Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.08.1975, Side 48

Læknablaðið - 01.08.1975, Side 48
66 LÆKNABLAÐIÐ inga, en þær byggingaframkvæmdir hafa nær stöðvast vegna fjárskorts. Bygging sú, sem verið hefur í gangi við Vífilsstaðaspítala er nú fullgerð og tekur til starfa á þessu hausti. í því sambandi má geta þess að ákveðið hefur verið að sam- eina málefni áfengissjúklinga undir eitt yfir- læknisstarf og mun hann hafa starfsaðstöðu fyrir sig og starfslið sitt á Kleppsspítaia, á Flókadeild, á Vífilsstaðaspítala og í Gunnars- holti. Með þessari samræmingu er í raun ætlast til að starf vegna drykkjusjúklinga komist í ákveðnari og öruggari farveg en ver- ið hefur til þessa. Fá er augljóst að mjög veruleg verkefni vegna áfengissjúklinga eru enn óleyst og ber því brýna nauðsyn til þess að framlög til Gæsluvistarsjóðs verði aukin verulega. VII. MÁLEFNI VANGEFINNA Um árabil hefur uppbygging stofnana fyrir vangefna verið leyst með fjárframlögum úr Styrktarsjóði vangefinna, sem er á vegum félagsmálaráðuneytisins. Samkvæmt gildandi lögum munu framlög tii Styrktarsjóðs vangefinna eiga að falla nið- ur á næsta ári og þarf því á haustþingi og fyrir gerð fjárlaga að taka afstöðu til þess hvernig með þessi mál verður farið í fram tíðinni. Á árinu 1973 var samþykkt þingsályktunar- tillaga þar sem ríkisstjórninni var falið að kanna þörf fyrir stofnanir fyrir vangefna á landinu í heild og sérstaklega hvort ekki væri eðlilegt að slíkar stofnanir væru byggö- ar víðar en í Reykjavík og Akureyri. Niðurstöður þessarar könnunar voru gefn- ar út á árinu af heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu og kom þar í Ijós, að hlut- fallslega meiri fjöldi vangefinna var á ákveðnum svæðum á landinu en vænta mátti. I samræmi við þessa könnun og þá reynslu, sem fengist hefur með rekstri heimilis fyrir vangefna að Sólborg á Akureyri, var tekin ákvörðun um það á árinu af félagsmálaráðherra, að veita fé til stækkunar heimilisins að Sólborg, svo og að veita fé til hönnunar nýs hælis fyrir van- gefna á Austurlandi. Að öðru leyti hefur fé úr Styrktarsjóði van- gefinna gengið til uppbyggingar hælisins í Kópavogi svo og til byggingar starfsmanna- bústaðar í Tjaldanesi og uppbyggingu hæl- anna í Skálatúni og á Sólheimum. Þá hefur einnig runnið styrkur til dag- vistunarstofnana. Eins og stendur er verulegur skortur á vistunarrými fyrir vangefna og því mjög nauð- synlegt að halda áfram á þeirri braut, sem lögð var, er ákveðið var að Styrktarsjóður vangefinna hefði fastan fjáröflunarstofn. VIII. MENNTUNARMÁL HEILBRIGÐIS- STÉTTA Svo sem kunnugt er heyra menntunarmál nokkurra heilbriðisstétta undir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, svo sem mennt- un Ijósmæðra, sjúkraliða, röntgentækna, lyfjatækna og þroskaþjálfa. Menntunarmál þessara stétta eru í allföst- um skorðum. Þó eru nú umræður um breyt- ingar á fyrirkomulagi menntunar Ijósmæðra og ákveðið hefur verið að breyta menntun sjúkraliða þannig, að áður fór hún fram í ákveðnum sjúkrahúsum, en á þessu hausti tekur til starfa Sjúkraliðaskóli Islands, sem annast bóklegt nám fyrir sjúkraliða almennt, en verklegt nám fer fram á sjúkrahúsum í Reykjavík og nágrenni og er full samstaða milli sjúkrahúsanna og ráðuneytisins um þetta nýja fyrirkomulag. Gert er ráð fyrir því, að eins og áður verði um eins árs nám að ræða og því er gert ráð lyrir, að þrír 50-60 manna hópar geti út- skrifast úr skólanum á ári hverju. Ekki er óeðlilegt að umræður komi upp um það með hverjum hætti og hvar menntun heilbrigðisstétta skuli í framtíðinni fara fram. Eðlilegast er, að annað hvort heyri öll mennt- un heilbrigðisstétta undir heilbrigðis- og tfyggingamálaráðuneytið eða að skólar þess- ara stétta flytjist í umsjá menntamálaráðu- neytis og yrði það þá samfara því, að aðrir sérskólar, sem heyra undir sérstök ráðu- neyti, flytjist þangað einnig. IX. ALÞJÓÐASAMVINNA OG SAMVINNA VIÐ NORÐURLÖND Eins og undanfarin ár hefur verið reynt að halda tengsl við Alþjóðaheilbrigðisstofn- unina, bæði við höfuðstöðvarnar í Genf og svæðaskrifstofuna í Kaupmannahöfn. Fing Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í Genf var sótt að venju, en svæðamótið,

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.