Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.1974, Síða 82

Læknablaðið - 01.04.1974, Síða 82
106 LÆKNABLAÐIÐ Litli óþekktarormurinn fór til læknisins til að láta stinga á kýli. Elsku mamma hans hafði miklar áhyggjur af því að þetta væri nú sárt. „Engar áhyggjur,“ sagði gamli, góði læknirinn. „Ég skal sjá um að þetta verði alveg sársaukalaust.“ Síðan hvarf hann með stráksa inn á aðgerðastofuna. Eftir nokkrar sekúndur heyrðist ægilegt öskur. Smástund leið og út kom fölur læknir og drýgindalegur strákur. „Svona, svona,“ sagði mamman huggandi og svo í höstum rómi við lækninn, „ég hélt að þú hefðir sagt að þetta væri sársaukalaust.“ „Það var það líka,“ svaraði gamli læknir- inn skjálfandi. „Þangað til hann beit mig.“ Fótboltahetjan fékk slæman kverkaskít nokkrum dögum fyrir landsleikinn. Hann flýtti sér til læknis, sem var nýfluttur í bæinn. Hin unga og fagra læknisfrú kom til dyra. „Er læknirinn heima?“ spurði ungi maðurinn hásum rómi. „Nei,“ hvísl- aði frúin á móti og skimaði upp og niður götuna. „Komdu bara inn.“ Amma gamla var ósköp heilsulítil. Hún var samt þrjósk og frek og hafði alltaf þvertekið fyrir að náð yrði í lækni. Loks hringdi dóttir hennar þó í heimilislækninn, og bað hann að kæra sig kollóttan um mót- mæli þeirrar gömlu og skoða hana nú vand- lega. Síðan ýtti hún lækninum inn til gömlu konunnar, sem átti sér einskis ills von. Þegar læknirinn var farinn kallaði sú gamla í dóttur sína. „Hvað heitir hann þessi ungi lögfræðingur?11 spurði hún með glampa í augum. „Þetta var nú ekki lög- fræðingur, heldur læknir, mamma mín,“ viðurkenndi dóttirin hálf vandræðaleg. „Læknir,“ sagði sú gamla vonsvikin. „Það hlaut svo sem að vera. Mér fannst hann líka gera sig einum of heimakominn af lögfræðingi að vera.“ Does a doctor’s doctor doctor the doctor according to his own doctoring or does the doctor doing the doctoring doctor the other doctor according to the doctored doctor’s doctrine? Læknirinn: „Þú átt miklu léttara með að hósta í dag.“ Sjúklingur: „Þó það nú væri. Ég er bú- inn að æfa mig í alla nótt.“ Sjúkhngur lýsti einkennum sínum fyrir óþolinmóðum lækni. „Þetta er sár stingur í hægri öxlinni, læknir. Ég fæ hann alltaf þegar ég halla mér áfram, rétti úr öðrum handleggnum, síðan hinum, lyfti olnbogunum, hleypi í axlirnar og rétti mig síðan upp.“ „Jæja,“ sagði læknirinn háðslega. „Ég býst ekki við, að þér hafi dottið í hug, að þú gætir losnað við þennan dularfulla verk, ef þú hættir að gera þessar hjákát- legu hreyfingar?“ „Jú, reyndar, læknir,“ svaraði sjúkling- urinn einlæglega. „En ég hef enn ekki get- að fundið neina aðra aðferð til að komast í frakkann minn.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.