Læknablaðið - 01.08.1975, Page 51
LÆKNABLAÐIÐ
69
Þórir Dan Björnsson
EITRANIR BARNA
ATHUGUN Á 231 SJÚKRASKRÁ BARNA INNLAGÐRA VEGNA
EITRANA OG MEINTRA EITRANA Á BARNADEILD LAND-
SPÍTALANS Á ÁRUNUM 1957 TIL 1973.
Eitrunum barna vegna inntöku lyfja eða
annara efna, sem börnin komast í, hefur
víðast hvar farið fjölgandi síðustu árin.
Þessi aukning virðist einkum haldast í
hendur við vaxandi neyzlu lyfja og fjöl-
breyttari afurðir efnaiðnaðar í svokölluð-
um þróuðum löndum. Unga barnið er því
í hættu af sífellt fleiri lyfjum og efnum,
sem eru á heimilunum. Sé þessara lyfja og'
efna ekki því betur gætt, getur svölun eðli-
legrar barnsforvitni leitt til inntöku lyfs
eða efnis, sem getur haft alvarlega eitrun
i för með sér.
Allmargar greinar hafa birzt í erlendum
tímaritum um eitranir barna. Hafa þær
einkanlega að geyma upplýsingar um
fjölda eitrana á tilteknu svæði, hvaða lyf
og önnur efni koma þar oftast við sögu,
kynskiptingu og aldursdreifingu barnanna.
f Bandaríkjunum er áætlað, að árlega
látist allt að 500 börn yngri en 5 ára af
völdum eitrunar lyfja eða annara efna, og
að sá fjöldi sé um 5% af öllum eitrunar-
tilfellum barna.12 í Noregi látast árlega
að meðaltali 3 börn undir fermingaraldri
vegna eitrunar.5
Erlendis er acetylsalicyl-sýra yfirleitt al-
gengasta orsök eitrunar barna, eða í um
20-30% allra tilfelia í Bandaríkjunum, Eng-
landi, Kanada og Noregi.1 2 3 4 e 10 n 13
Næstalgengust eru lyf eins og svefnlyf og
járntöflur. Af efnum á heimilum eru hús-
gagnaáburður og terpentína yfirleitt al-
gengustu orsakimar. Auk þess valda skor-
dýraeitur og eitraðar plöntur alloft eitrun-
um barna í ýmsum löndum.
Höfundur er nú styrkþegi frá Merck Company
Foundation sem Postdoctorai Fellow in Clinical
Pharmacology. — Núverandi aðsetur: Division
of Clinical Pharmacology, TC 110, Department
of Medicine, Stanford University Medical
Center, Stanford, California 94305.
Hlutfallsfjöldi hinna einstöku lyfja og
annara efna sem orsök eitrunar er annars
allmismunandi frá einu landi til annars, og
jafnvel innan sama lands. Greinarhöfundi
er ekki kunnugt um, að athugun hafi fyrr
verið gerð hérlendis á eitrunum barna. Nið-
urstöður slíkra athugana eru þó ein höfuð-
forsenda þess, að unnt sé að beita mark-
vissari varúðarráðstöfunum og veita ár-
angursríkari fræðslu en ella.
Markmið þessarar athugunar er því fyrst
og fremst að draga fram ýmsar þær upp-
lýsingar, er mættu verða til þess að varpa
skýrar ljósi á ýmsa þætti þessa vandamáls,
sem að svo miklum hluta er fyrirbyggjan-
legt.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐ
Til úrvinnslu voru teknar sjúkraskrár
allra barna, sem lögð höfðu verið inn á
Barnaspítala Hringsins, Landspítalanum,
vegna eitrunar eða meintrar eitrunar af
völdum inntöku lyfs eða annars efnis á ár-
unum 1957 til 1973, að báðum árum með-
töldum.
Útskriftargreiningarnar voru einkum ein
af brem eftirtöldum: intoxicatio, venefic-
ium eða observatio. Þau börn, er hlotið
höfðu einkenni eitrunar. fengu greininguna
intoxicatio eða veneficium, og nafn við-
komandi lvfs pða efnis fylgdi þá einatt á
eftir. Hlvtu börnin hins vegar engin ein-
kenni, fengu bau greininguna intoxicatio
obs. pro. veneficium obs. pro eða observatio
sine indicatione therapiae.
Tilfellin reyndust alls 231. Eftirtaldar
upplýsingar úr sjúkraskrá hvers barns
voru skráðar á gataspjald til þess að auð-
velda úrvinnslu: 1) kyn, 2) aldur í árum
og mánuðum, 3) staðsetning við inntöku
lyfs eða efnis, 4) tímasetning við inntöku,
5) hvert lyfið eða efnið var, 6) fyrir hvern