Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.12.1968, Side 37

Læknablaðið - 01.12.1968, Side 37
LÆKNABLAÐIÐ 255 Mikill áhugi á heilbrigðismálum kom fram á ráðstefnunni, mæl- endaskrá var oft löng og ræðutími takmarkaður. Fundarstjórar voru Jón ísberg sýslumaður og Guðmundur Ingvi Sigurðsson hæstaréttarlögmaður. Um 50 ræður voru fluttar á ráðstefnu þessari. Samþykktir voru hins vegar ekki gerðar, enda eigi til þess ætlazt, að þetta væri álykt- unarráðstefna, heldur fyrst og fremst fræðslu- og kynningarráðstefna. Ætlunin er, að framsöguerindi verði síðar birt í Læknablaðinu. h) Könnun á starfsskilyrðum héraðslœkna Á framhaldsaðalfundi L.í. 1967 kom fram sú hugmynd, að gagn- legt væri, að L.í. beitti sér fyrir athugun á starfsaðstöðu og aðbúnaði héraðslækna almennt. Hefur slík heildarkönnun aldrei farið fram. Þótt eðlilegra megi teljast, að heilbrigðisyfirvöld beiti sér fyrir því máli, er ekki líklegt, að svo verði, og var því talið nauðsynlegt, að læknasamtökin tækju þetta mál til athugunar. Stjórn L.í. samdi sérstakan spurningalista fyrir þessa skoðana- könnun og ritaði öllum héraðslæknum bréf og sendi þeim listann. Síðar voru héraðslæknar heimsóttir af fulltrúum Læknafélags íslands, en ekki tókst að hafa þannig persónulegt samband við alla, áður en vegir lokuðust síðastliðið haust. Enn eru ófengnar upplýsingar úr nokkrum héruðum. Unnið er að úrvinnslu þessara gagna. Er líklegt, að niðurstöður um ýmis atriði liggi fyrir á næsta aðalfundi L.Í., en úrvinnslu verður þó eigi lokið að öllu. i) Ályktun um rannsóknir á skipulagi heilbrigðisþjónustu Líta má þannig á, að þetta mál hafi þegar verið tekið til athugunar með skipun samstarfshóps þess, sem vinnur að athugun á yfirstjórn heilbrigðismála og L.í. á aðild að. 4. Samband L.í. Læknafélagi íslands barst bréf, dags. 9. ágúst 1967, við BHM frá stjórn BHM, þar sem óskað var eftir samstarfi við L.í. um að senda fulltrúa á ársþing SACO í Sviþjóð í ágúst 1967. Var afráðið, að framkvæmdastjóri læknafélag- anna, Sigfús Gunnlaugsson, færi þessa för. Samdi hann skýrslu um ferðina, og fylgir hér með útdráttur úr henni: „Að beiðni formanns Læknafélags íslands sótti ég undirritaður ráðstefnu SACO (Sveriges Akademikers Centralorganisation) í Sví- þjóð dagana 21.—26. ágúst 1967. Ráðstefnan var haldin í Sundbyholmsslott, skammt frá Eskilstuna, en það er gamall kastali, sem búið er að breyta í sumarhótel. Þátttakendur í ráðstefnunni voru 32 frá hinum ýmsu félögum sænskra háskólamanna, auk erlendra gesta á ráðstefnunni, en þeir voru: 1. Helge Hofsen frá Norges Akademikersamband, 2. Mogens Holm frá Akademikernes Samarbejdsudvalg í Kaupmanna- höfn,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.