Læknablaðið - 15.12.1988, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ
399
UMRÆÐA
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að íslensk
börn á aldrinum þriggja til tólf ára hafa mótefni
gegn Legionella ssp í ríkum mæli. Orsök
breytingarinnar sem verður á algengi mótefnanna
við þriggja ára aldur er enn ekki ljós. Þessi
breyting á þó ekki rót sína að rekja til breytinga í
heildarmagni IgM þessara ára enda nær magn
IgM helmingi fullorðinsgilda á fyrsta ári og helst
eftir það all-stöðugt til níu ára aldurs (20). Hin
stöðugu IgM mótefni gegn Legionella ssp sem
mældust í aldurshópnum þriggja til tólf ára benda
til endurtekins smits af völdum þessarar bakteríu
eða annarra náskyldra sýkla.
IgM mótefni eru yfirleitt mælanleg vikum eða
mánuðum eftir smit en hverfa þá úr blóðrásinni
(21, 22). Hækkun á IgM mótefni gegn Legionella
ssp sem greinist með örkekkjunar-aðferð eins og
notuð var í þessari rannsókn getur mælst
mánuðum eða árum eftir smit (23). Mótefnin eru
þannig ekki alltaf merki um nýgengna sýkingu.
Örkekkjunar-aðferðin er einföld í framkvæmd og
aðferðin hefur reynst áreiðanleg og sérhæf (11,
23, 24). Ennfremur hefur góð samsvörun fengist
við samanburð á þessari aðferð og glitprófi
(immunofluorescent assay) (25, 26). Þó svo að
fjórföld títrahækkun sé nauðsynleg til
staðfestingar nýrrar eða bráðrar sýkingar er afar
mikilvægt að skilgreina tíðni títersins í þýðinu.
Það er athyglisvert að algengasta mótefnið sem
mældist í rannsókninni var gegn L. bozemanii
(67/86) en slíkri svörun hefur áður verið lýst
meðal heilbrigðra einstaklinga (24, 27). Hafa
verður í huga að sérhæfni örkekkjunarprófs
varðandi undirflokka Legionella er ófullnægjandi
og að fjölbreytileiki Legionella-mótefna er mikill
(28, 29). Því er ekki hægt að draga fullnægjandi
ályktun varðandi undirflokkana af
niðurstöðunum. Ástæða þess að engin marktæk
%
Einkennalausir Efri Astma eda fyrri
loftvegaeinkenni lungnabólga
Mynd 4. Hlulfallsleg dreifing barna eflir
mótefnasvörun með lilliti lil öndunarfœraeinkenna.
Tafla I. Mótefni gegn Legionella ssp með tilliti til
aldurs og kyns.
Aldur Börn Jákvæö mótefni
drengir stúlkur öll drengir stúlkur öll
Á fyrsta ári 29 10 39 0 0 0
Eins árs.... 25 13 38 0 í 1
2ja ára .... 21 19 40 0 0 0
3ja ára .... 22 16 38 2 2 4
4ra ára .... 23 16 39 9 8 17
5 ára 14 26 40 1 11 12
6 ára 23 16 39 6 11 17
7-8 ára .... 18 21 39 4 5 9
9-10 ára ... 24 25 49 7 6 13
11-12 ára .. 17 18 35 5 8 13
Samtals 216 180 396 34 52 86
Tafla II. Dreifing mótefna gegn Legionella ssp með
tilliti tii aldurs.
Títri
Börn --------------------------------------------
aldur <1/8 1/16 1/32 1/64 1/128 AIIs
Á fyrsta ári....... 25 14 — — — 39
Eins árs............ 25 12 1 — — 38
2ja ára............. 23 17 — — — 40
3ja ára............. 14 20 1 2 1 38
4ra ára............. 10 12 13 4 — 39
5 ára.............. 10 18 7 4 1 40
6 ára............... 1 21 13 3 1 39
7-8 ára.............. 5 25 4 4 1 39
9-10 ára............. 7 29 6 5 2 49
11-12 ára.......... 2 20 8 4 1 35
53 26 7
Samtals 122 188 86 396
mótefni greindust gegn L. pneumophila SG 1
getur verið misræmi milli þess stofns sem notaður
var (Knoxville-stofn frá Centers for Disease
Control, Atlanta, USA) og þeirra stofna sem
þrífast á íslandi. Einnig er mögulegt að íslensk
börn séu ekki útsett fyrir L. pneumophila SG 1
sem þó er algengasta orsök fyrir legionellosis í
öðrum löndum.
Flest þeirra barna sem rannsökuð voru höfðu
ekki sögu um öndunarfærasýkingar. Þetta styður
frekar þá kenningu að smit með Legionella og
mótefnamyndun eigi sér oft stað án einkenna um
legionellosis (14-16). Dæmi um þetta er einnig
Pontiac fever en komið hefur í ljós að pest þessi
orsakaðist af Legionella og einkenndist gagnstætt
Philadelphia-faraldrinum af mildum
öndunarfæraeinkennum án dauðsfalla (30, 31).
í faraldsfræðilegri rannsókn á tíðni
mótefnabreytinga gegn L. pneumophila fundu