Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1987, Síða 31

Læknablaðið - 15.01.1987, Síða 31
LÆKNABLAÐIÐ 17 heilbrigðisþjónustunnar sjá um framkvæmd hennar. Vel má vera að stöðugildum muni þó eitthvað fækka og sjúkradeildir yrðu aftur miðaðar við fjölda sjúklinga en ekki fjölda hjúkrunarfræðinga. Viljum við finna okkur hliðstæður til fyrirmyndar þarf reyndar ekki langt að leita. Ríkisvaldið hefur gengið á undan með góðu fordæmi í vegagerð. Þar hafa útboð sparað ómælt fé þótt gæðaeftirlit og heildarstefnumótun séu enn í höndum verkkaupanda. Óskir okkar hljóta því að verða þessar: Að hjúkrun, fæðingarhjálp, sjúkraþjálfun eða önnur meðferð verði ekki aðskilin frá annarri læknismeðferð í lögum. Að lögum um almannatryggingar verði breytt þannig að frelsi sjúklings til læknavals sé skýlaust. Að ákvæði heilbrigðisþjónustulaga um opinberar heilsugæslustöðvar gildi aðeins fyrir héruð með færri en 1500 íbúa sé þeirra þar þörf. Aðstæður allar utan stærri byggða hafa gjörbreyst frá 1974, búsetuskilyrði batnað og í stað læknaskorts komið offramboð lækna. Að ákvæðum um stjórn heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa verði breytt á þann veg að yfirlæknir stofnunarinnar sé jafnframt stjórnarformaður. Að læknadeild Háskóla íslands og læknaráð Landspítalans fái fulltrúa í stjórn ríkisspítala samanber tillögu L.í. 1983. Að leitast skuli við að fá lækna til að taka að sér rekstur heilbrigðisstofnana fyrir eigin reikning sem víðast. Sýnist eðlilegt að kostnaður af heilsugæslu yrði þá greiddur af sama aðila en ekki skipt á milli sveitarfélags, ríkissjóðs og tryggingastofnunar eins og nú er. Að læknadeild H.f. hefji kennslu í stjórnun og rekstri heilbrigðisstofnana fyrir læknanema. Að heilbrigðisyfirvöld hafi yfirlit yfir raunkostnað hinna ýmsu liða heilbrigðisþjónustunnar og gerð sé grein fyrir hve mikla þjónustu þau vilja kaupa á hverju tímabili. Ýmsum kann kannski að virðast sem hér sé harkalega spyrnt við fótum. Sjálfsagt finnst einhverjum sem brot út hans eigin himni hafi dottið á stélið á honum. Ég held samt að læknar komist ekki undan að taka stöðu sína til ferskrar íhugunar vilji þeir ná fyrri reisn og fá áfram stúdenta af sama gæðaflokki í stétt sína. Gleymið því ekki að allar breytingar kosta baráttu. Miklu auðveldara er í dagsins önn að láta reka á reiðanum og leyfa öðrum að skipuleggja vinnu sína. Með því móti endum við þá allir sem grísir á búi félaga Napóleons. Öll teikn sýnast mér benda til að á því búi yrðum við fremur minna jafnir en meira. Minnumst þess því að frelsi Iæknastéttarinnar er fjöregg sjúklingsins. (Erindi flutt á aðalfundi Læknafélags íslands á Sauðárkróki 1986.)

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.