Læknablaðið - 15.04.1986, Blaðsíða 25
LÆKNABLAÐIÐ 1986; 72: 93-7
93
Jón Steinar Jónsson, Guðmundur Sigurðsson, Stefán Þórarinsson, Gunnsteinn Stefánsson
IÐRAÓLGA
Skráning kvillans á starfssvæði heilsugæslustöðvarinnar á Egilsstöðum
1977 til 1982
ÚTDRÁTTUR
Lýst er faraldsfræðilegri rannsókn á grein-
ingunni iðraólgu (colon irritable, ICD 9
564.1) í sjúkdómaskrá heilsugæslustöðvar-
innar á Egilsstöðum voru í árslok 1982 82 íbúar
af um 3.000 sem fengið höfðu grein-
inguna. Algengi var 28,9/1000 íbúa. Voru
flestir á aldrinum 20 til 60 ára, einn karl á
móti 2,4 konum. Geðsjúkdómagreiningar
(ICD 9 290-320) voru mun algengari í
iöraólguhópnum, en i viðmiðunarhópi af
sama aldri og kyni (53,6% vs 31,7%,
p = 0,004). Athugun á sjúkraskrám leiddi í
Ijós að 56% sjúklinganna höfðu gengist
undir meltingarrannsókn, oftast ristilmynd.
Tveir sjúklingar höfðu einnig illkynja mein í
meltingarfærum. Árangur rannsókna á neðri
hluta meltingarfæra getur þó ekki stutt að
sjúkdómsgreiningin sé alfarið útilokunar-
greining. Greiningin byggist fyrst og fremst
á einkennum sjúklings og venjulegri læknis-
skoðun.
INNGANGUR
Ekki er til nein ótvíræð skilgreining á
sjúkdómsmyndinni iðraólga (colon irritab-
ile). Yfirleitt er átt við sambland einkenna,
svo sem verkja í kvið og hægðaóreglu. í
þessari könnun er fjallað um þann sjúklin-
gahóp, sem hefur skráða sjúkdómsgreinin-
guna í skýrslum heilsugæslustöðvarinnar á
Egilsstöðum.
Iðraólga er eitt algengasta viðfangsefni
sérfræðinga í meltingarsjúkdómum (1, 2), en
lítið hefur verið ritað um faraldsfræði
sjúkdómsins. Allnokkrar rannsóknir hafa
verið gerðar í þvi skyni að skýra meingerð
sjúkdómsins. Sýnt hefur verið fram á annað
hreyfingarmynstur í þarmi iðraólgusjúklinga
Frá heilsugæslustöðinni á Egilsstöðum. Barst ritstjórn 08/10/
1985. Samþykkt endanlega og sent í setningu 15/02/1986
og einnig lækkað sársaukaþrep við þenslu á
þarmavegg (1). Mjólkursýruóþol er einnig
talið geta haft þýðingu (3). Lengi hefur
sjúkdómurinn verið talinn hafa fylgni við
geðsjúkdóma (4, 5, 6), sérstaklega tauga-
veiklun (neurosis).
Tilgangur þessarar rannsóknar var að
kanna faraldsfræði iðraólgu. Einnig að
kanna hversu mikið meltingarfæri sjúkling-
anna höfðu verið rannsökuð og með hvaða
árangri og að lokum hver væru tengsl
sjúkdómsins við geðsjúkdómagreiningar.
EFNIVIÐUR
Starfssvæði heilsugæslustöðvarinnar á
Egilsstöðum nær yfir Fljótsdalshérað allt og
Borgarfjörð eystri. Á svæðinu búa um 3.000
manns og starfa flestir við landbúnað og
þjónustu. Tæpur helmingur íbúanna býr i
þéttbýli á Egilsstöðum og i Fellum, á Borg-
arfirði búa rúmlega 200 manns og i sveitum
tæplega 1.500 manns.
Á Egilsstöðum er heilsugæslustöð, lítið
sjúkrahús og dvalarheimili aldraðra. Á
staðnum starfa þrír læknar. Síðustu 5-10 ár
haf sömu þrír menn gegnt þessum stöðum og
læknaskipti því verið fátíð.
Sakir fjarlægða frá sérfræðingum og
stórum sjúkrahúsum má fullyrða að langflest
heilsufarsvandamál héraðsbúa komi til kasta
heilsugæslunnar á Egilsstöðum. Á heilsu-
gæslustöðinni á Egilsstöðum hefur á und-
anförnum árum verið unnið að þróun
skráningarkerfis fyrir heilsugæslustöðvar á
vegum Nordisk Medicinalstatistisk Komité
(NOMESKO) (7). Sjúkraskráin er þannig
gerð, að auðvelt er að rekja sig gegnum hana
með tilliti til ákveðins vandamáls eða
sjúkdómsgreiningar. Auk þess er ákveðinn
hluti upplýsinga skráður í tölvu, en það
auðveldar mjög athugun eins og þá sem hér
er lýst.