Fréttatíminn - 23.12.2010, Qupperneq 22
2. sæti
Handritið að kvikmynd Arnar
Featherby og Jóns Magnússonar
um uppnámið á veitingahúsinu
eftir Jenný Alexson
eftir Braga Ólafsson
„Virðist ósköp sundurlaust í fyrstu
og erfitt yfirferðar, en svo fara
brotin að falla saman og úr verður
undirfurðulegur og skemmtilegur
sagnaheimur.“ – Egill Helgason.
„Bragi er einhver lúmskasti
húmoristi landsins, og þessi bók er
listasmíð, stútfull af skemmtilegum
sögum og pælingum um bóhemlíf
og brostnar vonir.“ – Hrafn Jökulsson.
3. sæti
Missir
eftir Guðberg Bergsson
„Aldraður meistarinn fjallar um ell-
ina – sem hann hefur reyndar gert
oft áður, allt frá því hann var ungur
maður. Ferlega fín lítil skáldsaga.“
– Egill Helgason.
„Hinn hægi dauði líkama og sálar
í meitlaðri nóvellu.“ – Páll Baldvin
Baldvinsson.
4. sæti
Ljósa
eftir Kristínu Steinsdóttur
„Vandmeðfarin saga sem Kristín
hefur slípað og spunnið á hárréttan
hátt. Ég vona svo sannarlega að
sem flestir gefi sér tíma til að lesa
þessa sögu.“ – Bryndís Loftsdóttir.
„Dásamlega vel skrifuð bók og
nístandi falleg. Söguefnið er að
sönnu átakanlegt en heiðríkjan í
frásögninni situr eftir í huga les-
andans. Get varla beðið eftir næstu
bók Kristínar.“ – Hrafn Jökulsson.
5. sæti
Blóðhófnir
eftir Gerði Kristnýju
„Meitlað meistaraverk sem hefur
alla burði til að verða sígilt.“ –
Bryndís Loftsdóttir.
2. sæti
Sovét-Ísland
eftir Þór Whitehead
„Nýjar og fróðlegar upplýsingar
um starfsemi kommúnista á Íslandi
og ekki spillir fyrir að allt saman
er þetta mjög spennandi.“ – Kolbrún
Bergþórsdóttir.
„Spennandi og áhugaverð frásögn
Þórs Whitehead um hreyfingu
kommúnista á Íslandi. Þór heldur
því fram að hún hafi verið betur
skipulögð og herskárri en margir
hafa haldið – rök hans eru býsna
sannfærandi. Hvað var til dæmis
allt þetta fólk að gera í byltingar-
skóla í Moskvu?“ – Egill Helgason.
3. sæti
Sveppabókin
eftir Helga Hallgrímsson
„Heillandi grundvallarrit um nátt-
úrufræði eftir mann sem hefur
lifað og hrærst í faginu. Það er
Helgi sjálfur sem hefur uppgötvað
stóran hluta sveppanna sem fjallað
er um í bókinni og gefið þeim nöfn.
Þarna birtist ævistarf merkilegs
vísindamanns.“ – Egill Helgason.
4. sæti
Þóra biskups og raunir ís-
lenskrar embættismannastéttar
eftir Sigrúnu Pálsdóttur
„Ég var mjög hrifin af þessari bók.
Þarna er dregin upp mjög áhrifa-
mikil mynd af Þóru og fjölskyldu
hennar.“ – Kolbrún Bergþórsdóttir.
5. sæti
Birgir Andrésson
– Í íslenskum litum
eftir Þröst Helgason
„Þetta er einfaldlega afar góð bók
um einn okkar merkasta samtíma-
listamann.“ – Bryndís Loftsdóttir.
Einnig nefndar:
Íslensk barnaorðabók
Ingrid Markan, Laufey Leifsdóttir og
Anna Cynthia Leplar
„Merkileg tilraun sem ætti að
vera öllum börnum aðgengi-
leg.“ – Páll Baldvin Baldvinsson.
Veiðimenn norðursins
eftir Ragnar Axelsson
„Stórvirki, upplýsandi texti
og flottar myndir – jafnvel
í stærra lagi.“ – Páll Baldvin
Baldvinsson.
Rannsóknarskýrsla Alþingis
„Aldrei hefur jafn góð bók
komið út á vegum íslenska
ríkisins ef undan eru skilin
Skólaljóðin sem Námsgagna-
stofnun gaf út á sínum tíma.“
– Bryndís Loftsdóttir.
Nýlistasafnið 1978-2008
eftir Tinnu Guðmundsdóttur
„Mikilvæg heimild um nálæga
og hreyfingarmikla tíma í
samtímalist.“ – Páll Baldvin
Baldvinsson.
Álitsgjafar:
Egill Helgason
Páll Baldvin Baldvinsson
Bryndís Loftsdóttir
Hrafn Jökulsson
Kolbrún Bergþórsdóttir.
Ómótstæðileg saga
um gamlan mann
Ómögulegt er að bregða mælistiku á skáldverk og aðrar bækur eða mæla gæði
þeirra með öðrum hefðbundnum mælitækjum. Hver lesandi er í raun hinn eini sanni
mælikvarði og gæðamatið afar persónubundið. Fréttatíminn fékk nokkra vel þekkta
bókaorma, sem hafa legið yfir lestri undanfarnar vikur, til að velja bestu bækur
þessa árs úr flokki skáldverka og bóka almenns og fræðilegs efnis að meðtöldum
ævisögum. Þessi rannsókn er vitaskuld eins óvísindaleg og hugsast getur en sam-
hljómurinn hjá álitsgjöfunum var þó mikill, ekki síst þegar skáldskapurinn er annars
vegar og þar þykir Bergsveinn Birgisson eiga bestu bók ársins, Svar við bréfi Helgu.
Besta bók ársins 2010
Svar við bréfi Helgu
eftir Bergsvein Birgisson
„Sérlega fallegur tónn í þessari frásögn eftir ungan höfund sem
er að skrifa um gamlan mann uppi í sveit og er ekki hræddur
við að nota skrítið og skemmtilegt orðfæri.“ – Egill Helgason.
„Bergsveinn svarar vel þeim vonum sem fyrsta
skáldsaga hans vakti.“ – Páll Baldvin Baldvinsson.
„Dásamleg saga, laus við allsnægta- og kreppuhjal síðasta áratugar.
Afar íslenskt verk fyrir utan að vera líka fyndið!“ – Bryndís Loftsdóttir.
„Hver hefði trúað því að skriftamál gamals bónda yrðu efniviður í met-
sölubók? Bergsveinn er stílisti af guðs náð og hefur numið af gömlum
sagnamönnum, svo úr verður ómótstæðileg saga.“ – Hrafn Jökulsson.
Besta bókin í flokki ævisagna, fræðirita
og bóka almenns efnis 2010
Gunnar Thoroddsen – Ævisaga
eftir Guðna Th. Jóhannesson
„Gunnar var áhugaverður maður, barn síns tíma, það var mulið undir
hann, hann fékk fínustu embætti og hann var partur af hinu mikla
valdakerfi Sjálfstæðisflokksins. Svo komst hann upp á kant við það en
náði að verða forsætisráðherra með mikilli kænsku.“ – Egill Helgason.
22 bestu bækur ársins Helgin 23.-26. desember 2010