Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1974, Page 18

Læknablaðið - 01.04.1974, Page 18
66 LÆKNABLAÐIÐ &<y&///v'/&ars7& 9 /ar/rrtaf /»«/• /900 &jt////~&^&srr /crp&sr? *£////?<* /Z*/c/co3 a//ss~ cr/c/s-/ o<? /e^s-?/ -------A'e/r/or -------— A'onisr- VOTTORÐ (Mynd nr. 12) Heildarfjöldi vottorða á tímabilinu reyndist 471. Ai vottorðum ber mest á veikindavott- orðum til skamms tíma (1-7 dagar), svo og „öðrum vottorðum". Með „öðrum vott- orðum“ er oftast um að ræða vottorðvegna öflunar eða endurnýjunar ökuskírteina —- hj ónavígsluvottorð — vottorð vegna und- anþágu frá sundi og leikfimi í skólum -—- líftryggingavottorð — skattavottorð. í báðum tilfellum eru karlar í nokkrum meirihluta. Slysavottorð eru fátíð og þar er ekki um verulegan mismun á milli kynja að ræða. Fjöldi veikindavottorða I og II virðist svipaður hjá báðum kynjum. Örorkuvottorð eru fá, en konur eru þar í meirihluta. TILVÍSUN Á SÉRFRÆÐING (Mynd nr. 13) í heild eru tilvísanir 694 talsins, þ. e. a. s. ca. 18.5% þeirra, sem koma á stofu, fá tilvísanir á sérfræðinga. Algengustu tilvísanir eru á háls-, nef- og eyrnalækna — kvensjúkdómasérfræð- inga — blóðmeinafræðinga og húðsjúk- dómasérfræðinga. Samtals rúmlega 50%. Athyglisvert er, hve fáum sjúklingum er vísað til geðlækna — aðeins 18 talsins — 12 konum og 6 körlum. Augnlæknar fá ekki tilvísanir og verða þeir því ekki bornir saman við aðra sérfræðinga hvað þetta snertir. Tilvísanir í heild skiptast í sama hlut- falli milli kynja og heimsóknir á stofu, b e. karlar 40% og konur 60%. Þegar til- vísanir til kvensjúkdómasérfræðinga eru frátaldar er skiptingin hins vegar 54% konur og 46% karlar. Tilvísanafjöldi fer hækkandi eftir aldri hjá báðum kynjum (mynd 14). Greinilegt er, að konur fá mun fleiri til- vísanir en karlar frá 15 til 35 ára aldurs. Sá munur liggur allur í tilvísunum til kvensjúkdómasérfræðinga. Nokkuð sama má segja um aldursskeið- ið 40 til 50 ára. RANNSÓKNIR (Mynd nr. 15) Greinilegt er, að mikill meirihluti þess fólks, sem vísað er í hinar ýmsu rannsókn- ir, er konur, cg i sumum tilfellum nær ein- göngu. Þær rannsóknir, sem oftast eru gerðar, eru blcðstatus og röntgenrannsóknir, um það bil 50% allra rannsókna. Rannsóknir skiptast þannig milli kynja: Karlar 258, konur 499 eða samtals 757. Rannsóknir gerðar á konum eru þannig 66% af heildartölu rannsóknanna, en 34% rannsóknanna eru gerðar á körlum. Langfæstar rannsóknir eru gerðar fyrstu 15 æviárin — og á það við um bæði kyn. Þrátt fyrir miklar sveiflur virðast ferlarn- ir sýna mikla aukningu með hækkandi aldri (mynd nr. 16). Á öllum aldursskeiðum virðist rann- sóknatíðni meðal kvenna hærri en meðal karla — að aldursskeiðinu 35 til 40 ára undanskildu, en þá fara fleiri karlar en konur til rannsókna. Hér er um að ræða hjartarannsóknir og skyldar rannsóknir svo sem cholesterol og triglycerida. VITJANIR (Mynd nr. 17) Nokkur munur er á vitjanafjölda á dag hjá hinum ýmsu læknum. Sá, sem mest

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.