Læknablaðið - 15.09.1989, Blaðsíða 36
252
LÆKNABLAÐIÐ
Koltvísýringur í andrúmsloíti, 1959-84
{skv. mælingum á Mauna Loa. Hawaii)
Hækkun sjávarborðsins á jörðinni við þrennar
aöstæður, frá minnsta til mesta hita sem spáö er.
fellur sem súrt regn, jafnvel hundruð kflómetra
frá upphafsstað. Súra regnið fellur í vötn,
eða gróður og sitrar um jarðveg. Skemmdir
á lífríki vegna súrs regns eru víða geysilega
miklar og sem dæmi má nefna að talið er,
að yfir 90% greniskóga í Suður-Þýskalandi
beri merki þess, í tugum þúsunda vatna í
Skandinavíu er fiskur ýmist útdauður eða
í hættu, og japanskir vísindamenn telja, að
loftmengun og súrt regn geti minnkað hveiti
og hrísgrjónauppskeru um þriðjung.
HUGSUM í HRING
Þessi dökka mynd af umhverfisvandamálum
heimsins er ekki dregin hér án tilefnis, heldur
vegna þess að menn tengja gjaman saman
tækni, iðnað, auðlindaþurrð, mengun og -
borgir nútímans með öllum þeim vandamálum
sem þeim fylgja, bæði félagslegum og
menningarlegum.
Reyndar eru ekki allir sammála um,
að um vandamál sé að ræða, loka
augunum fyrir þeim eða lifa enn í þeim
»landnemahugsunarhætti«, að náttúran sé
e.k. óvinur manna sem þeir verði að brjóta
undir sitt vald eigi þjóðfélagið að fá að
þróast. Aðrir sjá vandamálin, en trúa ekki
öðm en hægt sé að leysa þau á tæknilegan
hátt og hvað varðar auðlindaþurrð þá benda
þeir á manngerð lögmál hagfræðinnar um
framboð og eftirspum. Þegar efni einnar
auðlindar minnkar hækkar verð þess. Það
er hvati að því, að reynt er að finna annað
efni sem hægt er að nota í staðinn og þá oft
Hækkun hitastigs ^C5) miðað við tvöicidun koitvísýrings í andrúmsiofii
^ jo*w r »oi i*o*
Hitastigið hækkar ekki
jafnt á jörðinni þegar
gróöurhúsáhrifanna gætir,
heldur nánast ekkert við
miðbaug en hækkandi
eftir því sem nær dregur
pólunum. Eins og sjá má
er ísland í dekksta beltinu
þar sem hitahækkunin verður
mest.
Abrahamson D, 1988. Fólk og
fiskar á íslandi hafa 40 ára
aölögunartíma aö 4 stiga hitnun.
Viötal í Morgunblaöinu 22. febr.