Læknablaðið - 01.04.1974, Blaðsíða 44
84
LÆKNABLAÐIÐ
Matthías Kjeld*
MÆLINGAR MEÐ GEISLATÓPUM OG ÓNÆMISEFNUM
RADIOIMMUNOASSAY (RIA)
INNGANGUR
Grein þessi er skrifuð til þess að kynna
fyrir lesendum Læknablaðsins nýjar mæl-
ingaaðferðir, sem eru að gerbylta rann-
sóknum í lífefnafræði og þar með læknis-
fræði þeirri, sem á henni hvílir.
RIA (íslenzks heitis ekki freistað) er í
stuttu máli aðferð, sem notar geislatópa
(radioactive isotopes) og mótefni til
mælingar ,,lífrænna“ efna. RIA er
úr flokki mælingaraðferða, sem kalla
mætti mettunar- eða ruðningsaðferðir
(saturation- or displacement-methods).
Svokallaðar „competitive protein binding
assays (CPBA)“ úr sama flokki nota til-
tölulega sérhæf prótín í stað mótefnisins,
t. d. thyroxín bindingu glóbúlíns til þess að
mæla thyroxín, intrinsic factor til að mæla
Bj 2 o. s, frv. Vegna sérhæfis mótefnanna,
sem notuð eru í RIA, er hún kjöraðferð
dagsins. Tímafrekar aðskilnaðar- og
hreinsunaraðferðir eru oftast ónauðsynleg-
ar eða þá ekki eins viðamiklar og fyrir
CPBA, og menn eru óðum að hverfa að
RIA þar, sem því verður við komið.
Mettunar- eða ruðningsaðferðir byggja á
því, að efni það, sem mælt er, og sama
efni geislamerkt, eru sett í eina upplausn
með mótefni gegn efninu. Merkta efnið
keppir nú við það ómerkta um viðtök
(binding sites) mótefnisins, eða þau ryðja
hvort öðru burt, eftir því hvernig á það
er litið. Lesendur eru beðnir að gaumgæfa
1. mynd, en henni er ætlað að sýna þetta
með tilliti til RIA og spara mörg orð í
texta.
RIA er tiltölulega fljótleg og ódýr. Eldri
aðferðir, eins og t. d. kvikmælingar (bio-
*Department of Chemical Pathology, Royal
Postgraduate Medical School, Hammersmith
Hospital, London W 12.
assays) prótínhormón og svokallaðar „dou-
ble isotope derivative methods“ eða „gas
liquid chromatography“ til mælingar stera,
standast engan samanburð. RIA mælir efn-
in yfirleitt í píkógrömmum (10-]2 grömm),
en það er magn margra hormóna í skikkan-
legum sýnum (1-2 ml) lífrænna vökva.
RIA hefur þannig fram til þessa haft mest
áhrif í læknisfræði innkirtlasjúkdóma, en
önnur svið læknisfræðinnar eru óðum að
taka hana í sína þjónustu. Læknisfræðin
er auðvitað ekki ein um að nota sér þessa
öflugu rannsóknaraðferð, réttarrannsókn-
arstofur mæla LSD og skordýrafræðingar
mæla hamskiptahormóna með RIA.
í stuttri grein, eins og þessari, verða
þessari aðferð ekki gerð nein viðhlítandi
skil. Hér á eftir verður farið dulítið með-
fram tæknilegum atriðum og loks getið
um helztu og áhugaverðustu mælingarnar
frá læknisfræðilegu sjónarmiði, sem kom-
ið hafa fram til þessa. Þeim, sem kynni
að hungra í meira að lestri loknum, er
bent á yfirlitsgreinar og helztu heimildar-
rit, sem skráð eru aftan við þessa grein.
í þeim er að finna mikinn fróðleik og
ítarlegan og mörg atriði tekin þar til með-
ferðar, sem hér er sleppt.
Það er von greinarhöfundar, að það, sem
hér er kynnt, megi efla áhuga lesenda á
rannsóknum í læknisfræði og vaxandi þýð-
Eftirfarandi skammstafanir eru notaðar í
grein þessari: RIA=radioimmunoassay; CPBA
= competitive protein binding assay; LH =
luteinizing hormone; HCG=human chorionic
gonadotrophin; FSH = follicle stimulating hor-
mone; TSH=thyroid stimulating hormone;
HGH = human growth hormone; ACTH=
adrenocorticotrophic hormone; PTH = para-
thyroid hormne; T4 = thyroxine. Tg=trijodo-
thyronine; DOC = deoxycorticosterone; LSD =
lysergic acid diethylamide.