Læknablaðið - 15.04.1986, Side 19
LÆKNABLAÐIÐ 1986; 72: 89-97
89
Þórarinn H. Harðarson, Guðmundur Oddsson, Bogi Jónsson & Gunnar Sigurðsson
LYFJAEITRANIR Á LYFLÆKNINGADEILD
BORG ARSPÍTALAN S ÁRIN 1976-1981
INNGANGUR
Tilgangurinn með rannsókn þessari var að
athuga allar lyfjaeitranir á lyflækningadeild
Borgarspítala á árunum 1976-1981, þar sem
um misnotkun (self-poisoning) lyfja og/eða
áfengis var að ræða. Undanskilin voru öll þau
tilfelli þar sem um hreina slysni var að ræða
eða eitrun af læknisvöldum. Svipuð athugun
var gerð um lyfjaeitranir á lyflækningadeild
Borgarspítalans árin 1971-1975 (1). Hér var
því um eins konar framhaldsrannsókn að
ræða. Var megintilgangur rannsóknarinnar
að kanna hvort breyting hefði orðið á fjölda
innlagna, kynskiptingu, tegund lyfja, ástæðu
lyfjainntöku o.s.frv.
NIÐURSTÖÐUR RANNSÓKNA
Alls voru 496 sjúklingar innlagðir á því sex ára
tímabili, sem athugunin náði til. Innlagnir
voru að meðaltali 83 á ári. Miðað við fyrra
tímabil (1971-1975) var um 32% aukningu að
ræða, en þá voru inlagnir að meðaltali 63 á
ári. Meðalmannfjöldi í Reykjavík og Reykja-
nessvæði var 126.430 árin 1971-1975, en
133.420 árin 1976-1981 (5,5% aukning).
Miðað við fólksfjöldaaukningu á Stór-
Reykjavíkur- og Reykjanessvæði var hér um
marktæka fjölgun innlagna að ræða (chi-
square). Ef tekið var mið af heildarfjölda
innlagna á lyflækningadeild Borgarspítala
var hlutfallið svipað 4,44% (1971-1975) og
4,56% (1976-1981) (mynd 1). Konur voru lítið
eitt fleiri en karlar, 259/237, hlutfallið 1,09
(mynd 2) og hafði það lækkað miðað við fyrra
timabilið, en þá var hlutfallið 1,31, en sú
hlutfallslega lækkun er ekki tölfræðilega
marktæk. Aldursdreifingin hefur hins vegar
lítið breyst. Tuttugu og eins til 30 ára
hópurinn var áfram langfjölmennastur eða
Frá lyflækningadeild Borgarspitaians. Barst ritstjórn 10/04/-
1985. Samþykkt til birtingar og sent í prentsmiðju 20/11/1985.
32%, en aldurshóparnir 31-40 ára og 41-50
ára voru svipaðir að stærð og áður, um það bil
18% hvor um sig. Mynd 3 sýnir fjölda
innlagna eftir mánuðum yfir tímabilin og
kemur glögglega í ljós að enginn marktækur
munur er á innlagnartíðni milli mánaða eða
árstíða. Athugað var hvenær sólarhringsins
innlagnir áttu sér stað (mynd 4). Dreifingin
var nokkuð jöfn, þó voru flestar innlagnir á
tímanum kl. 16-24 (36,3%). Komið var með
85% sjúklinga strax á slysadeild Borgarspít-
alans (tafla I) og var það svipað og á fyrra
tímabili. Sextíu og átta prósent sjúklinganna
Fjöldi
Fjöldi
Mynd 2. Fjöldi innlagna eftir kynjum og aldursdreif-
ingu.