Fréttatíminn - 23.12.2010, Side 10
Íslensk framleiðsla
Hollur hátíðarmatur
Fylltur kalkúnn fullkomnar veisluna.
Uppskriftir og eldunarleiðbeiningar á
www.kalkunn.is
Skálholt. Nýr vígslu-
biskup verður valinn á
útmánuðum.
Vígslubiskupskjör Ferlið tekur nokkra mánuði
Nýr vígslubiskup líklega
vígður á Skálholtshátíð
Reiknað með að arftaki Sigurðar Sigurðarsonar verði valinn á útmánuðum
r eiknað er með því að nýr vígslubiskup í Skálholti verði valinn á útmánuðum
og að vígsla fari fram í tengslum við
Skálholtshátíð í júlí, þótt það liggi
ekki endanlega fyrir. Kjörnefnd
stýrir ferli kosninganna en hún
kemur væntanlega saman í janúar.
Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup
í Skálholti, lést í nóvember.
Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir,
verkefnisstjóri á upplýsingasviði á
Biskupsstofu, segir kosningaferlið
taka nokkra mánuði en kjörgeng-
ur til embættis biskups Íslands og
vígslubiskups er hver guðfræði-
kandídat sem fullnægir skilyrðum
til þess að vera skipaður prestur í
þjóðkirkjunni. Kosningarétt eiga
biskup, vígslubiskup, prestar og
guðfræðimenntaðir kennarar guð-
fræðideildar, auk tilgreindra leik-
manna. Fara þarf yfir kjörskrá en
þótt allir guðfræðikandídatar séu í
raun í kjöri segir reynsla og hefð að
ákveðnir aðilar láti vita af sér, gefi
kost á sér til embættisins. Kosn-
ingabaráttan fer síðan fram með
kynningu þeirra. Steinunn Arn-
þrúður nefndi sem dæmi að í síð-
asta vali vígslubiskups, þ.e. á Hól-
um, hefðu fjórir gefið kost á sér en
tveir kepptu síðan um embættið í
annarri umferð.
Til vígslubiskupsstarfa veljast að
jafnaði reyndir prestar eða guðfræð-
ingar, menn sem njóta trausts, að
sögn Steinunnar Arnþrúðar.
Vígslubiskup er staðgengill bisk-
ups. Því hlutverki gegnir sá vígslu-
biskupanna tveggja sem eldri er að
vígslu, sem áður var Sigurður Sig-
urðarson í Skálholti en er nú Jón
Aðalsteinn Baldvinsson á Hólum.
Vigslubiskupar gegna enn fremur
ákveðnum stjórnunarstörfum sem
biskup felur þeim. Þeir eru leið-
togar prestanna í biskupsembætt-
inu og koma t.d. að deilumálum ef
upp koma en fyrsta skref í slíku er
á borði prófasta.
Í síðari umferð kosningar vígslu-
biskups á Hólum féllu atkvæði jafnt
milli Jóns Aðalsteins Baldvinssonar
og Kristjáns Vals Ingólfssonar. Sam-
kvæmt starfsreglum um kosningu
biskups Íslands og vígslubiskupa
kom það í hlut kirkjumálaráðherra,
sem þá var Sólveig Pétursdóttir, að
veita embættið. Enn hafa engin nöfn
verið nefnd í tengslum við arftaka
Sigurðar Sigurðarsonar í Skálholti.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Vígslubiskup
er staðgengill
biskups
og gegnir
ákveðnum
stjórnunar-
störfum sem
biskup felur
honum.
kópaVogur mikill áhugi á Þorrasölum
Íbúðir seldar í óbyggðri blokk
Þriðjungur þrjátíu og tveggja íbúða
fjölbýlishúss við Þorrasali í Kópa-
vogi er þegar seldur. „Ég held að
þetta sé fyrsta framkvæmdin sem
fer af stað eftir hrun,“ segir Frí-
mann Frímannsson, einn eigenda
Leigugarða. Hann segir spurt eftir
litlum, nýjum, vel staðsettum íbúð-
um á markaðnum en þessar séu á
bilinu 80 til 100 fermetrar að stærð.
Fyrirtækið hafi ekki auglýst þær
til sölu heldur hafi fólk fregnað af
byggingunni og falast eftir íbúð-
unum.
„Um leið og vaxtakerfið breytist
og fólk þorir að taka lán mun vanta
húsnæði hérna, og þá sérstaklega
íbúðir af þessari stærð,“ segir hann.
Um tíu starfsmenn vinna að bygg-
ingunni um þessar mundir.
Gleðileg tíðindi
„Þetta kemur á óvart og er gleðilegt
að heyra,“ segir Grétar Jónasson,
framkvæmdastjóri Félags fasteigna-
sala. Hann segir sölu minni eigna
hafa gengið þokkalega og tekur
undir orð Frímanns um vaxtakjörin
og að íbúðir í þessari stærð, sem og
minni, fari oft fljótt.
„Það er alveg ljóst að það vantar
þrjá til fjóra árganga inn á markað-
inn og þetta yngra fólk bíður vart
mikið lengur með fyrstu kaup sín,“
segir hann. „Það er ein skýring þess
að við sjáum aukna eftirspurn eftir
þessari stærð af íbúðum.
Ágúst Friðgeirsson húsasmíða-
meistari er aðaleigandi Leigugarða
og er Árni Geir Magnússon meðeig-
andi ásamt Frímanni.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
LAUGAVEGUR 56
Ég fékk líka gjöf
Merkisspjöldin frá Sóley
og félögum hægt að nálgast
í IÐU í Lækjargötu 2
og 10-11
www.soleyogfelagar.is
10 fréttir Helgin 23.-26. desember 2010