Læknablaðið - 01.12.1968, Síða 51
LÆKNABLAÐIÐ
267
12. Lífeyrissjóður Lífeyrissjóður lækna hefur eflzt, og stöðugt bætast
lækna fleiri í hóp sjóðsfélaga.
Eignir sjóðsins eru nú rúmar 4 milljónir kr. Varð-
andi skattamál, þá er fengin viðurkenning frá skattayfirvöldum, að
framlög í sjóðinn, eins og gert er ráð fyrir í reglugerð hans, það er um
60.000 kr. á ári, verði frádráttarbær til skatts.
13. Hóptrygging Læknafélag Reykjavíkur hefur skýrt stjórn L.í. frá
Iækna því, að það hafi leitað tilboða í innlendar hóptrygg-
ingar og hafi Guðjón Hansen tryggingafræðingur
úrskurðað tilboðin og talið tilboð Hagtryggingar h.f. heppilegast. Geng-
ið hefur verið frá hóptryggingu sjúkrahússlækna og sérfræðinga í
Reykjavík. Stefnt verður að því, að læknar alls staðar á landinu geti
orðið aðilar að þessari tryggingu, ef nægileg þátttaka fæst. Útdráttur
úr skilmálum fylgir hér með:
HÓPTRYGGING LÆKNA — UPPLÝSINGAR OG SKILMÁLAR
Hagtrygging h.f. hefur gert eftirfarandi tilboð í hóptryggingu
lækna, sem L.R. hefur ákveðið að ganga að til að byrja með.
Bœtur:
Líftrygging kr. 1.000.000.00, sem greiðist við dauðsfall. Slysatrygg-
ing kr. 850.000.00, sem greiðist við 100% örorku, og hlutfallslega
við minni örorku.
Sjúkratrygging kr. 20.000.00 á mánuði í þrjú ár að frádregnum
biðtíma, sem er einn mánuður.
Iðgjald fyrir ofangreinda tryggingu er nálægt kr. 9.000.00 á ári og
greiðist ársfjórðungslega.
Iðgjald fyrir hóp þann, er þegar hefur verið tryggður (þ. e. sjúkra-
húslækna), er kr. 8.690.00, en getur breytzt til hækkunar eða lækkunar
eftir aldursdreifingu eða heilsufarsyfirlýsingum meðlima nýrra hópa,
sem myndaðir kunna að verða. Stefnt er að því, að L.R. eða jafnvel L.í.
verði tryggingartaki, og má þá e. t. v. vænta hagstæðari iðgjalda.
Skilmálar:
Eftirfarandi er mjög stuttur útdráttur úr skilmálum um hóptrygg-
inguna, en skilmálarnir í heild, sem eru um 17 vélritaðar síður, liggja
frammi á skrifstofu læknafélaganna til athugunar fyrir félagsmenn.
Líftrygging:
Greiðsla fer fram, ef tryggingartaki deyr á tryggingartímabilinu.
Hver tryggður einstaklingur telst tryggingartaki að tryggingunni
á lífi sínu. Bótaþegi er maki hins tryggða, ef um er að ræða, ann-
ars erfingjar hans. Sé óskað eftir því, að upphæðinni verði ráð-
stafað á annan hátt, þarf að leggja inn sérstaka skriflega beiðni í
þá átt.