Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1969, Page 30

Læknablaðið - 01.02.1969, Page 30
4 LÆKNABL AÐIÐ 2. mynd Miðeyrað opnað. Efst á myndinni til hægri sést steðjaendi og ístað. smásjár til aðgerða né heldur fúka- eða súlfalyf til að koma í veg fyrir bólgur og ígerðir eftir á. Árið 1938 tóku Frakkinn Sourdille og Bandarikjamaðurinn Lempert hvor í sínu lagi að gera svonefnda gluggaaðgerð, sem bvggð var á löngu brautrvðjendastarfi Ungverjans Báránys, Sví- ans Holmgrens o. fl. Þessi aðgerð var í því fólgin, að gluggi var gerður á einn bogagang völundarhússins og liúð grædd vfir þennan glugga. Heyrnin batnar oftast þó nokkuð við þessa aðgerð, en hún hefur ýmsa galla. Til þess að komast að bogaganginum þarf að gera allstóran afhelli út frá eyrnagangi. Slík hola þarfnast eftirlits hjá lækni alla ævi, og ofl lielzt meiri eða minni útferð úr henni. I öðru lagi hefur reynslan orðið sú, a. m. k. í þeim til- fellum, sem ég hef baft kynni af, að heyrnin smádvínar aftur, þegar frá líður. Loks eru þetla mjög vandasamar aðgerðir, en árangur þó mun lakari en af þeim ístaðsaðgerðum, sem síðan hafa komið til sögunnar. Árið 1952 birti Bandaríkjamaðurinn Rosen grein um árangur af aðgerð, sem hann nefndi ístaðslosun. Sú aðgerð er í því fólgin, að stjakað er við hinu fastgróna ístaði, þangað til það losnar og endurheimtir að mestu eða öllu sinn eðlilega hreyfanleika. Yið þetta batnar heyrnin. Aðgerðin er framkvæmd á eftirl'arandi háll (sjá 2. mynd): Horft er gegnum aðgerðarsmásjá inn í eyrað. Skurð- ur er skorinn meðfram hljóðhimnunni aftanverðri í nokkurra millimetra fjarlægð frá lienni í tæplega hálfan hring. Síðan er eyrnagangshúðin losuð niður að hljóðliimnu og lyft ásamt tilheyr- andi hluta liljóðhimnunnar og lögð fram á fremri hluta hennar. Sést þá inn í miðeyrað. Næst þarf venjulega að nema nokkuð af beini úr innsta hluta eyrnagangsins til þess að sjá allt ístaðið. Þar næst er ístaðið losað, eins og fyrr segir, með því að stjaka við
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.