Læknablaðið - 15.12.1988, Síða 29
LÆKNABLAÐIÐ
405
þeir leituðu sér þjónustu. Fram kom, að 13,3%
alls hópsins viðurkenndu óverulegan ótta samfara
heimsóknum til tannlæknis. Tæp 78% karlanna
svöruðu neitandi spurningu um ótta eða kvíða og
fleiri eftir því sem aldur fór hækkandi. Þetta er
tölfræðilega marktækt (p = 0.02).
Sé þess gætt, að fleiri tannlausir en tenntir segjast
alveg lausir við geig (p < 0.01), verður samband
aldurs og ótta þó ekki lengur marktækt
tölfræðilega (p = 0.10).
Tímapantanir. Einungis 7,8% töldu erfitt að fá
hentugan tíma hjá tannlækni, 88,8% álitu svo
ekki vera og 3,5% létu spurningunni ósvarað. Sé
spurningin athuguð eftir því hvernig menn eru
tenntir verður útkoman eins og í töflu V.
Ekki var tölfræðilega marktækur munur á því
eftir aldri, hvort mönnum þætti erfitt að fá tíma
við hæfi (p = 0.29), og naumlega eftir því hvort
menn voru tenntir eða tannlausir (p = 0.05).
Niðurstöðurnar breyttust lítt þó að aðeins væri
tekið mið af mönnum í starfi.
Árvekni. Af tenntum einstaklingum kváðust 90%
fylgjast með því sem við þá væri gert hjá
tannlækni. Fyrir tannleysingja var talan 75%.
Ekki virtist aldur hafa teljandi áhrif á árvekni
manna í þessum efnum.
Hvenœr leitað tannlæknis. Tafla VI sýnir á hvaða
tímum þeir menn, sem vinna utan heimilis,
sögðust að jafnaði fara til tannlæknis. í ljós kom,
að rúm 60% kváðust fara til tannlæknis í
vinnutímanum.
Marktækt er tölfræðilega, hve fleiri hinna
tannlausu fara alls ekki til tannlæknis (p<0.01).
Ekki reyndist tölfræðilega marktækur munur
eftir aldri.
Spurningu við því hvort menn gætu fengið frí úr
vinnu í þessum tilgangi svöruðu 81% játandi,
11% voru óvissir, 4% töldu það útilokað en 4%
svöruðu ekki spurningunni (Tafla VII). Munur
eftir aldri var ekki tölfræðilega marktækur en
hins vegar var marktækt tölfræðilega, að fleiri
%
25
20
15
10
5
0
Mynd 1. Reglulegar heimsóknir til tannlœknis meðan á
skólagöngu stóð sýndar í hundraðshlutum eftir aldri.
■ Tenntir
52-59 60-69 70-79
Aldurshópar
Mynd 2. Tími frá seinustu heimsókn tenntra
einstaklinga til tannlæknis. (Einn kvaðst aldrei hafa
farið til tannlœknis og einn svaraði ekki).
Tafla IV. Svör við því hvort kvíði eða ótti fylgdi
tannlæknisheimsóknum.
Tenntir Tannlausir Alls
N <*) N (V.) N 07.)
Hvorki kvíði né ótti 238 (76) 163 (81) 401 (77.7)
Óverulegur ótti 56 (18) 13 (6.5) 69 (13.3)
Talsverður ótti. 7 (2) 1 (0.5) 8 (1.6)
Mjög mikill ótti 4 (1) 4 (2) 8 (1.6)
Útilokar heimsókn ... 1 (0.2) 1 (0.5) 2 (0.4)
Svara ekki 9 (2.8) 19 (9.5) 28 (5.4)
Samtals 315 (100) 201 (100) 516 (100)
%
Mynd 3. Ttmi frá seinustu heimsókn
TANNLEYSINGJA til tannlæknis. (Einn kvaðst aldrei
hafa leitað til tannlœknis og þrír svöruðu ekki).