Fréttatíminn - 23.12.2010, Page 62
É g man nefnilega eftir þeim báð-um. Ég fékk þá flugu í hausinn stuttu eftir síðustu jól hvort ekki
væri sniðugt að endurútgefa einhverjar
barnabækur,“ segir Hugleikur.
„Einhver vinkona mín minntist þá á
Selur kemur í heimsókn en í henni er til
dæmis mynd af fíl en sagt að hann sé stór
mús. Þetta hafði áhrif á mann á sínum
tíma og þarna kynntist maður leik með
tungumálið og súrrealisma í fyrsta sinn.
Þetta var eiginlega fyrsta Monty Python-
ið manns.“
Svona verða börnin til kom út á ís-
lensku árið 1971 en kemur nú út í endur-
skoðaðri þýðingu. „Það þurfti aðeins að
uppfæra hana. Til dæmis að geta þess að
það eru ekki síður ljósmæður en læknar
sem taka á móti börnunum.“ Selur kemur
í heimsókn kom út árið 1974 í þýðingu
Njarðar P. Njarðvík og Hugleikur segir
enga ástæðu hafa verið til að hrófla við
henni.
Það var, að hans sögn, nánast vonlaust
að finna þessar bækur þannig að hann
endaði með að bregða á það ráð að panta
þær í þýskum útgáfum hjá Amazon.
Hugleikur gefur einnig út nýja barna-
bók, Askur og prinsessan, ævintýri í sí-
gildum stíl sem tekur meðal annars á
samkynheigð. „Við fengum handritið
fyrr á árinu og vorum sérstaklega hrifin
af teikningunum. Þetta er hefðbundin
prinsessu-ævintýrasaga sem endar á því
að tvær karlpersónurnar flytja saman.
Mér fannst tilvalið að gefa þetta út.“
Hugleikur segist vonast til þess að end-
urútgáfurnar rati til nýrra ungra lesenda
um leið og eldra fólk með fortíðarþrá geti
sótt í þær. „Þetta eru fallegar bækur og
þótt maður hafi verið vitleysingur þeg-
ar maður var barn þá kunni maður gott
að meta og þessar bækur sátu í manni.“
toti@frettatiminn.is
ókeiBæ endurútgefur sígildar BarnaBækur
anna steinsen Besti dale Carnegie-þjálfari í evrópu
Rykið dustað af æskuminningum
Þeir sem eru komnir vel yfir þrítugt kannast sjálfsagt margir við barnabækurnar Svona verða
börnin til, eftir Per Holm Knudsen, og Selur kemur í heimsókn, eftir Gene Deitch með mynd-
um Vratislavs Hlavatý. Báðar hafa bækurnar verið ófáanlegar um langt árabil en nú hefur
myndlistarmaðurinn Hugleikur Dagsson tekið sig til og endurútgefið þær undir merkjum
bókaútgáfu sinnar, ÓkeiBæ.
a nna Steinsen er nýkomin heim af ár-legum heimsfundi
Dale Carnegie -þjálfara og
-fyrirtækja á Miami í Banda-
ríkjunum þar sem hún tók
á móti viðurkenningu sem
besti Dale Carnegie-þjálfari
í Evrópu. „Árangur okkar
er metinn út frá ákveðnum
stöðlum og við fáum ákveðin
stig samkvæmt þeim,“ seg-
ir Anna þegar hún útskýrir
hvernig hún varð fyrir valinu.
„Ég hef tvisvar sinnum verið
í fyrsta sæti og einu sinni í
öðru sæti,“ segir Anna sem
er síður en svo óvön því að
taka á móti viðurkenningu á
stórum Dale Carnegie-fund-
um. „Ég er mikil keppnis-
manneskja þegar kemur að
mínu fólki og ég legg mikið
upp úr því að þeir sem taka
þátt í námskeiðum hjá mér
nái árangri. Ég pæli mikið í
þessu og það er mikilvægt að
maður vinni þessa vinnu með
hjartanu.“
Anna lætur sér annt um
alla sem sækja námskeið hjá
henni. „Fólk skiptir mig máli
og það verður að finna fyrir
mikilvægi sínu til þess að
geta náð árangri.“
Dale Carnegie, sem sam-
tökin eru kennd við, hélt
sitt fyrsta námskeið árið
1912. Hann fór upphaflega
af stað með ræðunámskeið
en þau þróuðust smám sam-
an í námskeið með það að
markmiði að hjálpa fólki að
byggja upp sjálfstraust, bæta
mannleg samskipti og vinna
bug á áhyggjum og kvíða.
„Þetta er búið að standa af
sér kreppur og tvær heims-
styrjaldir þannig að þetta er
fyrirtæki sem stenst tímans
tönn,“ segir Anna um hug-
myndafræðina að baki nám-
skeiðunum sem kennd eru
við Dale Carnegie.
Anna sérhæfir sig í nám-
skeiðum fyrir unglinga og
hún segir að eftir hrun hafi
eftirspurnin eftir uppbygg-
ingu unglinga aukist. „Við
fórum að hugsa öðruvísi eftir
hrunið og huga meira að gild-
um og siðferði og þetta segir
okkur að fólk hafi áhyggjur
af börnunum sínum og hugsi
fyrst og fremst um að styrkja
þau. Öll okkar aðferðafræði
byggist á hvatningu og hrósi.
Krakkarnir skuldbinda sig
líka á námskeiðinu með því
að setja sér raunhæf mark-
mið með tímamörkum og um
leið og þau sjá árangur öðl-
ast þau meiri trú á sjálf sig og
boltinn fer að rúlla.“
Mikilvægt að vinna með hjartanu
Grýla í miðbænum
Það verður nóg um að vera í miðbæ
Reykjavíkur í dag, Þorláksmessu, enda
má ætla að fólk stefni þangað í stríðum
straumum til þess að klára jólagjafakaup-
in. Ýmislegt verður í boði til þess að létta
ungum sem öldnum lundina í jólastress-
inu. Kórar, hljómsveitir, jólasveinar,
töframenn, harmóníkuleikarar og fleira
hresst fólk mun leggja sitt af mörkum. Og
svo ætlar sjálf Grýla að mæta í Jólabæinn
á Hljómalindarreitnum klukkan 16.30. Þar
verða líka Hurðaskellir og bræður hans að
skemmta sjálfum sér og öðrum og heilsa
upp á vegfarendur.
„Svona verða börnin til lýsir því býsna opinskátt hvernig börnin verða til og koma í heiminn. „Maður las hana oft og mörgum
sinnum, bæði til þess að hlæja að henni og líka til þess að velta þessu fyrir sér,“ segir Hugleikur. Ljósmynd Hari.
Þetta hafði
áhrif á mann á
sínum tíma og
þarna kynntist
maður leik
með tungu-
málið og
súrrealisma í
fyrsta sinn.
62 dægurmál Helgin 23.-26. desember 2010
Hugleikur Dagsson
gróf upp gamlar
barnabækur sem
hann hafði aldrei
gleymt og dreif í
að endurútgefa
þær.
Bær
Rúnar S. Gíslason
Lögg. fasteignasali.
Við bjóðum Davíð Ólafsson
söngvara velkominn til starfa
david@remax.is - 897 1533
Hann er jákvæður og
kraftmikill sölufulltrúi
sem lætur verkin tala ...
.... og syngja
Ókeypis verðmat
án skuldbindinga
Miðasalan er opin
virka daga frá kl. 13-15
Sími: 527 2100
www.tjarnarbio.is Tjarnargötu 12 - 101 Reykjavík
Gjafabréf
á viðburði í Tjarnarbíói
1000 kr.
2000 kr.
3000 kr.
JANÚAR 2011
Mojito
Súldarsker
Sirkus Sóley
Ferlegheit
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
TÓNLEIKAR
FRUM-
SÝNING 14. JAN.
16
20
Fæst á tjarnarbio.is,
midi.is og í miðasölu
Tjarnarbíós
Tilvalið í jólapakkann
16 21 23
7 15 22 29
Anna þakkar
góðan árangur
sinn ekki síst
því að hún lætur
sér annt um
hvern og einn
og einbeitir sér
að því að fólk
nái árangri á
námskeiðum
hennar.
Retro Stefson og
tenórar klára
Stórsveitin Retro Stefson stígur á svið
í Jólabænum klukkan 20 og þegar hún
hefur lokið sér af nær skipulögð dagskrá í
miðbænum hápunkti þegar stórtenórarnir
þrír, þeir Jóhann Frið-
geir, Garðar Thor og
Gissur Páll, syngja inn
jólin eins og þeim einum
er lagið við undirleik
Jónasar Þóris. Dag-
skránni lýkur klukkan
23 en þá verður einnig flestum verslunum
miðborgarinnar og Jólabænum lokað.
Harmóníkutónar og trúbador
Þrír kórar Margrétar Pálmadóttur söngstjóra, Cantabile, Stúlknakór Reykja-
víkur og Vox Feminae, munu syngja saman milli klukkan 16 og 18 á Ingólfs-
torgi, Lækjartorgi, í Bankastræti, Jólabænum, Kjörgarði, efst á Laugavegi og
á nokkrum stöðum við Skólavörðustíg. Þá mun trúbadorinn Svavar Knútur
leika á sömu stöðum frá kl. 16 og Ástvaldur Traustason þenur nikkuna milli
klukkan 14 og 16 á Skólavörðustíg við Geysi.