Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1968, Page 76

Læknablaðið - 01.04.1968, Page 76
92 LÆKNABLAÐIÐ Stjórn Lífeyrissjóð.sins ákvað á fundi sínum hinn 15. okt. að hefja útlán úr sjóðnum, og skyldu þau vera í víxilformi, þ. e. a. s. lán til skamms tíma, en skv. reglum sjóðsins verða þó slík lán að vera tryggð með veði í fasteign. Bréf um þetta efni var sent sjóðfélögum 1. nóv. 1967, og skyldi umsóknum um lán skilað á skrifstofu læknafélaganna. Lánsumsóknum þessum þurfti að fylgja annars vegar veðbókarvottorð fyrir þá eign, sem lánið skyldi tekið út á, og hins vegar brunabótamat fyrir sömu eign. Afgreiddar hafa verið 15 lánsumsóknir, þ. e. a. s. allra þeirra, sem sóttu um lán úr sjóðnum, og hefur sjóðurinn þannig bætt úr brýnni þörf lækna, sem hafa þurft á skyndilánum að halda. Vonir standa til, að sjóðurinn geti farið að veita hærri lán og til lengri tíma eftir tvö til þrjú ár, en ekki er vitað, hvað sú upphæð verður há. Til glöggvunar skal tekið fram, að ekkert er því til fyrirstöðu, að læknar séu bæði í Elli- og örorkutryggingarsjóði lækna og hinum nýstofnaða Lífeyrissjóði lækna, en þeir, sem vinna eftir samningum við sjúkrasamlög og Tryggingarstofnun, verða að láta stjórnir lífeyris- sjóðanna vita, í hvorn sjóðinn iðgjöld þau eiga að renna, sem koma inn þeirra vegna. Þetta verður bezt gert með því að tilkynna bréflega í þríriti skrifstofu læknafélaganna, hvort óskað er eftir, að iðgjöld af læknisstörfum renni í Lífeyrissjóð lækna eða Elli- og örorkutryggingar- sjóð lækna, og mun skrifstofan þá senda eitt eintak sjúkrasamlaginu og annað Elli- og örorkutryggingarsjóði lækna, ,svo að enginn vafi leiki á þvi, hvert iðgjöldin eiga að renna. Nokkrir héraðslæknar hafa gerzt aðilar að sjóðnum, svo og nokkrir læknar við nám eða vinnu erlendis. Hóptryggingar Samningur sá, sem Læknafélag Reykjavikur gerði á lækna síðastliðnu ári við tryggingarfélagið Förenada Liv í Svíþjóð, rann út í árslok 1967. Fyrirtækið hafði þá lýst yfir því, að það óskaði ekki eftir að endurnýja þann samning, og ákvað stjórn Læknafélagsins að leita fyrir sér um sams konar trygg- ingar á öðrum markaði. Var því haft samband við íslenzku tryggingar- félögin, en vitað var, að í undirbúningi var ein.s konar samsteypa íslenzku líftryggingarfélaganna í því skyni að koma á hóptryggingu hér á landi. Einnig barst Læknafélaginu vitneskja um, að Hagtrygging h.f. væri að leita fyrir sér um hóptryggingar, endurtryggðar á erlendum markaði. En Hagtrygging hafði haft milligöngu um þær tryggingar, sem Læknafélagið hafði hjá Förenada Liv. Skömmu fyrir áramót 1967 voru boðaðir á fund stjórnar Lækna- félags Reykjavíkur fulltrúar frá Hagtryggingu h.f. og samsteypu líf- tryggingarfélaganna, þeirri sem áður getur. Kom þá í ljós, að Hagtrygg- ing h.f. hafði ákveðið tilboð fram að færa um hóptryggingar, áþekkar þeim, sem höfðu áður verið í gildi, en samsteypa sú, sem íslenzku liftryggingarfélögin stóðu að, höfðu ekki ákveðið tilboð í sjúkratrygg- ingar, aðeins í líftryggingar og slysatryggingar. Tilboð þessi voru lögð fyrir sérfræðing Læknafélagsins í trygg- ingarmálum, Guðjón Hansen, og taldi hann að athuguðu máli, að rétt væri að ganga að tilboði Hagtryggingar h.f., að minnsta kosti með
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.