Læknablaðið - 01.08.1974, Page 8
110
LÆKNABLAÐIÐ
Mynd 2. — Coeliac angiografia. Fyrri sjúkl. — 2A) Slagæðafylling: Örin sýnir byrjandi
upphieðslu og æxlisæðar. — 2B) Bláæðafylling: Örin sýnir greinilega vel afmarkaða
upphleðslu.
yfirliðum. í byrjun kastanna bar stundum
á uppþembu, vindgangi og ropum.
Sykurþolspróf var endurtekið í janúar
1971 og sýndi enn lág gildi (mynd 1), og
hún var aftur lögð inn á Landspítalann í
júlí 1971. Rannsóknir þá, þar á meðal
taugarannsókn, reyndust eðlilegar. Út-
skriftargreining var asthenia neurocir-
culatoria, einkenni talin geðræn og henni
vísað til geðlæknis til frekari meðferðar.
Næstu 12 mánuði var hún til meðferðar
hjá geðlækni og fékk ýmis geðlyf. Bar
heldur minna á einkennum á þessu tíma-
bili, en hún var óeðlilega kát og fjörmikil
stundum.
Seinni hluta árs 1972 tók að bera á end-
urteknum köstum svipuðum hinum fyrri,
en af vaxandi styrkleika og tíðni. Einkum
bar á magnleysi, þreytu og úthaldsleysi,
en einnig var mikil kvíðatilfinning og
órói. Verst var hún á morgnana, átti mjög
erfitt með að vakna, svo að oft reyndist
nær ókleift að vekja hana. Tók það stund-
um 1-2 klukkustundir, og eftir að hún
vaknaði bar oft á sljóleika og rugli. Hún
hafði ekki áberandi hungurtilfinningu,
matarlyst var heldur minnkuð og hún
hafði lagt lítils háttar af. Svitakóf hafði
hún af og til, en engar kvartanir um tíðan
eða óreglulegan hjartslátt.
Vegna þessa var hún lögð inn á lyf-
lækningadeild Borgarspítalans í desember
1972 eins og fyrr segir. Við skoðun var lít-
ið að finna nema hvað hún var áberandi
mikið úti á þekju og sein til svars og átti
mjög erfitt með að tjá hugsanir sínar og
lýsa einkennum nákvæmlega. A deildinni
reyndist afar erfitt að vekja sjúklinginn
á morgnana, og var það staðfest bæði af
læknum og hjúkrunarkonum. Almennar
blóðrannsóknir nema blóðsykurmælingar
reyndust eðlilegar. Við komu mældist
blóðsykur 27 mg% og næstu daga mældist
fastandi blóðsykur hæst 52 mg% og lægst
16 mg%. Á þriðja degi eftir innlögn mæld-
ist serum insulin 34 mikrog/ml (Medi-
cinskt Laboratorium í Kaupmanna-
höfn),17 en samtímis mældist fastandi
blóðsykur 35 mg%. Ofangreindar mæling-
ar bentu eindregið á insulinæxli í brisi
og því var gerð æðamynd (coeliac angio-
grafia), sem sýndi óeðlilega upphleðslu á
smábletti í brisbolnum, sem bent gat til
slíks æxlis (mynd 2).
Sjúklingur fór heim yfir jólin eftir að
henni hafði verið kennt að nota sykur til