Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.08.1974, Side 48

Læknablaðið - 01.08.1974, Side 48
134 LÆKNABLAÐIÐ LÆKNABLAÐIÐ THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL Læknafclag íslands' og Llt IJ Læknafclag Rcykjavikur 60. ARG. — MAI-AGUST 1974 NÝ RJÓÐFÉLAGSVIÐHORF OG SIÐAREGLUR LÆKNA í Hippokratesareiðnum, sem gerður var fyrir 2400 árum og í öllum þeim endurskoð- unum sem síðan hafa verið gerðar, er lýst þeim grundvallarsjónarmiðum sem læknum ber að hafa að leiðarljósi við störf sín. í Hippokratesareiðnum voru fyrst og fremst ákvæði um samskipti og skyldur læknis við sjúklinga. í Genfarheiti Alþjóðalæknafélags- ins (W.M.A.) frá 1948 er innleitt hugtakið þjónusta ekki aðeins við sjúklinginn heldur einnig við mannkynið. Fer vel á þessu, því að hugmyndir manna um grundvallarforsendur um heilbrigði hafa breyst. Oss er nú Ijóst, að fleira er undir- staða heilbrigði og hamingju þegnanna en góð læknisþjónusta. Rjóðfélagslegar og jafnvel menningarlegar aðstæður ráða þar einnig miklu um. Læknirinn má því ekki ein- angrast við ástundun sjúkdómsgreiningar og læknisaðgerða. Hann verður að láta allt, sem stuðlar að hag og heilbrigði þegnanna, til sín taka. Siðareglur lækna hafa einnig ávallt öðrum þræði verið vinnureglur (etikettur) til leið- beiningar í starfi. Vegna hinna miklu framfara, sem orðið hafa í læknavísindum hafa skapast mörg ný og flókin etisk vandamál sem þjóðfélagið og ekki síst læknastéttin verður að glíma við. Af slíkum vandamálum má nefna fóstureyð- ingrar, tilraunir á mönnum, líffæraflutninga, cndurlífgun, líknardauða, eiturlyfjaneyslu, notkun tölva í læknisstarfi, mengun, offjölg- unarvandamál o.m.fl. Við lausn á framangreindum vandamálum verður ávallt að hafa grundvallaratriði siða- reglna lækna í huga og halda þeim í heiðri. Eigi að síður verða siðareglurnar að vera í sífelldri endurskoðun vegna hinna nýju vanda- mála og viðhorfa í læknisstarfinu, sem þær þurfa að taka til. World Medical Association (W.M.A.) hefur á undanförnum áratugum haft frumkvæði að slíkri endurskoðun siðaregln- anna. Með Genfarheitinu (Declaration of Geneva) 1948 var gerð endurskoðun á Hippo- kratesareiðnum, eins og áður er að vikið. Enn frekari endurskoðun á Genfarheitinu var gerð 1968. Árið 1964 var á vegum W.M.A. komið fram með „Declaration of Helsinki", þar sem skilgreind eru ákvæði og leiðbeiningar til lækna um kliniskar rannsóknir. „Declaration of Sidney" var útgefin 1968 og inniheldur ákvæði varðandi dauðann. Og 1970 sendu samtökin frá sér „Declaration of Oslo“ sem fjallar um fóstureyðingar. Ekki verður komist hjá lagasetningu um ýmis atriði, svo sem fóstureyðinar, líffærc- flutninga o.m.fl. Kunna þá að koma upp sér- stakar reglur í hverju landi fyrir sig ólíkt því sem gildir um siðareglur lækna, sem verða að njóta alþjóðlegrar viðurkenningar, eigi þær að halda gildi sínu og standast alla þjóð- félagsstrauma. Fóstureyðingar Læknafélag íslands hefur tekið afstöðu gegn frjálsum fóstureyðingum, þ.e. fóstureyðingum án medicinskra eða social ástæðna, meðal annars á þeim forsendum, að læknar eigi ekki að nauðsynjalausu að gera aðgerðir sem geta haft í för með sér heilsutjón eða jafnvel dauða. í Genfarheiti lækna er skýrt ákvæði um að lækni beri að virða mannslíf öllu fremur, allt frá getnaði þess, enda láta ekki kúgast til að beita læknisþekkingu gegn hugsjón mannúðar og mannhelgi, eins og það er orðað. í framangreindu orðalagi felst sú skilgrein- ing, að líta beri á frjóvgaða eggfrumu sem mannslíf. Um þetta atriði eru skiptar skoð- anir. Ekki er ágreiningur um að virða beri mannslíf, heldur hitt, hvenær (á hvaða stigi) beri að líta á fóstur sem mannslíf. Varðandi afstöðuna til fóstureyðinga er þetta, frá etisku sjónarmiði, grundvallarspurning. Varla getur orðið ágreiningur um að líf- vænlegu fóstri (28 vikur) beri sami réttur og nýfæddu barni. Ef þetta er rétt ályktað, hefur réttur fóstursins aukist nokkuð á s.l. 1000

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.