Fréttatíminn - 23.12.2010, Qupperneq 36
Kveðja til
varamannsins
„Alveg óhætt að trúa frétt-
inni“
Ögmundur Jónasson bloggar:
„Flokksfélagi minn – starfandi
þingflokksformaður í fjarveru
Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur,
sem er í fæðingarorlofi – [Árni
Þór Sigurðsson] segist vart
trúa Morgunblaðsfrétt um að
hjásetumenn hafi átt spjall-
fund með tveimur ráðherrum,
Jóni Bjarnasyni og Ögmundi
Jónassyni ásamt þingflokks-
formanni í fæðingarorlofi.
Honum er alveg óhætt að trúa
fréttinni.“
Staðarval í
Hádegismóum
„Til að skapa illindi“
Ögmundur Jónasson bloggar
áfram: „Hitt má Árni Þór
Sigurðsson vita að á for-
síðu Morgunblaðsins birtist
„fréttin“ undir stríðsfyrirsögn,
ekki vegna þess að hún væri
merkileg heldur til þess eins
að gera þessar samræður tor-
tryggilegar og skapa illindi.“
Komið til mín öll þið
sem erfiði og þunga
eruð hlaðin
„Ættu að viðurkenna níð-
póstana“
„Lilja Mósesdóttir hefur trúað
okkur fyrir þessari aðför að
henni og oft
á tíðum
komið til
okkar
miður
sín út af
henni.
Það er
ekki bara
í gegnum
tölvupósta
heldur nægir að hlusta
hvernig er til dæmis hrópað
að henni í þingsal,“ segir
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður
Hreyfingarinnar.
Vinur er sá er til
vamms segir
„Von um að gleymast“
Björn Valur
Gíslason bloggar:
,„Ef ég væri
Guðlaugur Þór
myndi ég njóta
hvers þess
dags sem mín
væri ekki getið í
fjölmiðlum í þeirri
veiku von að ég hreinlega
gleymdist.“
Sjómennskan er
ekkert grín
„Ósátt við stefnuna“
Ólína Þorvarðardóttir
bloggar: „Sú staðreynd kallar
að sjálfsögðu fram spurningar
um það hvers vegna hún [Lilja
Mósesdóttir] sé enn um borð í
þessu skipi, fyrst hún er ósátt
við stefnuna og aðferðirnar
um borð.“
Þekkir til úr
framsóknarfjósinu
„Líkir Þráni við fjósamann“
Guðni [Ágústsson, fyrrverandi
formaður Framsóknarflokks-
ins] segir líf ríkisstjórnarinnar
hanga á bláþræði ... „Væri
Þráinn Bertelsson ekki kominn
heim í sitt fjós væru dagar
ríkisstjórnarinnar taldir.“
Dugar ekki hestur?
„Finnst sjö ára bíll of gamall
fyrir sveitarstjórnina“
Meirihlutinn í sveitarstjórn
Rangárþings ytra hefur
samþykkt beiðni sveitarstjóra
um að keyptur verði sjö ára
gamall bíll fyrir sveitarfélagið.
Um er að ræða bifreið af
tegundinni Honda Jazz sem
kostar 800 þúsund krónur.
Guðmundur Ingi Gunnlaugs-
son, fulltrúi sjálfstæðismanna
í sveitarstjórn, var á móti
kaupunum og finnst eðlilegra
að kaupa nýrri bíl.
36 viðhorf Helgin 23.-26. desember 2010
Var jólatréð okkar í fyrra ekki í það stærsta?“ sagði
ég við konuna á leið okkar austur fyrir fjall með
kerru í eftirdragi. Með í för voru tvö elstu barna-
börnin okkar en tilgangur ferðarinnar var að sækja
jólatré til langömmu og langafa barnanna. Þau eru
aflögufær á sumarbústaðalóð sinni. Trén sem þau
gróðursettu á sínum tíma hafa ekkert gert nema
vaxa. „Er það ekki rétt munað,“ hélt ég áfram, „að
ómögulegt hafi verið að koma toppnum á jólatréð af
því að það nam alveg við loft?“
„Jólatréð í fyrra var flott og alveg mátulega stórt,“
sagði konan. „Þér fannst það kannski of stórt vegna
þess að þú nenntir ekki að setja allar seríurnar á það.
Sæmilega burðug tré þurfa slatta af jólaljósum, það
er bara þannig. Þú verður því að taka því þótt þú sért
hálftíma lengur, eða svo, að setja á það seríurnar.
Það er nú ekki eins og þú þurfir að kaupa tréð og
nokkrir sentimetrar til eða frá ráði því hvort það
lendir í þessum stærðarflokknum eða hinum. Pabbi
og mamma gefa okkur tréð, svo fremi sem þú nennir
að höggva það, eða saga.“
„Amma, verðið þið afi með jólatré eins og er á
Austurvelli?“ spurði sonardóttir okkar sem setið
hafði prúð í aftursætinu en ekki komist hjá því að
heyra tal afa og ömmu um tréð sem sækja átti.
Barnið þekkir Óslóartréð eins og flest börn á höf-
uðborgarsvæðinu, fer í fylgd með foreldrum sínum
þegar ljósin eru tendruð á því og hittir jólasveinana
sem þar eru á þvælingi. „Nei, nei, elskan,“ sagði
amman, „við verðum bara með venjulegt heimil-
istré. Kannski eru langafi og langamma búin að velja
það fyrir okkur. Við sjáum það þegar við komum til
þeirra í sveitina. En fyrst fáum við kakó og vöfflur og
klæðum okkur vel áður en við förum að skoða tréð.“
Kakóið og vöfflurnar voru á sínum stað í sveit-
inni. Allir voru því mettir og glaðir þegar haldið var
út að velja tréð. Þær mæðgur fóru fyrir, kona mín
og tengdamóðir. Börnin trítluðu á eftir. Afinn og
langafinn ráku lestina, vopnaðir sög. „Ég var búin
að segja honum pabba þínum að fara sér hægt í
allri þessari gróðursetningu en þú veist hvernig
hann er,“ heyrði ég tengdamóður mína segja
við dóttur sína. Henni hafði greinilega þótt nóg
um landbúnaðaráhuga og gróðursetningarþörf
manns síns á sínum tíma.
„Sjáðu þetta til dæmis,“ heyrði ég að tengda-
mamma sagði og staðnæmdist með dóttur sinni
fyrir framan stæðilegt jólatré. „Þetta tré er
svo ofvaxið að það er farið að skyggja á sólina
hjá okkur. Ég var búin að segja honum pabba
þínum að gróðursetja þessi tré fjær húsinu.
Tengdapabbi brosti í kampinn en sagði fátt.
Yndi hans var, þegar hann var að koma sumar-
bústaðnum upp, að gleyma erli dagsins með því
að pota smáplöntum í frjóa jörð og fylgjast með
þeim dafna ár eftir ár.
„Getið þið ekki tekið þetta?“ sagði tengda-
mamma þar sem hún stóð enn fyrir framan tréð.
„Sólin nær ekki upp fyrir það fyrr en í maílok þannig
að maður missir alveg af vorinu. Haldi það áfram
að stækka endar með því að það skyggir á sól allt
sumarið.“
„Amma, amma,“ hrópuðu bæði börnin, „tökum
þetta. Það er alveg eins og tréð á Austurvelli. Við
getum alveg dansað í kringum það og allt. Kannski
koma jólasveinarnir líka þegar afi verður búinn að
setja það upp.“
„Hvað segirðu, elskan,“ sagði eiginkona mín þar
sem ég stóð við hlið hennar með handsögina, „eig-
um við ekki að skella okkur á þetta tré?“
„Ertu galin,“ leyfði ég mér að segja þótt tengda-
foreldrarnir væru viðstaddir sem og ömmubörnin,
„sérðu ekki að þetta tré er sex til sjö metra hátt? Það
er ágætis lofthæð í stofunni hjá okkur, svona miðað
við hvað gerist og gengur, en þetta tré stæði svona
fjóra metra upp úr þakinu.“
„Hvað er þetta, maður,“ sagði konan, „við sögum
bara svolítið af því. Með þessu sláum við tvær flugur
í einu höggi. Þau losna við tréð og við fáum flott tré
sem fyllir upp stofuna hjá okkur. Það verða ekki
aðrir með flottara tré ef við gerum þetta.“
„Flottara tré,“ át ég upp eftir henni. „Eini keppi-
nauturinn er Jón Gnarr með tréð á Austurvelli – og
hann hefur vit á því að hafa það úti. Svo má heldur
ekki gleyma því að hann þarf hvorki að setja það upp
né hengja á það seríur heldur hringir bara á borgar-
starfsmenn sem koma á kranabíl.“
„Svona, svona,“ sagði konan og sneri sér að börn-
unum. „Eigum við að biðja afa að saga þetta tré og
taka með heim?“ „Já, já,“ hrópuðu þau í kór og klöpp-
uðu saman lófunum, greinilega ekki með lofthæð
venjulegra húsa í Kópavogi á hreinu. Staða mín í
málinu var engin svo að ég sleppti því að minna við-
stadda á að kerran aftan í bílnum væri tveggja metra
löng.
Bolur þessa öfluga jólatrés stóð fyrir sínu, sver
eins og símastaur. Atvinnumennirnir norsku sem
söguðu tréð fyrir Gnarr voru örugglega með öfluga
vélsög og bönd til að stýra falli Óslóartrésins en ég
átti ekki annan kost en forða mér undan trénu þegar
lúin handsögin hafði það í gegn.
„Er afi ekki duglegur?“ sagði amma, stolt af sínum
skógarhöggsmanni. Barnabörnin játtu því. Tengda-
mamma dásamaði birtuna og bauð aftur í kakó.
Á heimleiðinni stóð tréð langt aftur af kerrunni.
Breytti þar engu þótt ég sagaði tveggja til þriggja
metra bút neðan af því. „Ég nenni ekki að setja þessa
ófreskju upp fyrr en á Þorláksmessu,“ sagði ég við
konuna á heimleiðinni – þó það lágt að börnin í aftur-
sætinu heyrðu ekki. Þau voru alsæl með tréð sem
átti ekki annan jafningja en þann sem olíuveldið í
austri sendi jólabörnum smáþjóðar af rausn sinni.
„Við verðum kannski að stytta það aðeins, elskan,“
sagði konan. „Er það ekki allt í lagi?“
Keppt við Gnarr
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
VIkAn SEm VAR
Við óskum viðskiptavinum okkar og samstarfsaðilum
gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári með
þökkum fyrir viðskiptin á því sem er að líða.
Árlegur styrkur MP banka til góðgerðarfélags, sem
viðskiptavinir tóku þátt í að velja, fer til Einstakra barna,
stuðningsfélags barna með sjaldgæfa sjúkdóma eða
skerðingar.
Starfsfólk MP banka
Hátíðarkveðja
frá MP banka
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
V
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i