Læknablaðið - 15.09.1989, Blaðsíða 40
256
LÆKNABLAÐIÐ
Viö ræddum þetta fyrirbæri, Narcissos í samtímanum
viö Álfheiði Steinþórsdóttur sálfræöing. Svör hennar
fara hér á eftir:
Narcissosarhneigöin er rík í samtímanum og þaö er
líka margt sem ýtir undir hana í þjóðfélaginu einmitt
nú. Unga fólkiö í dag hefur mikiö umleikis, en þaö
virðist eiga í áberandi erfiðleikum meö aö finna lífi
sínu tilgang. Því finnst fortíöin vera gamaldags og
ekki áhugaverö og þaö langar til þess að gera og
reyna eitthvaö nýtt og öðruvísi. Því finnst framtíðin
ekki vera spennandi og þaö finnur sig ekki geta haft
mótandi áhrif á hana. Þaö er núiö sem skiþtir öllu og
þaö aö geta upplifað sjálft sig nógu sterkt í núinu.
í starfi mínu sem sálfræðingur hef ég oröiö vör viö að
þaö ríkir mikið raöleysi meðal ungs fólks. Á.S.
Álfheiður Steinþórsdóttir, 1988. Egóið í sviösljósinu. Viötal í
Pjóöviljanum 7. febr.
Árni Óskarsson og Örn D. Jónsson, 1988. Af hverju ættum viö aö
framleiöa lélegt rauövín? William Morris, ísland og útópían.
Tímarit Máls og menningar, 49. árg. 1. hefti.
Páll Skúlason, 1987. Pælingar. Ergo s.f. Reykjavík.
Náttúruverkur, blaö Fólags verkfraBÖinema og Félags
náttúrufræöinema viö Háskóla íslands 8. árgangur, maí 1981.
Listin er fólgin í því aö skaþa sífellt verömæti, gera
veruleikann aö verðmæti í sjálfu sér, ef svo má
komast aö oröi og þar meö aö gera heiminn aö
eiginlegum heimkynnum manna.
P.S. Pælingar bls. 124.
í framtíðarríki Morris er vinna aðallega tæknilega
frumstætt handverk sem borin er viröing fyrir og þykir
skemmtileg, enda gengið út frá því aö hamingja sé
óhugsandi án skemmtilegrar daglegrar vinnu. Þannig
birtist gullöld sú sem Morris sá í íslandi hinu forna á
margan hátt aftur í framtíöarsýn hans. Á.Ó. Ö.D.J.