Læknablaðið - 01.04.1974, Blaðsíða 23
LÆKNABLAÐIÐ
71
TAFLA II (framh.)-
6 7 8 9
L L L L
E E E E
1 með 1 með 1 með
„kálf“ 1 „kálf“ „kálf“
16 21 14 16
22 21 22 24
4 1 4 3
2/4 1 2/4 1/3
5 5 5 5
Sím Sím Sím Sím
panta panta panta panta
S S S S
anir í heimahús, stundum langt fram á
kvöld.
Sjúklingar, er hann vitjar, eru oft
dreifðir um stórt svæði og þarf hann því
oft að fara langar leiðir. Benda má á, að
frá árinu 1960 hefur búseta fólks færzt að
verulegu leyti úr gömlu miðborginni í ný
hverfi á ytri mörkum borgarsvæðisins.
Fólki í Kópavogi og á Seltjarnarnesi
hefur einnig fjölgað að mun á þessum ár-
um. Við þetta hafa akstursleiðir læknanna
til sjúklinga lengst til muna.
Er heim kemur, bíða gjarnan nokkur
skilaboð um að hringja til sjúklinga og
jafnvel að fara í eina til tvær vitjanir til
viðbótar. Þrátt fyrir skipulagða nætur-
þjónustu er algengt, að fólk hringi um
nætur.
Þá verður heimilislæknirinn yfirleitt að
bæta á sig vinnu annars starfsbróður,
meðan sá er í sumarleyfi. Segja má því,
að heimilislæknirinn verði að gjalda sum-
arfrí sitt með tvöföldu vinnuálagi jafn-
langan tíma. Að sjálfsögðu gildir hið sama,
ef um veikindaforföll er að ræða.
En hver er sú þjónusta, er heimilislækn-
irinn veitir samlagsmönnum sínum? Ohætt
mun að segja, að í flestum tilvikum sé
reynt að leysa úr vanda allra þeirra, er
til hans leita, samdægurs.
í stöku tilfellum getur þó komið fyrir,
að fólk þurfi að bíða í einn eða tvo daga,
nema ef leysa þarf bráðan vanda sjúklings.
Auk þessa skiptast heimilislæknar í
Reykjavík á um að vera til viðtals á kvöld-
in (kl. 19 til 21), um helgar og aðra frí-
daga á göngudeild Landspítalans. Þá gegna
margir þeirra kvöld-, nætur- og helgar-
vaktþjónustu í borginni, sömuleiðis neyð-
arvaktþjónustu að degi til, náist ekki til
viðkomandi heimilislæknis. Nú er meðai-
vinnutímafjöldi þessara 9 lækna 48% klst.
í viku, en í könnun, sem gerð var í Osló
1970 kom í ljós, að meðalvinnutímafjöldi
á viku hjá heimilislæknum þar var 43.2
klst.3
Hér hefur verið reynt með nokkrum
orðum að gera grein fyrir starfsaðstöðu
heimilislæknisins, bæði hvað aðstoð og
húsnæði snertir, einnig í stórum dráttum
fyrir þeirri þjónustu, er hann veitir sjúkl-
ingum sínum. En þó er ekki með þessu öll
sagan sögð, því að vissulega er margt á
annan veg en vera ætti. Það verður ekki
hjá því komizt að hugleiða, hvernig mál-
um á þessu sviði yrði bezt hagað.
Ljóst er af því, sem fram kemur í grein
R^NNSÓKNIR GERÐAR A STOFUM 9 LÆKNA
TAFLA IV
Læknir nr. 1 2
Þvag sykur (stikk) X X
Þvag prótein (stikk) X X
Microscopera þvag X
Blóðrauði (HgG) X X
Sökk X
Saurpróf X X
3 4 5 6 7 8 9
X X X X 6
X X X X 6
X X 3
X X X X X X X 9
X X X X 5
X X X 5