Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1984, Síða 49

Læknablaðið - 15.08.1984, Síða 49
LÆKNABLADID 205 hverjum stað. Þá tíðkaðist ekki að mæla augnprýsting hjá öllum augnsjúklingum eftir vissan aldur heldur var fyrst og fremst farið eftir augljósum einkennum. Af þessu leiddi að mun fleiri hafa þá gengið með leynda gláku en nú á tímum. Augnlæknispjónustan hefur stór- aukist á síðari árum með auknum fjölda augnlækna og augnlæknaferðalögin hafa verið endurskipulögð pannig að nær allir landsmenn eiga nú kost á að leita til augnlæknis a.m.k. sinu sinni á ári. Augnlæknar mæla nú almennt augnprýsting hjá sjúklingum sínum miðaldra og eldri. Einnig hafa margir fundist með leynda gláku á Rannsóknarstöð Hjarta- verndar. Þekkingarleg afstaða og áhugi almennings á glákuvörnum hefur og gjörbreyst á síðustu árum og leita margir til augnlækna gagngert til pess að fá að vita hvort þeir eru með gláku einkum ef sjúkdómurinn er í ætt viðkomanda. Af framangreindum ástæðum má ætla að leynd gláka sé mun sjaldgæfari nú en hún var fyrir tveimur áratugum og að sjúkdómurinn sé ekki kominn á eins hátt stig nú, þegar hann uppgötvast samanber 9. mynd. Þegar Borgarneskönnunin (6) er borin sam- an við lyfseðlakönnunina (1) kemur í ljós að algengið þar er mjög svipað og þar sem farið er reglulega í augnlækningaferðalög, saman- ber 7. mynd. Ástæða er til að ætla að hægfara gláka sé að færast upp í eldri aldursflokka áður en hún kemst á augljóst stig ef marka má algengistölur frá 1901 samanber 8. mynd, þar sem borið er saman algengi gláku um síðustu aldamót og nú. Ekki er unnt að bera saman algengi nema í tveimur yngstu aldursflokk- unum af ástæðum, sem áður hafa verið til- greindar. Virðist a.m.k. muna einum áratug %0 Fig. 8. Prevalence of GVDF in 1901 (2) and in 1982 (1) both sexes by age. Rates per thousand popula- tion. Table IV. Open-angle glaucoma among 773 indivi- duals 50 years and older 1976-1982 in Borgarnes Medical District in Iceland (6) by age and sex. Age groups Census 1. Dec. 1978 Number of open-angle glaucoma patients Both sexes Males Females Both sexes Males Females 50-59 .. .. 266 149 117 2 i i 60-69 .. .. 224 117 107 9 5 4 70-79 .. .. 166 81 85 15 9 6 80+ ... .. 117 59 58 17 11 6 Total 773 406 367 43 26 17 hvað augljós gláka var fyrr á ferðinni um alda- mótin síðustu en nú á dögum. Prósentudreifing glákusjúklinga í aldurs- flokkum styður einnig þessa tilgátu samanber 9. mynd, sem sýnir að meirihluti gláku á augljósu stigi var í lægstu aldursflokkunum. Blindukönnunin frá 1950 (11) leiðir og það sama í ljós, að glákublinda í yngri aldursflokk- um er að færast upp í þá eldri. Vera má að glákumeðferð hafi haft eitthvað að segja, þó það sé ósennilegt, þar sem nær ómögulegt var að fylgjast með nema litlum hluta gláku- sjúklinga á þeim tíma. Þegar könnun var gerð á glákusjúklingum á göngudeild augndeildar Landakotsspítala 1978 kom í ljós að skerðing á sjónsviði var meiri meðal karla en kvenna og fleiri karlar voru með sjúkdóminn á lokastigi (9). Sama var uppi á teningnum við glákukönnun 1963 (5). Munur á kynjum virðist vera að minnka hjá glákusjúklingum samanber 1. mynd og 10. mynd. Hverjar eru orsakir þess að hægfara gláka kemst síðar á klínískt stig nú en fyrr á öldinni og að sjúkdómurinn er algengari hjá körlum en konum? Hversvegna er glákan illvígari hjá körlum hérlendis og hver er orsök þess að fleiri karlar blindast af hennar völdum en konur? Þessum spurningum er ekki hægt að svara með neinni vissu. Helstu tilgátur hafa verið kynntar áður (5, 9). Orsakir hægfara gláku eru ennþá ókunnar. Vitað er að arfgengi á þar stóran þátt og bent hefur verið á að náin tengsl séu á milli erfða og umhverfis. Áberandi var við glákukönnun 1963-65 hversu karlar voru fleiri með sjúkdóminn á klínísku stigi er hann var greindur (5). Yfir- gnæfandi meirihluti karla í könnuninni voru

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.