Læknablaðið - 15.10.1986, Síða 26
258
LÆKNABLAÐIÐ
ATHYGLI OG REIKNIGETA
5 ( ) DRAGIÐ 7 FRA 100, HÆTTIÐ EFTIR 5 FRÁDRÆTTI (93, 86, 79, 72, 65) 1 STIG
FYRIR HVERT RÉTT. ELLEGAR STAFIÐ ORÐIÐ »VERND« AFTUR Á BAK.
MINNI
3 ( ) SPYRJIÐ EFTIR HLUTUNUM 3. 1 STIG FYRIR HVERT RÉTT SVAR.
MÁL
9 ( ) LÁTIÐ SJÚKLING NEFNA PENNA OG ÚR (2 STIG) ENDURTAKA EFTIR FARANDI
»ENGIN EF OG EÐA EN« (1 STIG)
FYGJA 3 LIÐA SKIPUN: TAKTU BRÉF í HÆGRI HENDI, BRJÓTTU ÞAÐ Í TVENNT
OG SETTU ÞAÐ Á GÓLFIÐ. (3 STIG)
LESTU OG FRAMKVÆMDU EFTIRFARANDI: LOKAÐU AUGUNUM (1 STIG)
SKRIFAÐU SETNINGU. (1 STIG)
LÍKTU EFTIR FYRIRMYND (1 STIG)
_____________SAMTALS STIG KL:
MAT Á MEÐVITUND___________________________________________
VAKANDI, SYFJAÐUR, SOFANDI, MEÐVITUNDARLAUS
LEIÐBEININGAR UM NOTKUN
MMS-PRÓFS TIL MATS Á GLÖPUM
Áttun
1) Spyrjið eftir dagsetningunni í dag. Síðan
sérstaklega eftir þeim atriðum varðandi áttun er
sjúklingurinn nefndi ekki. Eitt stig fyrir hvert rétt
svar.
2) Spyrjið, hvar erum við. Fáið fram 5 atriði (t.d.
land, sýslu, borg, borgarhluta, götu, hús, spítala,
deild, stofu).
Næmi
Segið sjúklingnum að þið ætlið að fá að prófa
minni hans. Nefnið svo einhverja þrjá óskylda
hluti, og biðjið sjúklinginn að hafa það eftir.
Fyrsta tilraun ákveður hversu mörg stig
sjúklingurinn fær (0-3). Látið sjúkling síðan læra
þessi atriði með því að endurtaka þau uns hann
getur haft þau öll yFir. Ef hann getur ekki haft
þau yfir verður minnið ekki prófað.
Athygli og reiknigeta
Látið sjúklinginn draga 7 frá 100, 7 frá 93 o.s.frv.
5 sinnum (93, 86, 79, 72, 65). Skráið fjölda af
réttum niðurstöðum.
Ef sjúklingurinn vill eða getur ekki reiknað látið
hann stafa orðið »VERND« aftur á bak. Eitt stig
fyrir hvern staf á réttum stað.
Minni
Spyrjið eftir orðunum þremur, sem þið létuð
sjúklinginn muna í kaflanum næmi.
Mál (málskilningur)
Nefnið: Sýnið sjúklingi penna og úr og biðjið
hann um að segja hvað þetta er. Eitt stig fyrir
hvorn hlut rétt nefndan.
Endurtaka: Látið sjúkling hafa eftir orðaröð. Ein
tilraun. Eitt stig ef rétt.
Þriggja liða skipun: Eitt stig fyrir hvern lið rétt
framkvæmdan (0-3 stig alls).
Lestur: Látið sjúklinginn fá blað þar sem stendur
með stórum stöfum »LOKAÐU AUGUNUM«.
Biðjið sjúkling um að lesa og framkvæma
setninguna. Eitt stig ef sjúklingurinn lokar
augunum. Hjá syfjuðum sjúklingi má nota
setninguna »LYFTU UPP HÆGRI HENDI« eða
e-ð sem er betur viðeigandi.
Skrift: Biðjið sjúkling um að skrifa setningu á
blað. Sjúklingur verður að velja hana sjálfur og
setningin verður að hafa sögn og nafnorð og vera
skiljanleg.
Afritun: Láttu sjúkling horfa á fimmhyrning í
fáeinar sekúndur og biddu hann svo um að teikna
fimmhyrninginn eftir minni (Benton Visual