Læknablaðið - 01.04.1968, Síða 78
94
LÆKNABLAÐIÐ
skaða vegna slyss, hvort sem slys verður í vinnu eða utan, svo og við
lömunarveiki, greiðist lækniskostnaður og tannviðgerðir samkvæmt
tryggingarskilmálunum, svo framarlega sem þessar bætur eru ekki
greiddar annars staðar frá samkvæmt lögum eða sérstöku samkomulagi.
Sjúkratrygging:
Sjúkrabætur eru greiddar vegna veikinda, eftir að biðtíma lýkur,
og greiðist ofannefnd upphæð við algeran starfsorkumissi, ef hann er
50% eða meiri. Bætur greiðast fyrir sjúkdóm þann eða slys, sem olli
starfsorkumissi og meðan starfsorkumissir er fyrir hendi, þó ekki lengur
en til þess aldurs tryggða, sem segir í hópsamningi, eða um þann
tíma, sem tiltekinn er í tryggingarskilmálum, ef um er að ræða sjúkdóm
eða slys, sem valdið hefur starfsorkumissi, áður en aðili gekk 1 trygg-
ingu.
Eyðublöð um heilsufarslýsingu, sem jafnframt teljast umsókn um
nefnda hóptryggingu, fást hjá Hagtryggingu h.f., Eiríksgötu 5, eða á
skrifstofu læknafélaganna í Domus Medica.
Það skal að lokum tekið fram, að af iðgjöldum þeim, sem greidd
eru fyrir frjálsar tryggingar, eru kr. 6.000.00 frádráttarbærar til skatts,
þegar menn greiða í Lífeyrissjóð, annars kr. 9.000.00.
Læknamiðstöðvar Á árinu .stofnuðu sérfræðingarnir Jónas Bjarnason,
Haukur Jónasson, Sæmundur Kjartansson, Tómas
Á. Jónasson, Guðjón Lárusson og Ragnar Karlsson vísi að samstarfi,
Læknastöðina. Þá ber að geta þess, að vísir að samstarfi heimilislækna
er nú fyrir hendi, þar sem L. R. hefur nú samþykkt fyrir sitt leyti, að
læknarnir Guðmundur B. Guðmundsson og ísak Hallgrímsson fái að
starfa saman .sem heimilislæknar á þann hátt, að sjúklingar velji þá
sameiginlega og þeir skipti launum og störfum jafnt. Það er mjög
mikilsvert, að hópsamstarf lækna skuli vera hafið, þó að segja megi,
að enn sé vísirinn mjór.
Það hlýtur að vera hlutverk Læknafélags Reykjavíkur að stuðla
að samstarfi lækna, bæði til þess að unnt sé að veita sjúklingunum
betri þjónustu, og svo til þess að veita læknunum viðunandi starfs-
skilyrði.
Bæjarvaktin Nú má eygja þann dag, er Slysavarðstofan flyzt úr
núverandi húsnæði í hinn nýja Borgarspítala í Fossvogi.
í tilefni þessa skrifaði stjórn L. R. stjórn Sjúkrasamlags Reykjavíkur
og borgarlækni bréf, þar sem farið var fram á viðræður við þessa aðila
um það, hvernig skipuleggja ætti vaktþjónustuna, er Slysavarðstofan
flytti úr núverandi húsnæði. Mál þetta hefur verið rætt á fundum
stjórnar og meðstjórnar, og hefur það verið einróma álit, að þjónusta
þessi ætti í framtíðinni að vera í Borgarspítalanum.
Formaður L. R. hefur .setið á tveimur fundum með yfirlækni Slysa-
varð.stofunnar, borgarlækni, borgarritara ogframkvæmdarstjóra Borgar-
spítalans, þar sem þessi mál hafa verið rædd, og hefur komið í ljós,
að erfiðleikar eru á að fá þjónustu þessa flutta í Borgarspítalann. For-
maður L. R. hefur á fundum þessum túlkað sjónarmið stjórnar og með-