Læknablaðið - 01.04.1974, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ
75
Mynd 3.
Sjúklin&ur Nr. 2.
A hliðarmyndum fellur æðagúllinn að
mestu inn í aðalæðar. Nokkur lyfting sést
á cer. media greinum, sem gefur grun um
blæðingu inn í heila.
Sjúklingur Nr. 3 (propositus): 21 árs
kona, alsystir sjúklings Nr. 2 og dóttir
sjúklings Nr. 1, var lögð inn á Taugasjúk-
dómadeild Landspítalans 13.9. 1973 til
rannsóknar vegna höfuðverkja, sem hún
hafði haft meira og minna síðan í okt.
1972. Segist hún þá hafa veikzt nokkuð
skyndilega með höfuðverk vinstra megin
yfir auga og enni. Lyfjameðferð hafði ekki
hjálpað henni. Nokkuð hafði borið á de-
pression eftir að hún veiktist af höfuðverk
og hafði hún greinilega miklar áhyggjur
af því, að hún kynni að hafa sams konar
æðagúl á heilaæð og faðir hennar og systir
höfðu haft.
Við skoðun á Taugadeildinni var hún
fullkomlega áttuð á stað og stund, engin
einkenni um taltruflun (dysfasi eða dys-
arthri) og ekkert óeðlilegt fannst við
taugaskoðanir. Heilarit var óeðlilegt með
óreglulegri theta tiðni focalt vinstra megin
temporalt. Hægri carotis communis angio-
grafi sýndi grjónstóran æðagúl á art.
cerebri media, einni af insular greinun-
um. (Mynd 4).
Mynd 4.
Sjúklingur Nr. 3 (Propositus).
Hægri carotis angiografi.
Eðlileg fylling á intracerebral æðum,
engin merki um spasma.
Á skámynd kemur fram grjónstór æða-
gúll á a. cerebri media, einni af insular
greinum. Ekki önnur örugg merki um æða-
gúl.
Æðar eru nokkuð hlykkjóttar.
Ekki var talið rétt að gera neitt frekar
heldur fylgjast með sjúklingi.
FREKARI UPPLÝSINGAR UM
ÆTTINA (Mynd 5)
I, Dó úr heilablóðfalli 60 ára.
I2 Dó úr heilablóðfalli 67 ára.
IIj Er við sæmilega heilsu 70 ára.
II2 Fékk heilablóðfall 55 ára. Var eftir
það „heilsulítill11 og dó 69 ára. Hefur
eignast 4 börn, sem öll eru heilsugóð,
en einn sonur verið slæmur af mi-
graine í mörg ár.