Fréttatíminn - 23.12.2010, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 23.12.2010, Blaðsíða 10
Íslensk framleiðsla Hollur hátíðarmatur Fylltur kalkúnn fullkomnar veisluna. Uppskriftir og eldunarleiðbeiningar á www.kalkunn.is Skálholt. Nýr vígslu- biskup verður valinn á útmánuðum.  Vígslubiskupskjör Ferlið tekur nokkra mánuði Nýr vígslubiskup líklega vígður á Skálholtshátíð Reiknað með að arftaki Sigurðar Sigurðarsonar verði valinn á útmánuðum r eiknað er með því að nýr vígslubiskup í Skálholti verði valinn á útmánuðum og að vígsla fari fram í tengslum við Skálholtshátíð í júlí, þótt það liggi ekki endanlega fyrir. Kjörnefnd stýrir ferli kosninganna en hún kemur væntanlega saman í janúar. Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, lést í nóvember. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, verkefnisstjóri á upplýsingasviði á Biskupsstofu, segir kosningaferlið taka nokkra mánuði en kjörgeng- ur til embættis biskups Íslands og vígslubiskups er hver guðfræði- kandídat sem fullnægir skilyrðum til þess að vera skipaður prestur í þjóðkirkjunni. Kosningarétt eiga biskup, vígslubiskup, prestar og guðfræðimenntaðir kennarar guð- fræðideildar, auk tilgreindra leik- manna. Fara þarf yfir kjörskrá en þótt allir guðfræðikandídatar séu í raun í kjöri segir reynsla og hefð að ákveðnir aðilar láti vita af sér, gefi kost á sér til embættisins. Kosn- ingabaráttan fer síðan fram með kynningu þeirra. Steinunn Arn- þrúður nefndi sem dæmi að í síð- asta vali vígslubiskups, þ.e. á Hól- um, hefðu fjórir gefið kost á sér en tveir kepptu síðan um embættið í annarri umferð. Til vígslubiskupsstarfa veljast að jafnaði reyndir prestar eða guðfræð- ingar, menn sem njóta trausts, að sögn Steinunnar Arnþrúðar. Vígslubiskup er staðgengill bisk- ups. Því hlutverki gegnir sá vígslu- biskupanna tveggja sem eldri er að vígslu, sem áður var Sigurður Sig- urðarson í Skálholti en er nú Jón Aðalsteinn Baldvinsson á Hólum. Vigslubiskupar gegna enn fremur ákveðnum stjórnunarstörfum sem biskup felur þeim. Þeir eru leið- togar prestanna í biskupsembætt- inu og koma t.d. að deilumálum ef upp koma en fyrsta skref í slíku er á borði prófasta. Í síðari umferð kosningar vígslu- biskups á Hólum féllu atkvæði jafnt milli Jóns Aðalsteins Baldvinssonar og Kristjáns Vals Ingólfssonar. Sam- kvæmt starfsreglum um kosningu biskups Íslands og vígslubiskupa kom það í hlut kirkjumálaráðherra, sem þá var Sólveig Pétursdóttir, að veita embættið. Enn hafa engin nöfn verið nefnd í tengslum við arftaka Sigurðar Sigurðarsonar í Skálholti. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Vígslubiskup er staðgengill biskups og gegnir ákveðnum stjórnunar- störfum sem biskup felur honum.  kópaVogur mikill áhugi á Þorrasölum Íbúðir seldar í óbyggðri blokk Þriðjungur þrjátíu og tveggja íbúða fjölbýlishúss við Þorrasali í Kópa- vogi er þegar seldur. „Ég held að þetta sé fyrsta framkvæmdin sem fer af stað eftir hrun,“ segir Frí- mann Frímannsson, einn eigenda Leigugarða. Hann segir spurt eftir litlum, nýjum, vel staðsettum íbúð- um á markaðnum en þessar séu á bilinu 80 til 100 fermetrar að stærð. Fyrirtækið hafi ekki auglýst þær til sölu heldur hafi fólk fregnað af byggingunni og falast eftir íbúð- unum. „Um leið og vaxtakerfið breytist og fólk þorir að taka lán mun vanta húsnæði hérna, og þá sérstaklega íbúðir af þessari stærð,“ segir hann. Um tíu starfsmenn vinna að bygg- ingunni um þessar mundir. Gleðileg tíðindi „Þetta kemur á óvart og er gleðilegt að heyra,“ segir Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteigna- sala. Hann segir sölu minni eigna hafa gengið þokkalega og tekur undir orð Frímanns um vaxtakjörin og að íbúðir í þessari stærð, sem og minni, fari oft fljótt. „Það er alveg ljóst að það vantar þrjá til fjóra árganga inn á markað- inn og þetta yngra fólk bíður vart mikið lengur með fyrstu kaup sín,“ segir hann. „Það er ein skýring þess að við sjáum aukna eftirspurn eftir þessari stærð af íbúðum. Ágúst Friðgeirsson húsasmíða- meistari er aðaleigandi Leigugarða og er Árni Geir Magnússon meðeig- andi ásamt Frímanni. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is LAUGAVEGUR 56 Ég fékk líka gjöf Merkisspjöldin frá Sóley og félögum hægt að nálgast í IÐU í Lækjargötu 2 og 10-11 www.soleyogfelagar.is 10 fréttir Helgin 23.-26. desember 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.