Læknablaðið - 15.12.1988, Side 39
LÆKNABLAÐIÐ
413
Skoðun vefjasýna leiðir í ljós mikla staðbundna
kleifkjarna hvítblóðkorna (neutrophila) íferð í
leðurhúð (dermis). Einnig eru til staðar
hnattfrumur og eósínfíklar (eosinophilar) í efri-
og miðleðurhúð. Fyrir utan æðavíkkun
(vasodilatation) og væga æðaþekjubólgu sjást
yfirleitt ekki merki um alvarlega eða bráða
æðabólgu (vasculitis).
Mikilvægt er að greina þennan sjúkdóm til að
forðast tafir vegna leitar að földum sýkingum.
Sweet’s syndrome lýsir sér á tvennan hátt. Annars
vegar er orsök þess óþekkt. Það er sjúkdómur
miðaldra kvenna með útbreiddum kleifkjörnum í
blóði og húð, háu sökki og hita auk dæmigerðra
útbrota á hálsi, höfði og efri hlutum líkamans.
Sjúkdómurinn læknast oftast eftir
barksterameðferð.
Einnig er til Sweet’s syndrome samfara illkynja
sjúkdómum. Allt að 15% sjúklinga með þessa
gerð hafði einnig hvítblæði, oftast af fnyelocyta
eða monomyelocyta gerð (4). Þessi tegund
sjúkdómsins leggst jafnt á konur og karla en að
öðru leyti lýsir hann sér eins og þar sem orsök er
óþekkt. Þó eru karlar gjarnan blóðlausir og með
fáar og afbrigðilegar blóðflögur. Dreifing
útbrotanna er jöfn á efri og neðri hluta líkamans.
Þessi lýsing á Sweet’s syndrome getur því verið
fyrirboði ógreinds illkynja blóðsjúkdóms eða
versnunar hans (4).
Meðferð felst í inntöku á barksterum, 40-60 mg á
dag, og næst bati á almennum einkennum oft
innan fárra klukkustunda en á útbrotum á
þremur til fimm dögum. Skammtarnir eru síðan
minnkaðir á fjórum til sex vikum. Einnig hefur
Indomethacin verið reynt auk 4.4’
diaminodiphenylsulfone (dapsone) sem
sterasparandi viðbót.
Greining: Sweet’s syndrome (acute febrile
neutrophilic dermatosis).
HEIMILDIR
1. Sweet RD. An acute febrile neutrophilic
dermatosis. Br J Dermatol 1964; 76: 349-56.
2. Nunzi E, Crovato F, Dallegri F, Patrone F,
Cormane RH. Immunopathological studies on a
case of Sweet’s syndrome. Dermatologica 1981;
163: 393-400.
3. Kaplan SS, Wechsler HL, Basford RE, Zdaidarski
UE, Kuhns DB. Increased plasma chemoattractant
in Sweet’s syndrome. J Am Acad Dermatol 1985;
12: 1013-21.
4. Cohen PR, Kurzrock R. Sweet’s syndrome and
malignancy. Am J Med 1987; 82: 1220-6.