Læknablaðið - 15.01.1987, Side 33
LÆKNABLAÐIÐ
19
áleiðis til Reykjavíkur. Alla leiðina hefur
Lagarfoss 8 hnúta meðvind, en Goðafoss
mótvind. Og nú kemur spurningin: Hvað heitir
amma brytans á Lagarfossi?
Ég hafði með að gera skýra og greinargóða konu,
sem ég sótti um lengingu fæðingarorlofs fyrir.
Henni var synjað í fyrstu atrennu, sárnaði og
sagði við afgreiðslustúlkuna í læknadeild TR.
»Takið þið ekkert mark á vottorði þess læknis,
sem stundaði mig í meðgöngunni?« Svarið kom
um hæl: »VIÐ TREYSTUM EKKI LÆKNUM«.
Góðir kollegar, þetta er vandamálið í hnotskurn:
Samninganefnd sjúkratrygginga semur við
samninganefndir læknafélaganna um kjör
heimilislækna á eigin stofum, um gjaldskrá
heimilis- og heilsugæslulækna og sérfræðinga á
eigin stofum.
Gunnar Möller hrl. fyrrum formaður
samninganefndar sjúkratrygginga og forstjóri SR
í nær hálfa öld, sagði mér, að fram undir 1950
hefðu hann og formaður LR hist á skálanum á
tveggja ára fresti og drukkið kaffi saman og þá
hafi orðið til samningur næstu tveggja ára.
Þessir tímar eru löngu liðnir. Ég hefi verið
viðloðandi samninga í nokkur ár. Ég get því af
eigin reynslu vottað, að samningagerð hefur orðið
erfiðari og erfiðari og tekið lengri og lengri tíma.
Meiri og meiri tími hefur farið í ófrjótt karp og
útúrsnúninga. Erfitt hefur verið að ná nýjum
verkum inn í gjaldskrár. Ákvarðanataka hefur
verið dregin á langinn, varast að afgreiða nokkurt
atriði fyrr en seint og síðar meir.
Efalaust er um að ræða taktik af yfirlögðu ráði,
annars vegar til að þreyta tímalitla lækna, sem eru
í samninganefndum og verða oft fyrir verulegu
tekjutapi og hins vegar til að draga greiðslur frá
TR á langinn svo lengi sem auðið er.
Læknar skilja, að TR verður að fylgjast með því
hvernig almannafé er varið, að læknar misbeiti
ekki samningum og að sú þjónusta, sem greitt er
fyrir, sé innt af hendi.
Þetta eru sameiginlegir hagsmunir lækna og TR.
Læknar hafa engan áhuga á því að halda
hlífiskildi yfir þeim kollegum, sem gerast
brotlegir. En við þolum ekki einhliða tilskipanir
ofan frá og einhliða ósveigjanlega túlkun
samningsatriða.
Samningur er samkomulag tveggja eða fleiri aðila
og krefst samráðs. Samráð krefst gagnkvæms
trausts og virðingar. Á þessu er nú alvarlegur
misbrestur.
Hvað er til ráða?
Vegna endurtekinna kvartana áttu formaður L.Í.,
framkvæmdastjóri læknafélaganna og
undirritaður óformlega fundi með forstjóra TR
og einkum tryggingayfirlækni og ræddu
samskiptaerfiðleika í fullri hreinskilni. Eftir er að
sjá, hver árangur verður af þeim viðræðum. (Að
mínu mati var forstjóra TR að fullu ljós vandinn,
en tryggingayfirlæknir vildi ekki kannast við
hann nema að nokkru leyti).
Það þarf að eyða þeirri gagnkvæmu tortryggni,
sem nú ríkir milli lækna og TR. Það þarf að hafa
heilbrigða skynsemi og sanngirni að leiðarljósi á
báða bóga. Krefjast skal vandaðra vottorða en
treysta heiðarleika viðkomandi lækna nema
annað sannist. Stöðva þarf tilgangslausar
greinargerðir og pappírsflóð í kansellístíl.
Samningagerð verður að haga innan marka
skynsemi og sanngirni, ræða einstök atriði og
afgreiða þau jafnóðum, en kæfa þau ekki í karpi
og pappírsflóði.
Skjólstæðingar lækna og TR eru hinir sömu. Þeir
eiga rétt á því, að mál þeirra séu afgreidd af
heiðarleika og réttsýni og án tafa.
(Erindi flutt á aðalfundi Læknafélags íslands á
Sauðárkróki í ágúst 1986).