Fréttatíminn - 23.12.2010, Page 54
Heimalitaðar augabrúnir
Þú hefur misst allan lit úr auga-
brúnum og þarft nauðsynlega að
gera þér ferð á næstu snyrtistofu.
En það er ekki eina lausnin. Tana
haarfarbe er þýskur
hárlitur sem fæst
í næsta apóteki.
Hann er sérgerður
fyrir augabrúnir og
augnhár og hægt
er að gera þetta
sjálfur á stuttum
tíma. Þú berð þetta
á augabrúnirnar, lætur það liggja
á í um tíu mínútur og skolar svo af.
Brúnirnar verða vel sýnilegar næstu
vikur. Liturinn er fjölnota og hægt er
að nota hann í nokkur skipti.
54 tíska Helgin 23.-26. desember 2010
Miðvikudagur
Skór: Forever21
Leggings: Gina tricot
Skyrta: Primark
Jakki: New look
Trefill: Forever21
Fimmtudagur
Skór: H&M
Sokkar: Oroblu
Stuttbuxur: New look
Bolur: Zara
Golla: H&M
Vesti: Zara
Mánudagur
Skór: Zara
Sokkabuxur: Oroblu
Stuttbuxur: Sautján
Belti: H&M
Bolur: Only
Peysa: Gina Tricot
Þriðjudagur
Skór: Hagkaup
Leggings: Vero Moda
Klútur: Speedo-sundbolur, intersport
Jakki: H&M
Trefill: Sautján
5
dagar
dress
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Kaupæðisbrjálæði
Ég á alltof mikið af skóm. Alltof mikið af fötum
yfirhöfuð. Jafnvel föt sem ég fer sjaldan í. En á
hverjum morgni er ég í basli. Hendi öllum mínum
flíkum á gólfið, með vonarglætu um að finna eitt-
hvað til þess að klæðast. Skápurinn tæmist. Horfi
svo óþreyjufullum augum á fatahrúguna og dæsi.
Þetta bar engan árangur. Ég sný mér svo við og
tek upp kjólinn sem ég enda alltaf í.
Flestum konum finnst gaman að versla. Það er
staðreynd. Með kaupæðisbrjálæði í augunum og
síðustu aurana í höndunum hafa þær það eina
markmið að handsama það fallegasta sem augað
grípur. Sama hvað það kostar. Græðgin yfir-
tekur allt. Konur berjast með kjafti og klóm um
sama hlutinn, rífa hann á milli sín og á endanum
stendur uppi einn sigurvegari. Með dýrkeyptan
grip í pokanum og ánægður heldur sigurvegar-
inn heim. En hversu mikið notagildi hefur þessi
ákveðni gripur? Mun hann verða óaðskiljanlegur
frá eiganda sínum næstu vikur og mánuði? Eða
mun hann safna ryki nokkrum dögum eftir kaup-
in og gleymast fljótt? Það er nefnilega málið. Við
megum ekki stanslaust brenna okkur á því sama.
Ekki henda okkur í kaupin án þess að staldra
aðeins við. Spyrja sjálfar okkur hvort gripurinn sé
þess virði. Hvort hann verði vel notaður. Málið er
ekki að líka við það sem við keyptum. Við verðum
að elska það.
Ég get auðvitað aðeins talað fyrir sjálfa mig en
ég get líka alveg fullyrt að ég er ekki ein í þess-
ari stöðu. Við gerum auðvitað oft kjarakaup og
göngum ánægð út úr búðinni með fullan poka af
glaðningi handa sjálfum okkur en þurfum líklega
að vanda valið betur og vera ákveðin í hvað við
munum nota og hvað ekki. Það er leiðinlegt að
enda alltaf með að ganga í sömu, gömlu flíkunum
og sitja uppi með nýjar vörur sem enn hafa ekki
verið teknar úr pokanum.
Mikil stefnu-
breyting
Tískuvöruverslunin Levi’s
hefur nýlega sent frá sér
nýju gallabuxnalínuna
Curve ID. Línan leggur mikla
áherslu á að hver kona finni
buxur fyrir sinn líkams-
vöxt. Þessi stefnubreyting
átti sér langt upphaf. Mikil
rannsóknarvinna var sett í
gang víðsvegar um heiminn
sem tók um átján mánuði.
Viðtöl voru tekin við 60.000
konur í þrettán löndum og
líkamar þeirra grandskoð-
aðir til þess að fá nákvæmar
Dreymir um að
verða engill
Leikkonan Whitney Port,
sem frægust er fyrir leik sinn
í þáttunum The Hills, lýsti því
nýlega yfir að hennar heitast
ósk væri að verða engill hjá
undirfatafyrirtækinu Vic-
toria’s Secret. Áður fyrr var
hún kölluð litli ljóti andar-
unginn sem enginn tók eftir
og segir hún að nú sé tími til
kominn að leyfa þokkanum
að njóta sín. Hana langar að
leggja sig alla fram við fyrir-
sætustörf og dreymir um til-
boð frá fyrirtækinu.
mælingar og tölfræði. Levi’s hratt af stað
alvöru þrautagöngu sem mörg fyrirtæki
munu líklega taka upp. Curve ID-línan er
fáanleg í flestum Levi’s búðum víðsvegar um
heim, þar á meðal hér á landi.
Föstudagur
Skór: Hagkaup
Leggings: Oroblu
Sokkar: Bónus
Kjóll: Original
Hattur: H&M
Taska: TopShop
Sýna hugrekki í klæðavali
Sylvía Briem Friðjónsdóttir er 21 árs og hefur mikinn áhuga á handbolta, ferðalögum, ljós-
myndun og leiklist. Hún vinnur í Ölgerðinni og er auk þess sölumaður hjá Maybelline og L’Oréal.
,,Ég kaupi þau föt sem mér finnst rosalega flott — mest þau sem bera af og eru öðruvísi – en
fell alls ekki fyrir öllu. Mér finnst gaman að vera öðruvísi og sýna smá hugrekki í klæðavali,”
segir Sylvía. Það er misjafnt hvaðan fólk fær innblástur að tísku og svörin sennilega jafnmörg
svarendunum. ,,Ég les Vogue, Ok magazine og fleiri tískublöð. Svo fylgist maður mikið með
frægu stelpunum í öllum þessum blöðum. Cheryl Cole finnst mér standa upp úr. Hún er alltaf
jafn glæsileg. Svo skoða ég líka mikið internetið og dett inn á sænskar bloggsíður. Innblástur
kemur eiginlega úr öllum áttum, held ég.“
LAUGAVEGUR 56