Læknablaðið - 01.08.1975, Síða 70
74
LÆKNABLAÐIÐ
TAFLA VI. Fjöldi barna, sem hlutu engin einkenni, og fjöldi barna, sem hlutu
einkenni, og þá af völdum hvers.
Einkenni hlutu
Árin Alls Engin einkenni Alls Lyf Efni á heimilum Önnur efnasamb.
1957-1965 40 16 24 14 9 1
1966-1968 33 11 22 16 4 2
1969-1970 40 23 17 9 5 3
1971 47 42 5 4 0 1
1972 27 21 6 3 2 1
1973 44 30 14 13 0 1
Öll árin 231 143 (61,9%) 88 (38,1%) 59 20 9
Slysavarðstofunni og síðar frá Slysadeild
Borgarspítalans, eða alls 206 börn (89,2%).
Aðeins 9 börn (3,9%) voru innlögð beint
af heimilislækni á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu, en 16 börn (6,9%) voru lögð inn utan
af landi.
Eftirtektarvert er, að öll börnin utan eitt,
sem lögð voru inn beint af heimilislækni
á Stór-Reykjavíkursvæðinu eða utan af
landi, höfðu einkenni eitrunar af völdum
inntöku lyfs eða annars efnis. Hins vegar
reyndist mun lægra hlutfall þeirra barna,
sem innlögð voru frá Slysavarðstofunni og
síðar frá Slysadeild Borgarspítalans, hafa
einkenni eitrunar, eins og vikið verður að
síðar.
Fjöldi með einkenni
Tafla VI sýnir hve mörg barnanna hlutu
engin einkenni og hve mörg þeirra hlutu
einkenni, og þá hvort einkennin hlutust af
lyfjum, efnum á heimilum eða öðrum efna-
samböndum. Alls hlutu 88 börn eitrunar-
einkenni, eða 38,1%. Af þeim hlutu 59
eitrunareinkenni af lyfjum, eða 67,1%, 20
hlutu eitrunareinkenni af efnum á heimil-
um, eða 22,7%, en 9 hlutu eitrunareinkenni
af öðrum efnasamböndum, eða 10,2%. Af
töflunni má sjá. að af þeim börnum, sem
hlutu einkenni síðustu 3 árin, hlutu 80%
eitrunareinkenni af lvfjum. Ekkert dauðs-
fall varð, en tvö börn bera ævilangt menjar
inntöku etsandi efnis.
Hlutfallsfjöldi þeirra, sem hlutu ein-
kenni, hefur verið nokkuð breytilegur frá
ári til árs á þessu 17 ára tímabili. Af þeim
börnum, sem innlögð voru á árunum 1957
til 1968, hlutu 63 eitrunareinkenni. Síðan
hefur sá hlutfallsfjöldi verið miklum mun
lægri. Á árunum 1969 til 1970 hlutu 42,5%
innlagðra barna einkenni. Lægstur var
hlutfallsfjöldinn árið 1971, eða 10,6%, en
hefur síðan farið hækkandi aftur, var
22,2% árið 1972 og 31,8% árið 1973.
Meðferð
Ýmis konar meðferð hefur verið beitt.
Alls hefur magaskolun eða uppsölulyfi,
með eða án paraffínolíu og natríum súlfats,
verið beitt í 177 tilvikum, eða 76,6%. Hins
vegar hefur þessari fyrstu meðferð, einkan-
lega uppsölulvfi, verið beitt í alls 93% til-
vikanna síðustu 3 árin. Auk þess hefur í
allmörgum tilvikum orðið að grípa til
annarar sérhæfðari meðferðar, eða í alls
14% tilvikanna, t. d. sýklalyfja, vökvameð-
ferðar og krampastillandi lyfja. Síðasta ár-
ið voru 2 börn höfð í EKG-monitor um
nokkurt skeið vegna eitrunar af tricyklisk-
um antidepressiva-lyfjum.
Legudagafjöldi
Fjöldi innlagna með 2 legudaga reyndist
142, eða 61,5%. Heildarlegudagafjöldinn
var 827 dagar, og meðallegudagafjöldi fyr-
ir innlögn vegna eitrunar eða meintrar
eitrunar var því 3,6 dagar. Tuttugu og f jög-
ur tilfelli höfðu > 5 legudaga. Mjög fá til-
felli höfðu aðeins 1 legudag.
Aðrar niðurstöður
Meðaltímalengd frá inntöku lyfs eða
annars efnis til komu á deildina var um
IV2 klst. Sjaldan hafði liðið minna en 45