Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.12.1988, Page 7

Læknablaðið - 15.12.1988, Page 7
LÆKNABLAÐIÐ 391 Vilhelmína Haraldsdóttir, Jóhann Ragnarsson ORSAKIR OG TÍÐNI YFIRLIÐA Ferilrannsókn um eins árs skeið INNGANGUR Yfirlið er afar algengt fyrirbæri og er talið að mikill meirihluti fólks falli í yfirlið einhvern tíma á lífsleiðinni (1, 2). Þetta sýnir að yfirlið er ekki sjúkdómur heldur einkenni, sem getur verið merki um alvarlegan sjúkdóm, þó svo þurfi ekki að vera (3). Helstu orsakir yfirliða eru hvatning skreyjutaugar (vasovagal yfirlið) og sjúkdómar í hjarta, sem valda annað hvort truflun á hjartslætti eða minnkuðu blóðflæði frá hjarta. Sjúkdómar í miðtaugakerfi geta og valdið yfirliði. Blóðþrýstingsfall í standandi stöðu (orthostatisk hypotension) getur verið orsakavaldur, einnig eru yfirlið tíð við viðbragð í skreyjutaug, framkallað af ýmsum athöfnum, svo sem að kasta þvagi eða rembast. í rannsóknum (1, 2, 4, 5) sem hafa verið gerðar á þessu efni kemur fram, að í hluta sjúklingahóps finnst ekki orsök fyrir yfirliði þrátt fyrir vandlega leit. Stundum liggur orsök yfirliðs ljós fyrir, oftast þarf þó að rannsaka einstaklinginn nánar áður en orsökin finnst. Það er mjög mikilvægt að komast sem næst orsökinni, því rannsóknir (1, 2) hafa sýnt mikinn mun á horfum þessa fólks. Rannsóknir í Bandaríkjunum hafa m.a. leitt í ljós um þriðjungi meiri dánarlíkur á einu ári meðal þeirra sem falla í yfirlið af völdum hjartasjúkdóma en þegar orsakirnar eru aðrar (1, 6). Hér á eftir verður greint frá ferilrannsókn (framsýnni rannsókn) á sjúklingum sem leituðu á Borgarspítalann vegna yfirliða. Rannsóknin tók eitt ár. Tilgangur rannsóknarinnar var eftirfarandi: 1. Gera grein fyrir fjölda, kyni og aldri sjúklinga. 2. Greina orsakir yfirliðanna. 3. Athuga hvaða þættir skipta mestu máli við greiningu. Frá lyflækningadeild Borgarspítalans. Barst ritstjórn 16/03/1988. Samykkt 13/09/1988. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Athugaðir voru allir sjúklingar sem leituðu á Borgarspítalann vegna yfirliða um eins ár skeið, þ.e. frá október 1985 til október 1986. Flestir leituðu af sjálfsdáðum á Slysa- og sjúkramóttöku spítalans eða voru fluttir þangað af læknum neyðarbíls. Nokkrum var vísað af læknum Slysadeildar eftir að í ljós kom að meiðsli voru til komin vegna yfirliðs. Yfirlið var skilgreint á eftirfarandi hátt: Meðvitundarleysi sem stendur stutt og sjúklingur fær meðvitund á ný án sérstakra endurlífgunaraðgerða. Til frekari glöggvunar voru þeir útilokaðir sem: 1. Fengu nær yfirlið (near syncope). 2. Urðu óstöðugir á fótum (dizziness). 3. Fengu svimakast. 4. Höfðu áður þekkta krampa. 5. Voru í losti. 6. Voru í dái. Tekin var nákvæm sjúkrasaga af öllum sjúklingum og fengin lýsing vitnis á atburðinum ef mögulegt var. Til þess að fá sem ítarlegasta sjúkrasögu var einnig farið yfir atriðalista með 31 atriði sem spurt var sérstaklega um (mynd 1). Nákvæm líkamsskoðun var gerð af öllum sjúklingum. Eftirtaldar rannsóknir voru gerðar: blóðhagur, natríum, kalíum, klóríð, kalsíum, kreatínín, blóðsykur og hjartalínurit. Þegar niðurstöður lágu fyrir var tekin ákvörðun um hvort frekari rannsókna væri þörf, svo sem hjartasírit í sólarhring, hjartaómun, áreynsluhjartarit, heilalínurit og tölvusneiðmynd af heila. Höfundar fylgdu síðan sjúklingunum eftir þar til orsök yfirliðs Iá fyrir. Sjúklingar voru flokkaðir í sjö aðalhópa eftir orsökum yfirliðs: 1. Yfirlið vegna skreyjutaugarertingar eða oföndunar (vasovagal yfirlið eða hyperventilation). 2. Yfirlið tengd hægðum, þvaglátum eða hósta.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.