Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1988, Síða 41

Læknablaðið - 15.12.1988, Síða 41
LÆKNABLAÐIÐ 415 Birna Þórðardóttir FRÁ FUNDI LANDLÆKNA NORÐURLANDA UM RÉTT SJÚKLINGA OG UPPLÝSINGAMIÐLUN HEILBRIGÐISSTARFSFÓLKS Dagana 20. og 21. apríl 1988 gengust landlæknaembætti Norðurlanda fyrir ráðstefnu um upplýsingar til sjúklinga og samskipti sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks. Á ráðstefnunni, sem haldin var í Bergen, var fjallað um málin frá læknisfræðilegum, sálfræðilegum og lagalegum hliðum og ólík sjónarmið reifuð. Torbjörn Mork landlæknir Noregs setti ráðstefnuna og gat þess að þetta væri hin þriðja sem haldin væri um upplýsingar og réttindi sjúklinga. Hann kvað mjög brýnt að þróa heilbrigðiskerfið með það fyrir augum að hjálpa sjúklingum til sjálfshjálpar. Heilbrigðisþjónusta ætti ekki að miða að því að gera eitthvað við sjúklinginn heldur með honum. Að loknu ávarpi Torbjörns Mork tók Ólafur Ólafsson landlæknir við fundarstjórn. Fyrsta framsöguerindi flutti dr. juris Asbjörn Kjönstad, Noregi. Hann fjallaði um rétt sjúklinga í norskum lögum. Rétturinn til að vera sjúklingur felur í sér það grundvallaratriði að menn hafi rétt til heilsugæslu á sama hátt og börn hafa rétt til skólagöngu. Þrátt fyrir það hafa stofnanir mismunandi skyldur gagnvart sjúklingum. Það gilda ólík lög fyrir almenn sjúkrahús, geðsjúkrahús elliheimili, þannig að eitthvað sé nefnt. Hægt er að hugsa sér ýmsar aðferðir við að skipta heilbrigðisþjónustu samfélagsins milli þegnanna. Eiga sjúklingar sem mesta þörf hafa fyrir þjónustu að hafa forgang eða hinir sem hafa mestar batavonir og nýtist þjónustan best? Ólík afstaða af þessu tagi getur leitt til togstreitu. Ekki er unnt að ganga ætíð út frá hagsmunum sjúklingsins, vegna þess að taka verður tillit til annarra í umhverfinu. Þá vaknar sú spurning hver tekur ákvörðun, sjúklingur eða heilbrigðisstarfsfólk. Þagnarskylda Kjönstad kvað ýmsum spurningum ósvarað, sem varða réttarstöðu sjúklings. Hvað getur læknir til dæmis gert án þess að bera það undir sjúkling? Gangist sjúklingur undir meiriháttar rannsókn verður samþykki hans að liggja fyrir. En það er ekki nóg, þess verður einnig að gæta að sjúklingur viti hvað hann er að samþykkja, þannig að fyrst þarf hann að fá nákvæmar upplýsingar um fyrirhugaða meðferð. Kjönstad kom einnig inn á þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks og hvenær mætti rjúfa hana. Þar nefndi hann eftirfarandi tilfelli: - Ef sjúklingur leyfir, en þá verður sjúklingur að vita hvað hann leyfir. - Lögbundin skerðing á þagnarskyldu er ef almannahagsmunir krefjast. Vegna margvíslegra reglugerðarákvæða um undanþágu frá þagnarskyldu má segja að hún sé fremur hugmyndafræðilegur grundvöllur en viðurkennd í verki. Hvenær hefur sjúklingur rétt til að krefjast upplýsinga? Þar nefndi Kjönstad: - Áður en sjúklingur gefur eitthvað eftir af rétti sínum. - Áður en meðferð hefst á sjúklingur rétt á að vita hversvegna gripið er til viðkomandi aðgerða. Framkvæmd þessa er hins vegar mjög komin undir einstökum læknum. Áður var litið svo á að sjúkraskýrsla væri eign læknis. Árið 1967 úrskurðaði Hæstiréttur Noregs að sjúklingur ætti rétt á að sjá sjúkraskýrslu. Á þessu eru þrjár undantekningar: - Sé hætta á að sjúklingur fari sér að voða að fenginni vitneskju. - Sé hætta á að upplýsingar leiði til samskiptaörðugleika við nánustu. - Ef upplýsingar í sjúkraskrá eru frá fleiri aðilum en sjúklingi. Sjúklingur getur borið fram kvartanir vegna læknismeðferðar, en álitamál er hvort hann hafi nokkurn rétt á því að kvörtun verði tekin fyrir.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.