Fréttatíminn - 23.12.2010, Blaðsíða 24
Hvar
eru þær
nú?
24 drottningar Helgin 23.-26. desember 2010
Þó að fegurðarsamkeppnir séu og hafi lengi verið umdeildar er jafn víst og að lóan kemur á hverju vori að um svipað leyti er ný
stúlka krýnd titlinum ungfrú Ísland. Kolbrún Pálsdóttir heyrði í nokkrum stúlkum sem hafa skartað kórónunni og forvitnaðist um
hvaða augum þær líta keppnina, þegar þær horfa um öxl, og spurði líka um hvað þær eru að fást við þessa dagana. Ljósmyndir/Hari
„Þetta var reynsla sem ég hefði
alls ekki viljað sleppa. Maður
lærir fullt á þessari keppni. Ég
fékk að ferðast mikið út á þetta og
upplifði mikið. En maður er mikið
gagnrýndur, bæði á góðan og
vondan hátt, og ég reyni að sjálf-
sögðu að einblína aðeins á það
jákvæða sem fólk hefur að segja.
Viðhorf til keppninnar hefur
breyst mikið gegnum árin. Hún
var alltaf miklu stærri og það er
öðruvísi hópur sem sækir nú í
þessa keppni en áður. Það mætti
jafnvel gera aðeins meira úr
henni. Aðrir keppendur sem voru
með mér í Miss World fengu til
dæmis hús, bíla, þernur og jafn-
vel kokka. Ég er kannski ekki að
tala um svo mikilfenglegt hérna
„Ég var mjög ánægð með þátttöku
mína í þessari keppni. Ég nýtti
reynsluna vel og græddi heilmikið
á þessu. Ég var mjög hlédræg
áður en ég tók þátt í keppninni en
það batnaði til muna. Mesta áskor-
unin var þó þegar ég fór til Los
Angeles að keppa því ég þekkti
engan og þurfti að standa á eigin
fótum.
Mér finnst því miður vera aðrar
áherslur í Ungfrú Ísland í dag en
áður og ekki eins mikill glæsileiki
yfir keppninni þótt stelpurnar sem
keppa séu alltaf jafn flottar. Hvort
verið er að reyna að samræma
keppnina hér við það sem gildir
erlendis, þar sem mikið er lagt
upp úr kynþokka og glamúr, veit
ég ekki. Mér finnst þó áhuginn á
fegurðarsamkeppnum hérlendis
hafa dvínað síðastliðin ár og til
dæmis hefur ekki verið keppt um
titilinn Ungfrú Suðurnes síðan
2007.
Nú er ég bara að einbeita mér að
skólanum og vinnunni. Ég vinn
sem flugumferðarstjóri á Keflavík-
urflugvelli og er í hálfu námi í við-
skiptafræði við Háskóla Íslands.“
Sif Aradóttir 25 ára
Ungfrú Ísland 2006
Græddi mikið á keppninni
Guðrún Dögg Rúnarsdóttir 19 ára
Ungfrú Ísland 2009
Einblínir á það jákvæða
„Keppnin var allt öðruvísi en ég
bjóst við. Ég lærði að koma fram
og mikilvægt var að geta staðið
á eigin fótum. Ég var rosalega
feimin áður en ég tók þátt í
keppninni. Það var kannski svona
helsta breytingin. Við stelpurnar
úr keppninni höldum miklu sam-
bandi og þetta er mjög góður hóp-
ur. Keppnin hefur að vissu leyti
breyst gegnum tíðina. Líklega eru
lagðar aðrar áherslur núna.
Ég er að vinna í World Class en
fer svo í febrúar til Dúbaí í flug-
freyjuna og er mjög spennt fyrir
því.“
Alexandra Helga Ívarsdóttir 21 árs
Ungfrú Ísland 2008
Feimnin hvarf
heima en það væri
hægt að gera eitt-
hvað meira.
Nú er ég á fullu
í skólanum, Fjöl-
braut á Akranesi,
og er að vinna sem
sölufulltrúi hjá
snyrtivöruheildsöl-
unni Forval. Næsta
haust stefni ég á að
flytja til London og
læra gull- og silfur-
smíði.“