Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1990, Blaðsíða 2

Læknablaðið - 15.12.1990, Blaðsíða 2
Triquilar -nú öruggari inntaka Pakkning mest notuðu þriggjafasa P-pillunnar á íslandi er orðin: -auðveldari -handhægari -einfaldari Þannig er farið að: Losaöu hringlaga limmiöann. Festu hann á miöjuna á framhliö Triquilar spjaldsins þannig að réttur byrjunardagur nemi viö rauöa byrjunarreitinn. Triquilar - nú í skífupakkningu TÖFLUR: G 03 A B 03. Hver pakkning inniheldur 6 Ijósbrúnar töflur. 5 hvitar töflur og 10 gular töflur. Hver Ijósbrún tafla inniheldur: Levonorgestrelum INN 50 míkróg, Ethinylestradiolum INN 30 mikróg. Hver hvit tafla inniheldur: Levonorgestrelum INN 75 mikróg, Ethinylestradiolum INN 40 mikróg. Hver gul tafla inniheldur: Levon- orgestrelum INN 0,125 mg, Ethinylestradiolum INN 30 mikróg. Eiginlelkar: Getnaöarvarnalyf, blanda af östrógen/prógestógen í breytilegu hlutfalli eftir tiöahringnum. Hindrar egglos, breytir leghálsslími þannig, að sæðisfrumur komast siöur i gegn og breytir einnig legbolsslimhúð þannig, að frjóvgaö egg getur siöur búið um sig. Frá- sogast vel, helmingunartimi 24—26 klst. Umbrotiö i lifur. Ábendingar: Getnaöarvörn. Frábendingar: Þar sem lyfið eykur storknunartilhneigingu blóðs, á ekki að gefa það konum með æðabólgur i fótum, slæma æðahnúta eða sögu um blóðrek. Lifrarsjúkdómar. Öll æxli, ill- eða góðkynja, sem hormón geta haft áhrif á. Sykursýki og háþrýstingur geta versnað. Tiöatruflaniraf óþekktriorsök. Grunur um þungun. Aukaverkanir: Vægar: Bólur(acne), húöþurrkur, bjúgur, þyngdaraukning, ógleði, höfuðverk- ur, mígreni, þunglyndi, kynkuldi, sveppasýkingar (candidiasis) i fæðingarvegi, útferö, milliblæðing, smáblæöing, eymsli í brjóstum. Porfyria. Alvarlegar: Æðabólgur og stiflur, segarek (embolia) til lungna, treg blóðrás í bláæðum. Háþrýstingur. Sykursýki. Tiðateppa í pilluhvíld. Varúð: Konum, sem reykja er miklu hættara við alvarlegum aukavérkunum af notkun getnaðarvarnataflna, en öörum. Milliverkanir: Getnaðarvarnatöflur hafa áhrif á virkni ýmissa lyfja, t.d. blóðþynningarlyfja, lyfja gegn sykursýki o.fl. Barbitúrsýrusambönd, lyf gegn flogaveiki og rifampicin geta hins vegar minnkað virkni getnaðarvarnataflna, séu þau gefin samtimis. Einnig hafa getnaðarvarnalyf áhrif á ýmsar niðurstöður mælinga i blóði, svo sem hýdrókortisóns, skjaldkirtilshormóns, blóðsykurs o.fl. Skammtastærðir: Ein tafla daglega frá og með 1. degi tiðablæð- inga i 21 dag samfleytt. Fyrst eru teknar 6 Ijósbrúnar töflur, þá 5 hvítar og siöan 10 gular töflur. Síðan er 7 daga hlé, áður en næsti skammtur er tekinn á sama hátt og áður. Pakkningar: 21 stk. (þynnupakkað); 21 stk. (þynnupakkað) x 3. Hverri pakkningu lyfsins skal fylgja islenskur leiðarvisir með leiðbeiningum um notkun lyfsins og varnaöarorö. SCHERING AS Fjeldhammervej 8 DK-2610 Radovre Stefan Thorarensen Síöumúli 32 HF.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.