Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1987, Page 39

Læknablaðið - 15.01.1987, Page 39
LÆKNABLAÐIÐ 23 LÆKNABLAÐIÐ THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL Læknafélag íslands og LR Læknafélag Reykjavíkur 73. ÁRG. - JANÚAR 1987 UM WILLIAM OSLER Sir William Osler lifði á árunum 1849-1919. Hann var einn kunnasti læknir um sína daga í hinum enskumælandi heimi og þó að víðar væri leitað. í lifanda lífi var hann virtur og dáður umfram flesta aðra lækna og var þjóðsagnapersóna í áratugi eftir dauða sinn. En »fellur í gleymsku það orð, sem er lifandi núna«. Virðist Osler nú gleymdur að miklu leyti og fáir, sem kannast við hann. Þó hefir hans verið getið öðru hverju í bandarískum læknatímaritum allt fram á þennan dag og enn er vitnað í hann stöku sinnum af læknum. Osler var ekki eitt af stóru nöfnunum í læknisfræðinni, ekki mikill rannsóknamaður og færði ekki læknavísindin fram á við líkt og ýmsir aðrir læknar, sem fæddust á síðustu öld. Má þar nefna meðal annarra Semmelweiss, Virchow, Pasteur, Lister, Koch, Banting, Best, Minot, Murphy og Flemming. Osler stóð engum þessara manna á sporði í rannsóknum og þeim mikla árangri og sigrum á sjúkdómum, sem þeim auðnaðist að ná í starfi og með bættu heilsufari almennings. Enn fremur hverfur ævistarf Oslers í skuggann hjá hinum stórstígu framförum og þeirri hraðfara vísindalegu og tæknilegu þróun, sem átt hefir sér stað síðustu áratugi í læknisfræði, yngstu vísindagreininni, eins og hún hefir verið kölluð. Hins vegar var það metnaður Oslers frá unga aldri að verða góður klínískur læknir og góður kennari og varð honum að hvoru tveggja ósk sinni, að svo miklu leyti sem mögulegt var á þeim tima, þegar vísindaleg læknisfræði var ennþá skammt á veg komin. Jafnframt klínískri vinnu og kennslustörfum gaf hann út stóra og fræga kennslu- og handbók í lyflæknisfræði, og var hann einsamall höfundur hennar. Kom hún út, meðan hann var á lífi, í átta útgáfum, sem voru allar endurskoðaðar og endurritaðar af honum sjálfum. Var það heljarverk eitt sér. Hann var alla tið húmanisti í lífi og starfi, ræðu og riti, flutti mörg ávörp og erindi þar að lútandi, og voru þau gefin út sem ritgerðasöfn. Það er og verður alla tíð undrunarefni, hversu miklu stöku menn fá áorkað og afkastað á sinni ævi, og var Osler einn í þeirra hópi. Þrátt fyrir hina miklu vaxandi framvindu og mikil og flókin óleyst vandamál í læknavísindum nú á tímum, má leiða að því líkur, að skoðanir Oslers á læknisfræði og læknakennslu eigi enn nokkurt erindi til lækna. Sagt hefir verið, að læknisfræðin sé á leið frá list til tækni. Undur nútímalæknisfræði eru vissulega mikil og fá »fært um set fávisku manna og dauðann«. Engu að síður er læknisfræðin ekki einvörðungu raunvísindi, heldur er hún einnig og verður alltaf að hluta til hugvísindi. Hvað sem líður þróun raunvísinda í læknisfræði verður sú vísindagrein jafnhliða fræði húmanista eins lengi og menn hafa vitund, skynja, finna til, hugsa og eru sér meðvitandi um dauða sinn. Það er deginum ljósara, að læknisfræðin mun alla tíð fást við mannlega þáttinn í meðferð sjúklinga og kennslu lækna. Þess vegna er ennþá vert að gefa gaum að orðum Oslers, því að hann er í fremstu röð húmanista, sem uppi hafa verið á eftir Hippocrates í læknastétt. Osler var Kanadamaður að uppruna, fæddist í litlu sveitaþorpi, Bond Head, í Ontario fylki, þar sem faðir hans var sóknarprestur. Var hann yngstur í stórum systkinahópi. Að honum stóðu enskir og keltneskir stofnar, sterkir og endingargóðir. Varð faðir hans 87 ára, móðir 99 ára, og var það að sjálfsögðu hærri aldur þá en nú að tiltölu. Osler hlaut á unglingsárum menntun í heimavistarskóla, þar sem langminni hans og einbeitingarhæfni vakti athygli. Hann nam læknisfræði frá 1868 við læknaskólann í Toronto, þar sem hann lagði grunninn að þeim lífsvenjum, sem entust honum til æviloka. Hornsteinarnir voru vinna og hæfni til að sækja gleði í vinnu. í Toronto var hann sagður jafn mikill mannkostamaður og hann var vel gefinn og efnilegasti stúdent í sínum árgangi. Árið 1870 flutti hann sig til McGill háskólans í Montreal og tók læknispróf þaðan 1872. Hann var ekki gullmedalíumaður og ekki efstur í sínum árgangi,

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.