Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1989, Síða 49

Læknablaðið - 15.09.1989, Síða 49
LÆKNABLAÐIÐ 263 - stuðla að því aö við (íslendingar) getum séð okkur sjálf fyrir nauðsynjum s.s. aukinn iðnaður - byggja í samræmi við umhverfi - í þéttbýli sem og dreifbýli - efla umhverfisfræðslu - í skólum, dagheimilum og víðar - hugarfarsbreyting - umgangast alla hluti með viröingu og umhyggju - náttúru og það sem gott er af manna höndum - stuöla að varöveislu gamalla mannvirkja og annarra menningan/erðmæta - efla tengsl okkar við fortíð okkar og sögu - byggja/innrétta félags- og menningarmiðstöðvar í nýjum og gömlum hverfum - efla list og menningarstarfsemi - hvetja fólk til að skapa sjálft - læra aö lifa með landinu en ekki á móti því og landshluta. Lögð er sérstök áhersla á, að innan þorpa sé fyrst og fremst gengið eða hjólað. Til að mæta þörf þeirra sem hvorugt geta eða til flutninga o.fl. slíks, er eftirfarandi hugmynd sett fram: Sporbraut verði lögð að hverju húsi. Eftir henni renni tölvustýrðir vagnar. Þeir sem á vagni þurfa að halda kalli á hann með heimilistölvunni, stimpli inn hvert vagninn eigi að koma og hvert að fara. Ur þeim upplýsingum vinnur síðan þorpstölvan og sendir vagna þangað sem þeirra er þörf og reynir um leið að samnýta þá, t.d. ef margir úr Fossvogsþorpi ætla í Þjóðleikhúsið sama kvöldið. Uppeldi og umhverfisfræðsla Hugarfarsbreyting er forsenda þess, að það skipulag sem hér er stungið upp á, geti orðið að veruleika. Sú hugarfarsbreyting þarf að ná til allra. í marga áratugi hafa vísindamenn varað við því, að leið hervæðingar, auðlindaausturs og mengunar liggi til tortímingar mannkyns. Stjómvöld hafa sjaldnast hlustað. Margir fæmstu umhverfisfræðingar og náttúruvísindamenn Bandaríkjanna unnu mikla skýrslu um þetta efni fyrir forseta landsins, »Global 2000«. Skýrslan var ekki tilbúin fyrr en nýr forseti var tekinn við völdum. Honum og hans ráðgjöfum líkaði ekki sú hugmynd að snúa inn á aðra braut hvað varðaði auðlindastjómun. Skýrslunni var stungið undir stól, en höfundar fengu hana gefna út í Evrópu. Stjómmálamenn hafa sumir hverjir þekkingu á umhveríismálum, en það er heldur ekki nóg. Upplýsingar, sem hér koma fram um orkueyðslu og mengun og afleiðingar hennar, em að miklu leyti unnar upp úr bókinni »OUR COMMON FUTURE«. Sú bók var gefin út af nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna, »The World Commission on Environment and

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.