðanamunar hefur gætt hjá stjórnum læknafélaganna
annars vegar og stjórn Domus Medica hins vegar um ýmis atriði, er
varða þessi skipti. Telja stjórnir læknafélaganna, að þeim beri meiri
íhlutunarréttur um stjórn hússins en segir í núverandi reglugerð. Reglu-
gerðin um sjálfseignarstofnunina Domus Medica er hins vegar lítið
sveigjanleg, og eini réttur, sem læknafélögin hafa í sambandi við af-
skipti af stjórn Domus Medica, eru þau, að þau hafa rétt til að sam-
þykkja eða neita að samþykkja þá menn í stjórn Domus Medica, sem
reglulega eiga að ganga úr ár hvert. Stjórn Domus Medica ber að
tilkynna læknafélögunum um kjör þessara manna og senda tillögur um
kjörið, áður en kosning fer fram.
í tilefni síðustu kosningar í stjórn Domus Medica, sem stjórnir L. í.
og L. R. samþykktu, var stjórn Domus Medica skrifað bréf, þar sem
þess var farið á leit, að gerð yrði breyting á reglugerð Domus Medica
á þá lund, að stjórnir læknafélaganna ættu alltaf að minnsta kosti einn
fastan fulltrúa í stjórn Domus Medica. Þá hefur nokkuð verið um það
rætt, í hvaða formi framlag læknafélaganna til Domus Medica ætti að
vera. Virðist nú svo sem samkomulag muni nást um, að framlagið
skoðist framvegis sem lán til Domus Medica, og verði sett .sérstök
ákvæði um greiðslur og vaxtakjör.
Lífeyrissjóður Eins og félagsmönnum mun kunnugt, var stofnaður
lækna Lífeyrissjóður lækna í árslok 1966, Á stofnfundi sjóðs-
ins, sem haldinn var miðvikudaginn 28. des. 1966, var
kosin bráðabirgðastjórn, sem starfa skyldi til aðalfundar hans. í stjórn
voru kosnir þeir Arinbjörn Kolbeinsson, Páll Sigurðsson og Kjartan
Jóhannsson, en sömu aðilar skipuðu nefnd þá, er unnið hafði að undir-
búningi sjóðsins og að tryggingarmálum lækna yfirleitt.
Aðalverkefni bráðabirgðastjórnarinnar var að fá reglugerð þá um
sjóðinn staðfesta, er lögð hafði verið fram á stofnfundi hans og samin
hafi verið af Guðjóni Hansen tryggingarfræðingi. Það var því fyrsta
verk stjórnarinnar að senda fjármálaráðherra reglugerðina til athugunar
og staðfestingar, en staðfesting ráðherra á reglugerðinni felur aðal-
lega 1 sér tvennt, annars vegar að flytja má í sjóðinn innistæður
úr öðrum lífeyrissjóðum, bæði framlag launagreiðenda og vinnuveit-
enda, og hins vegar, að iðgjald til sjóðsins fæst frádregið tekjum til
skatts og útsvar.s, þó að ákveðnu hámarki.
Ráðherra sendi sérfræðingi fjármálaráðuneytisins í tryggingar-
málum, Guðmundi K. Guðmundssyni tryggingarfræðingi, reglugerðina
til athugunar, og gaf hann umsögn um reglugerðina, sem var á þann
veg, að hann sæi ekki ástæðu til að staðfesta þennan lífeyrissjóð. Til-
greindi hann nokkrar ástæður, en helztar voru þær, að óvenjulegt væri