Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1984, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.08.1984, Blaðsíða 7
Rohypnol (flunitrazepam) Stuttur svæfitími Góður, djúpur svefn * ^ Upplýsingar um lyfið. Innihald: Hver tafla inmheldur 1mg flunitrazepam Eiginleikar: Lyfiðhefur róandi verkun og auðveldar svefn Auk þess dregur það ur kviða og krömpum og verkar voðvaslakandi Lyfið frásogast hratt og vel frá meltmgarvegi og nær hámarksþéttni i blóði 1- 2 klst eftir inntöku Helmingunartími lyfsins og helztu umbrotsefna þess er 20-30 klst. Abendingar: Svefnleysi Frábendingar: Myasthenia gravis. Aukaverkanir: Aukaverkanir eru háðar skömmtum og tengjast einkum róandi og voðvaslakandi verkun lyfsins. Þreyta, syfja og máttleysi. Rugli og æsingi hefur verið lýst. einnig minnisleysi. Notkun lyfsins hefur í för með sér ávanahættu. Varuð: Vara ber sjúklinga við stjórnun vélknúinna ökutækja samtímis notkun lyfsins Milliverkanir: Lyfið eykur áhrif áfengis, svefnlyfja og annarra róandi lyfja. Getur aukið verkun vóðvaslakandi lyfja svo sem kúrare og súxametóns. Eikturverkanir: Mjog háir skammtar lyfsins geta valdið öndunarstöðvun (apnoe). meðvitundarleysi og losti. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur skammturer 0,5-1 mg fyrir svefn, sem má auka i 2- 4 mg eftir þörlum hvers sjúklings. Lægri skammtar gilda einkum fyrir gamalt fólk Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar: 30 stk. (þynnupakkað). ROHYPNOL er vörumerki <. Einkaumboð og sölubirgðir: \ ROCHE A/S Æm ROCHE > SS?KS!r59 ÆiÆk STEFAN nuunc^/ 1,0,8 72,, mÆwwW THORARENSEN HF Postholf 097, Reyk|avik, Siðumula 32, Simi 86044 LÆKNABLADID 1984; 70; 181-9 181 Jón Steffensen PÆTTIR ÚR SÖGU SJÚKDÓMA ÁISLANDI Schleisner (1) er hingað var sendur laust fyrir miðja 19. öld af heilbrigðisstjórninni, til þess að rannsaka heilbrigðisástand þjóðarinnar, reyndi fyrstur manna að mynda sér rökstudda skoðun á því, hve mikinn þátt dreþsóttir ættu í dánartölu hennar. Pað gerði hann með því að finna fyrst, hver væri dánartala þau ár, er engar drepsóttir gengu, og ennfremur hve mikill ungbarnadauðinn væri þau ár. Nú var ekki farið að skrá ungbarnadauðann sérstak- lega fyrr en 1838, svo að Schleisner varð sjálfur að reikna hann út eftir prestþjónustu- bókum nokkurra fjölmennra sókna, drepsótt- arlausu árin á síðasta hluta 18. aldar og fyrsta hiuta 19. aldar. Petta er auðvitað engin hárná- kvæm aðferð, þar sem treysta verður á, að hinar tiltölulega fáu sóknir sýni rétt úrtak, en ég tel hana nógu góða til þess að sýna megindrættina í dánarmeinaflokkum þjóðar- innar á þeim tíma, og hef ég ekki treyst mér til að gera betur. - í töflu I eru teknar saman niðurstöðutölur Schleisners og til hliðsjónar tölur Hagstof- unnar yfir manndauða og ungbarnadauða. Það sem maður festir hugann við, er hinn gífurlegi ungbarnadauði drepsóttarlausu árin á síðari helmingi 18. og fyrri helmingi 19. aldar. Ofan á hann bætast svo hinar tíðu drepsóttir, sem að jafnaði kostuðu 11.3%o íbúanna lífið fyrra tímabilið og 9.1 %o hið síðara. Við þessa tvo dánarmeinaflokka bætist svo þriðji flokkurinn, þeir sem drepsóttarlausu árin létust eldri en eins árs, 12.4 %o og 11.2 %o, eða líkur fjöldi og á árunum 1911-1930, þegar kúfurinn var horf- inn af drepsótta- og ungbarnadauða. í þessum dánarmeinaflokki felast þau dán- armein, sem nú eru efst á baugi í dánarskýrsl- um okkar, og væri lærdómsríkt að kynnast því nánar, hver þáttur hvers þessara dánarmeina var í heildarmanndauðanum þá drepsóttir og ungbarnadauði voru allsráðandi. Með lögum um dánarskýrslur 11. júlí 1911 kemst samræming á skráningu dánarmeina hér á landi þannig, að hún er gerð eftir dánar- meinaskrá gefinni út af landlækni, og lækni gert að rita dánarvottorð þar sem því verður við komið. Prestur sendir héraðslækni árlega dánarskýfslur ásamt dánarvottorðum, sem til eru, en ella lýsingu á dánarmeini. Héraðs- læknir semur síðan dánarskýrslu fyrir héraðið og sendir landlækni ásamt fylgiskjölum. Fyrir árið 1911 var það eingöngu prestantia að sjá um dánarskýrslurnar, ákveða dánarorsakir ásamt samningu skýrslu til prófasts, er síðan samdi skýrslu fyrir prófastsdæmið til biskups, er síðan sá um samningu skýrslu fyrir landið í heild, en sem þó sjaldnast tók til dánarmeins- ins þegar fram í sótti, þó svo hafi verið framan af. Það segir sig sjálft, að þessar prestaskýrslur eru mjög misjafnar að gæðum greininga dánar- orsaka, eins og fram kemur við athugun á prestþjónustubókum; auk skorts á samræmi í nafngiftum sjúkdóma hjá hinum ýmsu prest- um. Þá er þeim mjög missýnt um að skil- Tafla I. Ung- Dánir barnadauði eldri af þús. Dánir en lifandi alls 1 árs fæddum á pús. á þús. íá pús Tímabil íbúa íbúa Ibúa) 1750-1800 Drepsóttar ... .. 22.4 12.4 300(10.0) 1801-1846 laus ár .. 21.2 11.2 300(10.0) 1750-1800 Öll árin .. 33.7 — — 1801-1846 Öll árin .. 30.3 — — 1831-1840 Öllárin .. 30.7 — — 1841-1850 Öll árin .. 29.9 17.8 343(12.1) 1851-1860 Öll árin .. 28.3 19.1 238 (9.2) 1861-1870 Öll árin .. 31.6 22.4 252 (9.2) 1871-1880 Öll árin .. 24.0 17.9 189 (6.1) 1881-1890 Öll árin .. 24.4 18.4 197 (6.0) 1891-1900 Öll árin .. 17.9 14.2 119(3.7) 1901-1910 Öll árin .. 16.2 13.1 110(3.1) 1911-1920 Öll árin .. 14.2 12.3 71 (1.9) 1921-1930 Öll árin .. 12.7 11.3 53(1.4) 1931-1940 Öll árin .. 10.7 9.7 44(1.0) 1941-1950 öll árin .. 9.1 8.3 30 (0.8) 1951-1960 Öll árin .. 7.1 6.6 19(0.5) Athugasemdir við töflu 1: Tímabilin 1750-1800 og 1801-46 eru eftir Schleisner, hin byggjast á tölfræðihandbók 1967, töflu 26.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.