Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.1989, Page 17

Læknablaðið - 15.09.1989, Page 17
LÆKNABLAÐIÐ 239 mjög vinsælar í New York. - En hér þarf að sjálfsögðu enn að breyta íslenskum reglugerðum sem halda öllu í stirðnuðum greipum. Annað sem í raun gerir breytingar auðveldari en margur hyggur er að flest iðnaðarfyrirtæki hafa furðu stuttan líftíma á okkar dögum vegna örra tæknibreytinga. Sé þetta athugað sést að það er auðvelt að búa til hægfara breytingaáætlanir fyrir fögur svæði í borgarlandinu sem fólk heldur að séu glötuð að eilífu undir óþrifalega og ljóta starfsemi. Svæðin sem ég tel að gera ætti svona áætlanir er t.d. suðvestanverður Artúnshöfðinn. Þetta er einhver glæsilegasti höfði í borgarlandinu - við voga og árósa - en núna er þar einhver óhrjálegasta starfsemi sem hægt er að hugsa sér; malbikunar- og steypustöðvar. Annað sem hefði þurft að huga að fyrir nokkrum árum - en verður að bíða eftir næsta endumýjunartíma eftir 30 til 40 ár, er að sprengja þró fyrir hitaveitugeymana ofan á Oskjuhlíð og Grafarholt tyrfa yfir og byggja þar svo glæsilegar byggingar. Okkar huglæga (síbjetíva) væntumþykja á heita vatninu, blindar okkur fyrir því hve þetta em ljót mannvirki; líta nákvæmlega út eins og olíutankar. (Sjá mynd 10). 3. Fúnksjónalisma sé mœtt með áherslu á listrœn og mannleg gildi Hin vélræna heimsmynd hefur gert flest svið mannlífsins að tæknigreinum þar sem listræn og mannleg gildi hafa orðið næsta lítið svigrúm. Ráðamenn eru þó oft með faguryrði á vör, en þegar á reynir sviptist æði oft ofan af blekkingaleiknum. Nýlegt dæmi um þetta er að lögboðið framlag til Listskreytingasjóðs var skorið niður um 14 milljónir - úr 19 milljónum í 5 (!). Á teikningum Borgarspítalans er lengi búið að flagga með setuherbergi sjúklinga - en hvað haldið þið að hafi gerst? - Þau voru tekin undir annað - og nú mega sjúklingar í nýjum spítala enn rangla um gangana. Það er hressandi að lesa skrif Guðmundar Hannessonar og Guðjóns Samúelssonar, frá öndverðri öldinni - skrif sem lýsa tilfinningu fyrir fólki og fegurð. - Það er þó ennþá meira hressandi að þeir fylgdu þessu eftir í starfi sínu í Skipulagsnefnd ríkisins (og um leið Reykjavíkur). Merkileg hús voru sett á glæsilega staði (en ekki mokað upp að þeim eins og kartöflugeymslum eins og Tónlistarhúsið) - og skipulögð glæsileg borgartorg og hafin bygging glæsibygginga við þau (sbr. Skólavörðutorg). Þessu uppbyggingastarfi við torgin var víðast hætt í miðjum klíðum og opinberum byggingum dreift eins og hráviði um alla borg. Þetta gerir að verkum að Reykjavík á ekki menningarkjama (culture district) þar sem veitinga- og menningarstaðir eiga skemmtilegt samlífi. - Það er þó huggun Mynd 10.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.